Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

„Fjölskylda mín hefur oftar en einu sinni misst allt“

Fyrir þremur árum tók rúss­neski hönn­uð­ur­inn og fram­kvæmda­stjór­inn með meiru, Anna Morris, við fjöl­skyldu­fyr­ir­tæk­inu sem hannar og fram­leiðir prjóna­vöru. Það stofn­aði móðir hennar upp­runa­lega eftir fall Sov­ét­ríkj­anna þegar efna­hags­á­standið var hvað verst og hefur rekst­ur­inn tekið á sig margar myndir síðan.

„Fjölskylda mín hefur oftar en einu sinni misst allt“

Í dag vinna átta­tíu manns hjá þeim en nýverið stofn­aði Anna íslenskan anga út frá því sem hún nefndi MJÚK Iceland. Hún flutti hingað til lands fyrir ári síðan eftir að hún kynnt­ist íslenskum manni sínum í lyftu á leið upp í Hall­gríms­kirkju­turn. Anna seg­ist vera búin að sækja um að breyta eft­ir­nafni sínu í Nikúlás­dóttir, í anda íslensku hefð­ar­innar. Hún er af rúss­nesku bergi brotin og fædd í Úkraínu árið 1987. Hún ólst upp í litlum bæ og fjöl­skyldan hafði það gott framan af en faðir Önnu var ofursti í hernum og móðir hennar heima­vinn­andi þegar Anna fædd­ist.

Tóku málin í eigin hendur til að sjá sér farboða

Sov­ét­ríkin féllu og óstöð­ug­leik­inn í land­inu skap­aði verð­bólgu. Laun lands­manna uxu ekki í takt við verð­lagið, jafn­vel þótt þau hækk­uðu hvern mánuð. Móðir hennar ákvað því að taka málin í sínar hendur og gera sitt besta til að sjá fyrir fjöl­skyld­unni og stofn­aði lítið fyr­ir­tæki. Hún vissi að eig­in­maður sinn gæti ekki sagt starfi sínu lausu og yfir­gefið her­deild sína og her­menn­ina sem stól­uðu á hann. Henni datt því í hug að kaupa teppi frá verk­smiðju í heimabæ þeirra, Lubny, og einnig hnetur, hun­ang, súrs­aðar gúrkur og sópa og keyra tvö þús­und kíló­metra til Samara sem er gríð­ar­stór borg í Rúss­landi, þaðan sem amma og afi Önnu eru. Móðirin harð­dug­lega gat ekki skilið dætur sínar eftir einar og því fengu þær að ferð­ast með henni lands­horna á milli.

„Á þessum árum í fyrrum Sov­ét­ríkj­unum tók fólk málin í sínar hendur til að sjá sér far­boða, það beið ekki eftir því að ríkið kæmi því til aðstoðar. Árið 1991 fædd­ist fjöl­skyldu­fyr­ir­tækið en ég var fjög­urra ára og systir mín fjórtán, mamma var 34 ára. Það má segja að ég hafi byrjað starfs­feril minn áður en skóla­ganga mín hófst og mér þótti alltaf gaman að fá að taka þátt í rekstr­inum. Við byrj­uðum á opnum mark­aði í Lubny, fluttum svo ýmsar vörur inn frá Tyrk­landi, því næst opn­uðum við eigin verslun og fórum smám saman einnig að selja okkar eigin hönnun. Fljót­lega fluttum við okkur svo yfir í höf­uð­borg­ina og byrj­uðum að fram­leiða vörur sjálf.“

Það var árið 2014. Í dag vinna eins og fyrr segir átta­tíu manns hjá fyr­ir­tæk­inu sem telur tvær verk­smiðjur og eitt vinnu­rými og sýn­ing­ar­sal (atelier).

Þar eru nokkrir tugir véla sem fram­leiða 250 týpur af höttum og treflum og meira en fmm­tíu týpur af teppum. MJÚK Iceland fram­leiðir undir eigin nafni og tekur einnig við sér­pönt­unum. Fyr­ir­tækið vinnur með sjálf­stæðum hönn­uðum, jafnt sem litlum versl­unum og stór­mörk­uðum. Nú þegar hefur MJÚK fram­leitt línur fyrir nokkra þekkta íslenska hönn­uði og vöru­merki.

Hafa oftar en einu sinni misst allt

Þrátt fyrir vel­gengni síð­ustu ára hefur rekst­ur­inn ekki verið neinn dans á rósum í gegnum tíð­ina.

Viðtalið við Önnu er að finna í 7. tölu­blaði Vikunnar.

„Þetta var aldrei ein­falt eða auð­velt hjá okkur. Fjöl­skylda mín hefur oftar en einu sinni misst allt vegna efna­hag­skrísu eða spill­ingar í land­inu en við héldum áfram að trúa á okkur sjálf, fjöl­skyld­una og að þraut­seigja og elju­semi komi manni langt. Þess vegna höfum við ákveðið að styðja við bakið á ungum hönn­uðum líka. Það er auð­veld­ara að búa til prótótýpu eða prufu­línu í gegnum okkur en nokkurn fram­leið­anda sem skiptir við Ísland. Við bjóðum líka upp á svo­kallað workshop fyrir hönn­uði, bæði í Úkraínu og Rúss­landi, og ég mun líka deila vit­neskju minni og reynslu með íslenskum hönn­uðum. Nám­skeiðin verða ókeypis og haldin í MJÚK Iceland-versl­un­inni niðri á Skóla­vörðu­stíg,“ segir Anna og sýnir blaða­manni glæsi­legt versl­un­ar­hús­næði sem hún var að fá lyklana að.

Þetta var aldrei ein­falt eða auð­velt hjá okkur. Fjöl­skylda mín hefur oftar en einu sinni misst allt vegna efna­hag­skrísu eða spill­ingar í land­inu.

„Ég mun verja mestum tíma í versl­un­inni og hafa skrif­stofu og vinnu­rými þar einnig þar sem ég get hannað á staðnum og séð um mál tengd rekstri fyr­ir­tæk­is­ins. Ég tel það mjög mik­il­vægt að vera í góðum tengslum við kúnn­ann og með þessu móti get ég það auð­veld­lega. Það er mik­il­vægt fyrir hvaða hönnuð sem er að fá „feedback“ til þess að fá tæki­færi til þess að bæta sig.“

Mikilvægt að læra tungumálið

Ekki er nóg með að Anna reki átta­tíu manna fyr­ir­tæki í tveimur löndum heldur er hún einnig að læra íslensku við Háskóla Íslands. Hún ákvað líka að taka kúrs sem snýr að íslenskri menn­ingu þar sem hún lærir íslenska lista­sögu, fer á söfn og hittir rit­höf­unda, ljóð­skáld og kvik­mynda­leik­stjóra. Anna segir það hjálpa sér að skilja Ísland og Íslend­inga betur.

„Mér finnst að ef mann­eskja flytur til ann­ars lands, sama hvaðan hún kemur, að það sé skylda hennar að læra tungu­málið. Þannig sýnir það virð­ingu og kemst fyrr inn í sam­fé­lagið. Íslenska er erfitt tungu­mál og mál­fræðin flókin en mað­ur­inn minn lærir rúss­nesku og þannig styðjum við hvort annað.“

Aðspurð um fram­tíð­ar­drauma seg­ist hún helst vilja halda áfram að vera ham­ingju­söm og njóta þeirrar bless­unar sem hún hefur hlotið hingað til; ást­ríkrar fjöl­skyldu og heilsu. Hún ætlar líka að halda áfram að þróa fyr­ir­tækið, spenn­andi fata­lína er í bígerð en hún inni­heldur pon­sjó, ull­ar­kápur- og slár. Þær eru hann­aðar í nýju hönn­un­ar­rými í Úkraínu og Anna vinnur náið með fata­hönn­uði sem hjálpar henni við að hafa hlut­föllin full­komin og sniðin kven­leg og þægi­leg. Hana langar til að taka þátt í alþjóð­legum sýn­ingum og þegar ný fata­lína hennar kemur á markað ætlar hún næst að fara að vinna í úti­vi­starfatn­aði og peysum.

„Eitt af mínum stærstu mark­miðum er að fram­leiða sjálf­bæra hönnun og hvetja fólk til þess að kaupa minna magn af hágæða­vöru frekar en mikið fjölda­fram­leitt. Jafnvel litlir hlutir eins og að nota bómull­ar­inn­kaupa­poka frá okkur þegar farið er að versla getur haft áhrif á nátt­úr­una og bjargað henni frá hund­ruðum plast­poka.“

Í Úkraínu drekkum við ekki vatn úr kran­anum. Íslenska vatnið smakk­ast svo vel og það er enn þá fram­andi fyrir mér.

En hvað ætli hafi komið henni mest á óvart við að flytja til Íslands?

„Ég var búin að horfa á marga þætti og lesa margar bækur um Ísland áður en ég flutti hingað. En nokkrir hlutir komu mér samt á óvart. Í Úkraínu drekkum við ekki vatn úr kran­anum. Íslenska vatnið smakk­ast svo vel og það er enn þá fram­andi fyrir mér, jafn­vel þótt ég sé búin að búa hér í ár. Svo eru engar girð­ingar hér, nema þá mjög litlar og þá aðal­lega vegna fag­ur­fræð­innar frekar en örygg­is­ins vegna. Í Úkraínu og Rúss­landi eru girð­ing­arnar háar og sterk­byggðar og því rík­ari sem fjöl­skyldan er, því hærri eru girð­ing­arnar.

Svo finnst mér líka skrítið að upp­lifa umferð­artraffík á milli klukkan fjögur og fimm. Í Úkraínu byrjar traffíkin miklu seinna. Fólk ver meiri tíma með fjöl­skyldum sínum hér og það er góðs viti,“ segir Anna brosmild að lokum.

Viðtalið við Önnu má lesa í heild sinni í nýjasta tölu­blaði Vikunnar.

Myndir / Hallur Karlsson

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Hann mætti ekki við þingfestingu málsins
Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Fólk

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina