Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Gargandi snillingur eða viðkvæmt blóm og allt þar á milli

Hvar þú ert í röð­inni í systk­ina­hópnum segir heil­mikið um þig og einnig í hvaða mán­uði þú fædd­ist.

Gargandi snillingur eða viðkvæmt blóm og allt þar á milli
Mynd úr mynda­banka

Því hefur verið fleygt fram að elsta systkinið sé gáf­að­ast og það yngsta sé skemmti­leg­ast … auð­vitað vita allir að það eru mið­börnin sem bera af …

Svona að öllu gamni slepptu má hér finna fróð­leik um þig eftir því hvar í systk­ina­röð­inni þú ert. Einnig um mán­uð­inn sem þú fædd­ist í. Þess ber að geta að engar vís­inda­legar rann­sóknir liggja hér að baki, þetta er allt til gam­ans gert.

Hvar ertu í systkinaröðinni?

Fjöl­skyldu­mynstur geta verið flókin, ekki síst á Íslandi, og ef þú ert t.d. yngsta barn föður þíns en mið­barn móður þinnar, skaltu bara velja það sem þér finnst passa betur við þig, eða þér hugn­ast betur.

Einbirnið – það ábyrga

Sagt er um ein­birni að þau séu ein­beitt, afar skipu­lögð, ábyrg og áreið­an­leg. Veröld þeirra getur verið svo­lítið svört og hvít og þess vegna geta sum þeirra átt erfitt með að fyr­ir­gefa, það tekur þau að minnsta kosti góðan tíma. Þau eru kröfu­hörð, finnst ekki auð­velt að við­ur­kenna að þau hafi rangt fyrir sér og best er að gagn­rýna þau var­lega og af nær­gætni, þau eru nefni­lega mjög við­kvæm og auð­sær­an­leg.

Elsta barnið – leiðtoginn

Vís­inda­legar rann­sóknir hafa reyndar sýnt að elsta barn skorar oft hærra í mæl­ingum á greind en yngri systk­inin og eftir því sem árin á milli eru fleiri, þeim mun meiri munur. Elstu börnin eru sögð vera nátt­úru­legir leið­togar sem setja markið oft mjög hátt. Þau gætu náð langt í stjórn­málum, orðið fram­kvæmda­stjórar eða tals­menn ýmissa sam­taka. Þessum hópi er hægt að skipta í tvennt, ann­ars vegar eru þau hug­ul­sömu og nær­gætnu og hins vegar þau sem eru árás­ar­gjörn og hrista upp í hlut­unum. Þessi elstu geta verið mis­lynd og til­finn­inga­sljó í garð ann­arra, einnig ýtin og yfir­þyrm­andi. Mörg þeirra þykj­ast vita allt en flest þeirra treysta yfir­leitt sjálfum sér betur en öðrum.

Miðbarnið – það vinsæla

Mið­börnin eru sögð búa yfir góðum hæfi­leikum í mann­legum sam­skiptum og velja fremur frið­sam­legu leið­ina en að rugga bátnum. Þau eru með báða fætur á jörð­inni, yfir­veguð og sjá báðar hliðar á málum. Þeir eig­in­leikar gera þau að bæði góðum sátta­semjurum og leið­bein­endum. Þau eru vin­sæl en þykja ekki eins dríf­andi og t.d. elstu systk­inin eru, eiga stundum erfitt með að standa við mark­mið sín og sveigja jafn­vel af leið til að geðj­ast öðrum. Þeim hættir líka til þess að taka á sig sök­ina fyrir eitt­hvað sem þau vita að aðrir hafa gert.

Því hefur verið fleygt fram í gegnum tíð­ina að elsta systkinið sé gáf­að­ast og það yngsta sé skemmti­leg­ast.

Yngsta barnið – það skemmtilega

Það má með sanni segja að yngstu börnin séu klapp­stýrur heim­il­is­ins. Þau hafa afar góða hæfi­leika í mann­legum sam­skiptum og vita fátt skemmti­legra en að skemmta öðrum. Þau eiga auð­velt með að kynn­ast nýju fólki og að láta fólki finn­ast það vel­komið. Þau þríf­ast vel í stórum hópi, eru hrókar alls fagn­aðar og óhrædd við að taka áhættu. Yngstu börnin geta þó orðið fljótt leið á hlut­unum og missa stundum athygl­ina þegar þau þurfa að halda sig við eitt­hvað eitt of lengi. Að ein­hverju leyti eru þau sjálf­hverf og gera stundum óraun­hæfar vænt­ingar til ann­arra, ekki síst maka síns og ætl­ast til þess að sam­bandið/hjóna­bandið sé ein­tóm gleði. Þol­in­mæði er ekki ein af dyggðum yngsta barns­ins.

Mánuðurinn þinn

Janúar

Metn­að­ar­gjarn og nokkuð alvöru­gef­inn dugn­að­ar­forkur. Hefur gaman af því að læra og gæti orðið góður kenn­ari eða leið­bein­andi. Vinnu­samur og góður skipu­leggj­andi, mik­ill snyrtip­inni. Kann að gera aðra ham­ingju­sama en má vara sig á afbrýði­semi. Rólega, þögla týpan þar til hún kemst í upp­nám.

Febrúar

Víðsýn mann­eskja sem hugsar út fyrir rammann. Febr­ú­ar­fólk býr yfir hæfi­leikum og greind og einnig heið­ar­leika og tryggð. Það þarf frelsi og eltir tak­mark sitt af stað­festu og auð­mýkt. Getur verið feimið og kjarklítið og vill frekar stjórna á bak við tjöldin en vera áber­andi.

Mars

Aðlað­andi, ást­ríkt, hlé­drægt og örlítið feimið fólk. Það er heið­ar­legt í eðli sínu, gjaf­milt og sam­úð­ar­ríkt. Greið­vikni ein­kennir það og mjög erfitt er að reita það til reiði. Auðvelt er að treysta því fyrir leynd­ar­málum en sjálft er það leynd­ar­dóms­fullt og kýs frið og ró fram yfir flest annað.

Apríl

Kraft­mik­ill, ein­beittur og athafna­samur ein­stak­lingur. Svolítið fljót­fær og ef ein­hver reitir hann til reiði segir hann hluti sem hann meinar ekki og sér eftir. Aðlað­andi með gott sjálfs­traust og hefur hæfi­leika til að leysa vanda­mál, sín og ann­arra. Sterkur per­sónu­leiki, hug­rakkur og hefur stálminni.

Maí

Hrókur alls fagn­aðar í góðum félags­skap, hefur skarpa hugsun og djúpar til­finn­ingar. Yndisleg sál sem nýtur þess að gleðja aðra. Maífólkið hefur sterkan vilja, er þrjóskt og stundum auð­velt að reita það til reiði. Það hefur góða hæfi­leika til að hvetja aðra til dáða.

Júní

Hug­sjóna­mann­eskja sem á auð­velt með að gera áætl­anir fram í tím­ann. Hugurinn er oft á fleygi­ferð og fara þarf vel að jún­ífólk­inu til að hafa áhrif á það. Það er hug­mynda­ríkt, kurt­eist og kann að koma fyrir sig orði, það er vand­látt og kýs aðeins það besta.

Júlí

Júlífólkið er dult, svo­lítið þögla týpan og hefur ein­stak­lega góða návist. Það hefur ráð undir rifi hverju og gott að leita til þess, það er heið­ar­legt og hefur ein­lægan áhuga á öðru fólki og til­finn­ingum þess. Stundum er erfitt að skilja það og á móti kemur að það á líka erfitt með að skilja aðra.

Ágúst

Ágúst­fólkið lifir fyrir húmor og gleði, það er aðlað­andi, ráða­gott, við­móts­þýtt og umhyggju­samt. Oft er það of örlátt en sér samt ekki eftir þeim gjöfum sem það gefur. Þótt það sé nokkuð ánægt með sjálft sig þyrstir það líka eftir hrósi og við­ur­kenn­ingu þegar því finnst ástæða til.

September

Fólk fætt í sept­em­ber er skipu­lagt, nákvæmt, var­kárt og við­móts­þýtt. Það er tryggt vinum sínum en finnst ekk­ert leið­in­legt að benda fólki á mis­tök þess. Orð þess eru mark­tæk, það býr yfir rósemd og yfir­vegun og hefur ein­læga samúð með þeim sem eiga um sárt að binda. Góðir starfs­kraftar.

Október

Þeir sem fædd­ust í októ­ber eru við­móts­þýðir og aðlað­andi, búa yfir innri styrk og ytri feg­urð, leika ekki tveimur skjöldum, eru heið­ar­legir og vilja fá allt upp á borðið í sam­ræðum. Októ­ber­fólkið á auð­velt með að eign­ast vini og kemur fram við alla af sömu vin­semd og virð­ingu.

Nóvember

Hug­mynda­ríkt og stundum svo­lítið óskilj­an­legt fólkið sem fætt er í nóv­em­ber en það eru svo sem ekki allir sem skilja snill­inga … Þessi mann­eskja er ein­stök á sinn hátt, er skörp og gæti mögu­lega búið yfir skyggni­gáfu. Sterkur per­sónu­leiki sem er var­kár og sífellt á verði.

Desember

Bar­áttu­mann­eskja sem býr yfir tryggð og gjaf­mildi, er metn­að­ar­gjörn og þarfn­ast hróss. Hún drífur í hlut­unum og það má alveg segja að hún sé eilífð­ar­ung­lingur því hún hefur gaman af því að leika sér, hversu gömul sem hún er. Des­em­ber­fólk er félags­lynt og það er gaman að vera í návist þess.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Tækið er sagt geta borið fjóra fullorðna einstaklinga
Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Fólk

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Myndir
Fólk

Sögu­frægt sýslu­manns­setur við sjó­inn komið á sölu

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una