Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Neyð konunnar gekk mér að hjarta

Neyð konunnar gekk mér að hjarta

Lífs­reynslu­saga úr Vikunni

Fyrir nokkru var ég á leið heim frá sólarströnd í íslenskri flugvél. Skyndilega heyrðist rödd flugfreyjunnar í kallkerfinu og hún spurði hvort læknir væri um borð. Hjón gáfu sig fram og fljótlega var okkur öllum ljóst að í vélinni var kona haldin ofsahræðslu í alvarlegu kvíðakasti. Hún er greind með alzheimer á byrjunarstigi og var þarna ein á ferð og missti skyndilega allt veruleikaskyn og vissi ekki hvar hún var stödd.

Ég hafði verið í ferð með stórum hópi og við notið okkar til fulls í sól­inni. Um var að ræða fólk sem í mörg ár hafði starfað saman að skemmti­legu áhuga­máli og þessa ferð fórum við til að verð­launa okkur fyrir góðan árangur. Í flug­vél­inni var því mikið skrafað og skegg­rætt og þess vegna farið fram hjá okkur hvernig ótti kon­unnar magn­að­ist eftir því sem leið á flugið. Við vorum hins vegar öll strax til­búin að gera það sem við gátum til að hjálpa til.

Ég frétti síðar að konan hafði verið í fríi með vin­konum sínum á Spáni en hvers vegna þær sendu hana eina heim veit ég ekki. Hins vegar fann ég til djúprar sam­úðar með kon­unni því ég þekki sjúk­dóm­inn sem hún er haldin. Síðustu sex árin sem mað­ur­inn minn lifði missti hann smátt og smátt tökin á líf­inu. Hann var mik­ill athafna­maður, sjálf­stæður og félags­lyndur en sjúk­dóm­ur­inn rændi hann þessum eig­in­leikum.

Þessi tengsla­rof við raun­veru­leik­ann eru algeng á fyrstu stigum.

Undir það síð­asta þorði hann ekki út og fór helst ekki í mat­ar­boð til barn­anna okkar, svo óör­uggur var hann orð­inn. Margir halda að alzheimer-sjúk­lingar viti ekki og skynji ekki sjálfir hvernig komið er fyrir þeim en það er aðeins á loka­stigum sjúk­dóms­ins. Þessi tengsla­rof við raun­veru­leik­ann eru algeng á fyrstu stigum, fólk villist í göt­unni heima hjá sér, er statt úti í búð og veit skyndi­lega ekki hvar það er í heim­inum eða hvað að gera, og það heldur kannski á greiðu og hefur ekki hug­mynd um til hvers hún er notuð.

Missa tengsl við raunveruleikann

Ég vissi þess vegna vel hvað var að koma fyrir kon­una í flug­vél­inni og fann óskap­lega mikið til með henni. Lækn­arnir tveir gerðu sitt besta til að hlúa að henni en að lokum var ákveðið að snúa við og lenda í Dublin. Aftur köll­uðu flug­freyj­urnar eftir hjálp og nú spurðu þær hvort ein­hver um borð væri til­bú­inn að yfir­gefa flug­vél­ina og fylgja kon­unni á sjúkra­hús. Sá hinn sami myndi fá far sér að kostn­að­ar­lausu með flugi næsta dag. Ein úr hópnum mínum bauð sig fram, kona sem unnið hefur sjálf­boða­vinnu víða og sinnt um fólk sem á þarf að halda. Mér leið strax betur þegar ég sá hver hafði stigið fram því ég vissi að konan var í góðum höndum þar.

Þegar þær höfðu kvatt hélt flugið okkar áfram og við lentum í Keflavík, að vísu nokkuð seinna en áætlað hafði verið en ég gat ekki fundið annað en að allir far­þegar væru sáttir.

Þessi saga finnst mér bæði fal­leg og ljót. Viðbrögð starfs­fólks í flug­inu voru til mik­illar fyr­ir­myndar. Allir voru full­kom­lega fum­lausir og héldu ró sinni. Lækn­arnir tveir sýndu strax hversu miklir fag­menn þeir voru. Þetta voru hjón frá Kanada og annað þeirra með sér­grein í hjarta­sjúk­dómum en hitt bækl­un­ar­lækn­ingum. Þau voru ein­stak­lega hlý­leg og ljúf í fram­komu og gættu þess vel að fylgj­ast með lík­am­legu ástandi kon­unnar. Farþegar voru skiln­ings­ríkir og ég fann ekki óþol­in­mæði eða reiði hjá nokkrum manni. En ljót vegna þess að fólk sem haldið er jafn­grimmum og erf­iðum sjúk­dómi og alzheimer er á alls ekki að ferð­ast eitt.

Ég veit að ekki er auð­velt að hugsa um sjúk­ling og lík­lega er það ekki fyrir alla. Maðurinn minn var svo lán­samur að eiga að fjöl­skyldu þar sem ríkir virð­ing og vin­átta. Börnin okkar og aðrir ætt­ingjar sýndu okkur því mik­inn stuðn­ing. Vinir hans voru líka afskap­lega tryggir og góðir og fylktu sér um okkur þegar ljóst var að hann var veikur. Þetta létti okkur vissu­lega lífið og nota­legt að vita að ef á þurfti að halda var hjálpin nær­tæk. Þess vegna get ég ekki annað en velt fyrir mér hvernig mann­eskjur vin­konur kon­unnar í flug­vél­inu eru og hvers vegna hún var þarna ein á ferð.

Hver þarf óvini?

Sú spurn­ing læð­ist óneit­an­lega að mér að þær hafi verið orðnar þreyttar á að bera ábyrgð á henni og því ákveðið að senda hana heim. Engin þeirra sá hins vegar ástæðu til að fylgja henni. Líklega hafa þær ekki viljað eyði­leggja eigin skemmtun. Auðvitað er ég að dæma eitt­hvað sem ég hef ekki fulla vit­neskju um. Kannski lágu góðar ástæður að baki því að konan var ein á ferð. Ég hef velt því fyrir mér en veit ekki alveg hverjar þær ættu að vera. Dettur ekk­ert í hug sem mér finnst skýra þetta fylli­lega. Venju­lega þegar fólk fer saman út er það sam­ferða heim líka.

Sú spurn­ing læð­ist óneit­an­lega að mér að þær hafi verið orðnar þreyttar á að bera ábyrgð á henni.

Flestir kaupa viku-, hálfs­mán­aðar- eða þriggja vikna ferðir og eru allan tím­ann. Setn­ingin, Sá sem á slíka vini þarf ekki óvini, virð­ist eiga við hér. En eins og ég segi er ég hugs­an­lega mjög órétt­lát í garð þess­ara kvenna. Neyð kon­unnar í flug­vélin gekk mér hins vegar að hjarta og ég hef ekki getað gleymt þessu atviki.

Það ásækir mig enn og þess vegna lang­aði mig að koma þess­ari frá­sögn á fram­færi. Bæði til að þakka öllum þeim sem lögðu sitt af mörkum til að hjálpa og sýna kon­unni að hún væri ekki ein í heim­inum og starfs­fólk­inu sem stóð sig svo ein­stak­lega vel. Ég held líka að upp­lýs­ingar og fræðsla um alzheimer-sjúk­dóm­inn gæti nýst vel til að auka skiln­ing fólks á því sem komið getur fyrir. Þetta eru alvar­leg veik­indi og meðan sjúk­lingar með hann geta notið lífs­ins er æski­legt að þeim sé gert það kleift en ekki er hægt að ætl­ast til að það sýni sama sjálf­stæði og áður.

Daginn eftir kom svo vin­kona mín heim frá Dublin. Hún hafði verið með kon­unni á sjúkra­hús­inu í sól­ar­hring. Þar und­ir­gekkst hún ýmsar rann­sóknir og var að þeim loknum send heim. Allan þennan tíma fékk konan hvorki vott né þurrt og einn koll til að sitja á. Vinkona mín sat stóran hluta tím­ans frammi á gangi og gat fengið sér að borða úr sjálf­sala en sjúk­lingnum var fært eitt vatns­glas. Mikið hefur verið rætt og ritað um íslenskt heil­brigð­is­kerfi en ef marka má þessa sögu er víðar pottur brot­inn í þeim efnum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Fólk

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina