Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Amma kom fyrir mig vitinu

Amma kom fyrir mig vitinu

Lífs­reynslu­saga úr Vikunni:

Mörgum árum eftir skilnað foreldra minna áttaði ég mig á því að mömmu hafði nánast tekist að eyðileggja samband mitt við pabba.

Ég var fimm ára þegar for­eldrar mínir skildu. Þau voru mjög ólík á allan hátt, ég skil eig­in­lega ekki hvernig þau náðu saman á sínum tíma.

Mamma fór að læra hjúkrun þegar ég var tveggja ára og hefur alla tíð unnið við það. Pabbi er mik­ill bíla­dellu­karl og alla tíð, fyrir utan nokkur ár úti á sjó, hefur hann unnið á hinum ýmsu verk­stæðum. Hann er lista­maður á sínu sviði og hefur gert upp marga bíla og þótt hann sé ekki lærður bif­véla­virki er hann eft­ir­sóttur starfs­maður. Mamma vildi að hann mennt­aði sig og þau rifust mikið um það. Síðar kom í ljós að pabbi er les­blindur og það hafði mikið dregið úr honum því hann hélt að hann væri of heimskur til að geta lært.

Einn og einn bíltúr

Eftir um það bil tvö ár kynnt­ist mamma góðum manni sem hún gift­ist. Hann var og er frá­bær og þótt ég kall­aði hann ekki pabba, var hann mér eins og besti faðir. Þau mamma eign­uð­ust saman þrjú börn á næstu árum.

Pabbi fór á sjó­inn eftir skiln­að­inn og var sjó­maður í tvö eða þrjú ár. Enginn samn­ingur var gerður um umgengni en lík­lega var þög­ult sam­komu­lag um að hann hitti mig þegar hann gæti. Hann bjó hjá for­eldrum sínum úti á landi á meðan hann safn­aði sér fyrir eigin íbúð og sótti sjó­inn þaðan.

Pabbi bauð mér stöku sinnum í bíltúr þegar hann kom í land og ég man að mér þótti mjög gaman að hitta hann. Það kom ein­hvern veg­inn aldrei til greina að ég gisti hjá honum. Þegar pabbi var síðan fluttur í eigin íbúð í Reykja­vík var engin hefð fyrir að ég gisti og þar fyrir utan lang­aði mig ekki til þess.

Mamma var alltaf leið­in­leg við pabba þegar hann hringdi. Svo taut­aði hún eitt­hvað eins og hún vor­kenndi mér að þurfa að hitta hann. „Pabbi þinn hafði sam­band. Nennirðu að hitta hann á þriðu­dag­inn eftir skóla?“ spurði hún kannski ef ég var ekki heima þegar hann hringdi. Svo er ég viss um að ég hef ekki fengið að vita af öllum skipt­unum sem hann hringdi.

„Mamma var alltaf leið­in­leg við pabba þegar hann hringdi. Svo taut­aði hún eitt­hvað eins og hún vor­kenndi mér að þurfa að hitta hann.“

Þetta síað­ist inn og smám saman dró úr til­hlökkun minni að vera með pabba. Stundum sagð­ist ég frekar vilja leika mér við vin­kon­urnar en fara í bíltúr með honum og ég held að það hafi glatt mömmu.

Þótt mamma segði aldrei beint við mig að pabbi væri asni eða aum­ingi, fann ég alltaf vel fyrir pirr­ingi og fyr­ir­litn­ingu hennar í hans garð. Ég man að amma, mamma hennar, sagði stundum: „Láttu barnið ekki heyra til þín,“ ef hún var við­stödd og heyrði eitt­hvað.

Á ung­lings­ár­unum var pabbi í mínum huga ein­hver maður sem átti að heita pabbi minn en átti það varla skilið. Mér þótti vænt um hann á vissan hátt en vildi samt sem minnst af honum vita. Hann bjó með konu sem átti tvö börn fyrir og saman eign­uð­ust þau tvö í við­bót. Ég hitti kon­una nokkrum sinnum, hún var ósköp indæl og litlu hálf­systk­ini mín mikil krútt en ég leit ekki á þetta fólk sem hluta af fjöl­skyldu minni.

Fallegur greiði eða smjaður?

Þótt mamma hafi oft verið eitruð í orðum gagn­vart pabba, get ég ekki kennt henni alfarið um sam­bands­leysið við pabba. Hann var sjálfur svo­lítið ófram­fær­inn og hefur eflaust fundið straumana frá okkur mömmu því ég var örugg­lega orðin kulda­leg og oft fúl við hann strax í kringum tíu, ell­efu ára ald­ur­inn. Óaf­vit­andi kenndi ég honum um hversu sjaldan við hitt­umst.

Ég var orðin sautján ára þegar ég vakn­aði loks til vit­undar um þann ljóta leik sem mamma hafði leikið …

Mamma og stjúpi minn höfðu gefið mér gamlan en góðan bíl sem skemmd­ist illa nokkrum mán­uðum seinna þegar ég lenti í árekstri. Öku­mað­ur­inn sem kom á móti mér var ann­ars hugar, eflaust í sím­anum, og bíll hans rás­aði yfir á minn veg­ar­helm­ing. Enginn slas­að­ist, sem betur fer, lík­lega vegna þess að ég hafði séð í hvað stefndi og var nán­ast búin að stöðva bíl­inn þegar árekst­ur­inn varð, hinn var ekki á mik­illi ferð.

Pabbi frétti af þessu og hringdi í mig. Hann full­viss­aði sig um að allt væri í lagi hjá mér og bauðst til að lána mér ágætan bíl sem ég mætti hafa eins lengi og ég vildi. Ég þáði það og þegar ég sagði mömmu frá því gretti hún sig og sagði: „Á nú að fara að smjaðra fyrir þér?“ Ég yppti öxlum og sagði að það hlyti að vera. Ég fæ enn sting í mag­ann þegar ég hugsa um þetta.

Pabbi kom með bíl­inn og ég þakk­aði honum fyrir. Ég man að mér fannst þetta sjálf­sagt, eins og hann hrein­lega skuld­aði mér þetta fyrir að vera svona lélegur faðir …

Augun opnast

Ég heim­sótti ömmu ekki svo löngu seinna, móð­ur­ömmu mína sem ég hafði verið mikið hjá í gegnum tíð­ina. Hún er hrein og bein mann­eskja sem kenndi mér að búa til bestu pönnu­kökur í heimi.

Ég sagði ömmu frá því að pabbi hefði lánað mér bíl og bætti hæðn­is­lega við: „Hann er eitt­hvað að reyna að smjaðra fyrir mér.“

Ég vissi ekki hvert amma ætl­aði. Hún skip­aði mér að setj­ast niður og síðan las hún því­líkt yfir mér á meðan ég sat eins og lömuð. Amma sagð­ist ekki hafa viljað skipta sér of mikið af því hvernig mamma tal­aði um sinn fyrr­ver­andi en hana hefði ekki grunað að það hefði haft svona mikil áhrif á mig. Pabbi væri ein­stak­lega góður maður og að þau mamma hefðu bara ekki átt vel saman. Það væri engin afsökun fyrir því að mamma tal­aði eins og hún gerði. Amma sagði að pabbi hefði saknað mín mikið en mamma reynt að vernda mig fyrir honum eins og hann væri eitt­hvert skrímsli. Fyrst eftir skiln­að­inn hefði pabbi stundum komið í kaffi til hennar til að tala um mig og aldrei hefði hann sagt hnjóðs­yrði um mömmu.

Fyrstu við­brögð mín voru reiði en amma sagði að ég yrði að reyna að skilja mömmu. Hún hefði verið svekkt út í pabba og ekki fund­ist hann eiga skilið að vera í miklum sam­skiptum við barn sitt. Fyrstu árin eftir skiln­að­inn drakk hann nokkrum sinnum í sig kjark til að hringja í mömmu og biðja um meiri umgengni við mig. Mamma hefði dæmt hann eftir þessum sím­tölum og viljað vernda mig fyrir honum en þetta hafi gengið allt of langt hjá henni. Það hefði orðið að vana hjá henni að tala um pabba af fyr­ir­litn­ingu. Amma hefði ekki almenni­lega áttað sig á þessu fyrr en þennan dag hve mikil áhrif það hefði haft á mig.

„Öll ástin til pabba sem ég hafði ómeð­vitað bælt niður kom til baka, enn sterk­ari en áður.“

Á tíma­bili reyndi pabbi mikið til að fá meiri umgengni við mig og ætl­aði í hart. Hann var kom­inn með lög­fræð­ing í málið en svo gugn­aði hann vegna þess að hann vildi ekki koma lífi mínu í upp­nám. Ég fékk tár í augun þegar amma sagði mér frá þessu og fannst ég hafa verið svikin. Öll ástin til pabba sem ég hafði ómeð­vitað bælt niður kom til baka, enn sterk­ari en áður. Ég vildi að við amma hefðum átt þetta sam­tal löngu fyrr.

Góðar breytingar

Mér fannst ég ekki geta ráð­ist á mömmu og skammað hana en hún hefur ekki dirfst að segja neitt ljótt um pabba í mín eyru síðan amma tal­aði við mig. Það var miklu mik­il­væg­ara að efla sam­bandið við pabba en ríf­ast í mömmu. Víst varð ég stundum fúl út í mömmu út af þessu og lét hana heyra það en ég skamm­aði pabba líka fyrir að hafa ekki reynt betur. „Ég vildi ekki pína þig til að hitta mig,“ svar­aði hann bara.

Við pabbi erum í miklu og góðu sam­bandi. Við höfum haft fimmtán góð ár til að bæta upp glat­aðan tíma. Á meðan amma lifði minnti ég hana reglu­lega á að það væri henni að þakka hvað allt hefði breyst til góðs. Hún gladd­ist mikið yfir þessu en mamma virð­ist ekki sér­lega sátt. Álit hennar á pabba hefur lítið breyst.

Ég gifti mig og eign­að­ist tvo stráka með mann­inum mínum. Við skildum en höfum drengj­anna vegna reynt að halda sam­komu­lag­inu góðu þótt við séum ekki alltaf sátt hvort við annað. Hann hélt fram hjá mér og ég man að ég var svo reið að mér fannst hann ekki eiga skilið að umgang­ast dreng­ina okkar en sú hugsun stóð þó ekki lengi.

Strák­arnir búa hjá mér en hitta pabba sinn oft og mikið. Þeir dýrka hann og dá og ég mun aldrei segja neitt til að skemma það.

Ég get ekki skilið hvað mömmu gekk til á sínum tíma að koma í veg fyrir að við pabbi ættum góð sam­skipti. Hún fer í mikla vörn ef ég reyni að ræða það við hana. Ég held að vernd­ar­hvöt hafi fyrst og fremst ráðið ferð­inni hjá henni en örugg­lega vottur af eig­in­girni og hefnd­ar­löngun, líka ákveðið þroska­leysi. Ég get ekki erft þetta við hana, hún þjá­ist víst nóg yfir því að þurfa að vera í sömu barna­af­mælum og pabbi og að vita hversu gott og náið sam­band ég á við hann.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Fólk

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina