Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

„Það voru allir í hljómsveit, fannst manni“

Myndbönd og upp­tökur með hljóm­sveit­inni Vínyl sem naut mik­illa vin­sælda á Íslandi á tíunda ára­tug síð­ustu aldar, hafa aftur litið dags­ins ljós en sumt af efn­inu er óút­gefið.

„Það voru allir í hljómsveit, fannst manni“

Á tíunda ára­tugnum var tón­list­ar­lífið á Íslandi afar líf­legt og hljóm­sveitir á borð við Maus, Botn­leðju og Kolrössu krókríð­andi á meðal vin­sæl­ustu sveit­anna. Tví­bura­bræð­urnir Kristinn og Guð­laugur Jún­í­us­synir voru áber­andi á sen­unni en þeir fóru fyrir rokksveit­inni Vínyl ásamt Agli Tómassyni, Arnari Snæ Dav­íðs­syni, Þórhalli Bergmann og Arnari Guð­jóns­syni.

Maðurinn á bak við tjöldin var kvik­mynda­gerð­ar­mað­ur­inn Haraldur Sig­ur­jóns­son en hann skaut og vann allt myndefni fyrir sveit­ina. Tón­list­ar­mynd­bönd og tvennir tón­leikar fóru í loftið á RÚV og Stöð 2 á árunum 1996 til 1998 en hafa ekki sést síðan þá. Allt end­aði þetta ofan í kassa þar til nú, því Haraldur og bræð­urnir hafa verið að dusta rykið af efn­inu og upp­tökum, sem hafa sumar ekki komið fyrir sjónir almenn­ings áður.

„Það var bara eng­inn vett­vangur fyrir svona hluti þá, svo þetta end­aði allt ofan í kassa og inn í geymslu í 20 ár og hefur verið þar til dags­ins í dag,“ segir Haraldur um mynd­böndin. „Þarna inn á milli eru lög með Vínyl sem hafa aldrei komið form­lega út, þannig að þetta er algjör fjár­sjóður.“

Hljóm­sveitin Vínyll var stofnuð árið 1996 af þeim bræðrum Kristni og Guðlaugi og var með vin­sælli sveitum á land­inu. Sjálfir segja þeir bræður að þetta hafi verið góður tími og gaman að taka þátt í íslensku tón­list­ar­sen­unni enda hafi hún verið fjöl­breytt og kraft­mikil.

En hvernig varð sveitin eig­in­lega til?

„Við gerðum eina plötu og vant­aði ein­hverja til þess að spila með okkur „live“, þannig að við fengum Arnar Guð­jón­son gít­ar­leik­ara og Þórhall Bergmann hljóm­borðs­leik­ara til liðs við okkur og spil­uðum saman á nokkrum tón­leikum, og fyrsta lagið okkar, Hún og þær, rataði í Blossa, kvik­mynd leik­stjór­ars Júlíusar Kemp,“ segir Kristinn um upp­haf sveit­ar­innar og bætir við að það hafi orðið nokkur skipti á með­limum hennar, eins og gengur og ger­ist, meðal ann­ars hafi Georg Hólm spilað um tíma með henni, en í dag þekki hann eflaust margir sem bassa­leik­ar­ann í Sigur Rós.

Stundum algjört rugl, en alltaf gaman

Eins og fyrr segir skaut Haraldur og vann allt myndefni fyrir sveit­ina. Spurður hvernig hafi eig­in­lega verið að vera eins og fluga á vegg hjá Vínyl og hvort hann hafi alltaf verið með mynda­vél­ina á lofti seg­ist Haraldur bara hafa hangið með vinum sínum og því legið bein­ast við að taka þetta upp.

„Ég hafði átt mynda­vél í nokkur ár og gert alls konar „stuff“, til dæmis heim­ilda­mynd­ina Ný-rokk í Reykja­vík árið 1994 og fylgt eftir sveitum eins og Sororicide, Kolrössu, Stjörnu­kisa og Pulsunni. Sem sagt hékk með vinum mínum og tók upp slatta á tón­leikum, eins og Kóparokki og í Fella­helli og ég hélt þessu bara áfram með Gulla og Kidda.“ Myndbönd með Vínyl og Jetz, sem var annað band sem bræð­urnir voru í, urðu fyrstu tón­list­ar­mynd­böndin sem hann bjó til en eftir það skellti hann sér í nám í kvik­mynda­skóla í New York.

„Það var algjört ævin­týri að hanga með bræðr­unum, enda með ein­dæmum skemmti­legir strákar. Stundum var það algjört rugl en það var alltaf gaman og alltaf mikið hlegið. 90’s-tíma­bilið var bara rosa­legt tón­list­ar­lega séð,“ segir hann. „Það voru allir í hljóm­sveit, fannst manni.“

Nú, þegar mynd­böndin og upp­tök­urnar eru að koma fyrir sjónir almenn­ings, sumt í fyrsta sinn, er ekki úr vegi að spyrja hvort Vínyll muni koma saman aftur? „Við höfum verið að vinna fullt af efni und­an­farið,“ svarar Kristinn, „þ.e. með­lim­irnir sem voru í seinni útgáf­unni af hljóm­sveit­inni sem starf­aði árunum 2002 til 2005, en þá skip­uðum við Gulli bandið og Þór­hallur Bergmann, Arnar S. Dav­íðs­son og Egill Tómasson. Hver veit nema eitt­hvað af því efni komi út í fram­tíð­inni,“ segir hann leynd­ar­dóms­fullur.

Félag­arnir eru í ítar­legra við­tali á albumm.is þar sem jafn­framt er hægt að nálg­ast upp­töku

Texti / Sigrún Guðjohn­sen

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Hann mætti ekki við þingfestingu málsins
Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Menning

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Hrósar lýsingum Laxness á íslenskri náttúru og árstíðunum
Myndband
Menning

Luthers­son frum­sýnir blóð­uga ást­ar­sögu í eyði­mörk Kali­forníu

Menning

Sendu sím­ann í svefn­poka og fáðu smá frið

Menning

Ást, missir og barn­þrá í upp­seldri skáld­sögu Mar­grétar

Menning

Frá Rocky og Springsteen til aftöku í Sádi-Arabíu