Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Fjöllistaskemmtun með fullorðinsívafi

Í kvöld verður burlesk­hóp­ur­inn Dömur og herra, sem heldur mán­að­ar­legar kab­ar­ett­sýnigar, með sér­staka bingósýn­ingu en hóp­ur­inn safnar nú fyrir ferða­lagi til New York. Margrét Dóróthea Jóns­dóttir er með­limur í sýn­ing­unni og verður bingóstjóri kvölds­ins.

Fjöllistaskemmtun með fullorðinsívafi
Margrét Dóróthea Jóns­dóttir verður bingóstjóri kvölds­ins. Mynd / Telma Geirs­dóttir|Margrét Dóróthea og Gyða Bjarka­dóttir eru báðar með­limir í burlesk­hópnum Dömur og herra. Mynd / Hrafna Jóna Ágústs­dóttir

„Sýningin og bingóið eru loka­hnykk­ur­inn í söfn­unar­átaki hóps­ins sem stefnir á burleskpíla­gríms­ferð til New York í lok maí,“ segir Margrét en hluti hóps­ins er einnig á leið á Brighton Fringe-hátíð­ina um miðjan maí. Hópurinn sam­anstendur af fólki úr ólíkum áttum en þar eru til dæmis tölv­un­ar­fræð­ingur, ljós­mynd­ari, blaða­maður, jarð­fræð­ingur og ríkj­andi dragdrottn­ing Íslands, Gógó Starr.

„Sýningin sam­anstendur af ólíkum ein­stak­lings­at­riðum sem með­limir hóps­ins hafa búið til. Kynnir kvölds­ins, Gógó Starr, heldur uppi stemn­ing­unni þar á milli og svo til að brjóta þetta upp verða nokkrir bingóleikir. Þeir verða með klass­ísku sniði, ég er sjálf bingóstjóri kvölds­ins og vinn­ing­arnir eru alls ekki af verri end­anum,“ segir hún en vinn­ingar koma meðal ann­ars frá Nexus, Valkyrie tattú­stofu, Kram­hús­inu og Kormáki og Skildi. „Þar sem sýn­ing­una ber upp á Stjörnu­stríðs­dag­inn, 4. maí, munum við sleppa fram af okkur nör­da­beisl­inu og vitna í hin ýmsu verk.“

Margrét Dóróthea og Gyða Bjarka­dóttir eru báðar með­limir í burlesk­hópnum Dömur og herra. Mynd / Hrafna Jóna Ágústs­dóttir

Seiðandi og þokka­full
Aðspurð um hug­takið burlesk segir Margrét það í sjálfu sér regn­hlíf­ar­hug­tak yfir fjöl­lista­skemmtun með full­orð­insí­vafi. „Þar er blandað saman gríni, þokka, undrum manns­lík­am­ans í öllum stærðum og gerðum, tón­list, töfrum og tæl­ingu. Það eru að sjálf­sögðu mis­mun­andi stefnur til eins og í öðrum list­greinum. Ein okkar, Maria Callista, er til dæmis fram­úr­skar­andi í því sem kallað er klass­ískt burlesk, ein­stak­lega seið­andi og þokka­full. Sjálf hef ég frekar hall­ast að nýbur­leski sem er kannski aðeins minna sexí og aðeins meira skrítið. Nördlesk er svo önnur und­ir­grein, tölu­vert nýrri af nál­inni, og þá er inn­blást­ur­inn fyrir atriðin sóttur í popp­kúltúr, sjón­varps­þætti, bíó­myndir, tölvu­leiki, hvað sem er.“

Margrét segir að hóp­inn mætti kalla ung­liða­hreyf­ingu íslensku burlesksen­unnar. „Hópurinn varð til á nám­skeiði hjá Margréti Maack fyrir rúmum tveimur árum og við pössuðum svona ljóm­andi vel saman, eins ólík og við erum inn­byrðis. Við höfum því ekki stundað þetta svo lengi og bara eitt okkar, Gógó, hefur þetta að atvinnu, svo við erum ansi frjáls í form­inu. Engu að síður höfum við brenn­andi áhuga og leggjum mik­inn metnað í sýn­ing­arnar okkar,“ segir Margrét.

„Þar er blandað saman gríni, þokka, undrum manns­lík­am­ans í öllum stærðum og gerðum, tón­list, töfrum og tæl­ingu.“

Hópurinn ákvað svo að fara saman til New York af því þar er mikil gróska í burleski. „Senan á Íslandi er frá­bær og ótrú­lega blóm­leg miðað við ungan aldur en það er hollt og gott að fara og upp­lifa eitt­hvað nýtt, sjá hvernig aðrir túlka þetta list­form og fá inn­blástur. Við njótum góðs af tengslum við vina­klúbb Reykja­vík Kabarett, The Slipper Room, þar sem burlesk er sýnt á hverju kvöldi og stefnum á að fara í tíma í The New York School of Burlesque til að bæta við okkur nýrri tækni. Þar kenna lista­menn á heims­mæli­kvarða,“ segir hún að lokum.

Sýningin verður á Húrra í kvöld og hefst kl. 21. Bingóspjald fylgir hverjum miða og hægt að kaupa fleiri á 500 kr. stykkið. Húsið opnar klukku­tíma fyrir sýn­ingu og hún er bönnuð þeim sem eru yngri en 20 ára.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Tækið er sagt geta borið fjóra fullorðna einstaklinga
Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Svipuð atvik hafa komið upp við heimili Ragnars frá árinu 2023
Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti