Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Skotheld partýförðun skref fyrir skref

Ekki alls fyrir löngu fengum við snill­ing­ana Söru Dögg Johansen og Sig­ur­laugu Dröfn Bjarna­dóttur, sem reka Reykja­vík Makeup School, til að sýna okkur sitt­hvora útfærsl­una af spari­förðun.

Skotheld partýförðun skref fyrir skref

Förðun eftir Söru

Módel / Kristín Liv Svabo Jóns­dóttir. Mynd / Aldís Páls­dóttir

„Ég ákvað að gera Halo-förðun sem er ein af mínum upp­á­halds­förð­unum. Hún er full­komin fyrir fín til­efni. Hún er mjög ein­föld og hentar öllum augn­um­gjörðum.

Ég byrj­aði á því að setja ljós­brúnan augnskugga (Birkin frá ABH) og milli­brúnan augnskugga (Red Earth frá ABH) í innri og ytri augn­krók en skildi miðj­una á augn­lok­inu eftir. Í miðj­una setti ég fal­legan sanser­aðan augnskugga sem er nýr frá NYX pro­fessional makeup og heitir Foil play í litnum French Macaron.

Glimmerið setur punkt­inn yfir i-ið.
„Ég ákvað að gera Halo-förðun sem er ein af mínum upp­á­halds­förð­unum.“

Fyrir þá sem vilja bæta við glimmeri og gera förð­un­ina örlítið ýkt­ari þá setti ég glimmerið Midnight Cowboy frá Urban Decay í miðj­una á augn­lok­inu.

Ég not­aði brúnan og svartan blý­ant í augn­hárarót­ina sem eyliner en mér finnst fal­legt að nota tvo tóna til að ná fal­legri blöndun.

Sara not­aði þessi augn­hár í förð­un­ina.

Til að ýkja augn­hárin not­aði ég svo upp­á­halds­augn­hárin mín frá Eylure sem heita Duos & Trios en þau henta öllum þar sem þú getur leikið þér með þau hvort sem þú ert að leita eftir þétt­leika, leng­ingu eða jafn­vel hvoru­tveggja.

Á húð­ina not­aði ég Away We Glow-ljómakremið frá NYX pro­fessional makeup og svo Giorgio Armani Luminous silk-farð­ann því hann gefur fal­legan ljóma. Í skygg­ingu og hig­hlight not­aði ég Born to glow- pal­lett­una frá NYX Pro­fessional Makeup. Á var­irnar not­aði ég Angel-vara­lit­inn frá MAC og nýja Shimmer Down-glossið í litnum Pink Pong frá NYX pro­fessional makeup.  Ég krull­aði svo hárið á mód­el­inu mínu með HH Simonsen Rod 4-keilu­járn­inu og setti svo sufflée-krem yfir krull­urnar til að fá þær mýkri.“

Leyni­trix Söru:

Fyrir fín til­efni finnst mér mjög mik­il­vægt að nota gott sett­ing sprey þar sem við viljum að förð­unin end­ist vel og lengi. Upp­á­halds sett­ing sprey-ið mitt er Chill frá Urban Decay, en það gefur raka og róar húð­ina. Fyrir þá sem eru með glimmer á aug­unum er ótrú­lega gott að taka pakkalím­band og dúmpa yfir glimmerið þegar við erum að fara að taka förð­un­ina af okkur í lok kvölds. Allt glimmerið fest­ist þá í lím­band­inu og við getum þá þrifið okkur eins og önnur kvöld án þess að fá glimmer út um allt and­lit.

Förðun eftir Sillu

Módel / Ragn­heiður Theodors­dóttir. Mynd / Aldís Páls­dóttir

„Hérna sýni ég smokey-förðun með smá­vegis glimmeri en smokey-förðun er mín allra mesta upp­á­halds­förðun. Mér finnst finnst rosa­lega skemmti­legt að gera hana í margs­konar útfærslum eins og til dæmis að leika mér með liti og áferðir, allt frá möttum augnskuggum yfir í sanser­aða.

Að þessu sinni ákvað ég að gera kirsu­berja­litað smokey og skreytti með mjög fín­gerðu glimmeri. Ég lagði áherslu á augun og húð­ina og ákvað því að gera frekar lát­lausar varir við. Ég byrja alltaf á að gera augun fyrst og enda á því að gera húð­ina.

Naked Cherry-augnskugga­pal­lett­una frá Urban Decay.

Í þess­ari augn­förðun not­að­ist ég við Naked Cherry-augnskugga­pal­lett­una frá Urban Decay. Ég byrja á að nota ljósan mattan lit sem fyrsta lit sem ég legg í gló­buslínu augn­s­væð­is­ins og blanda hann vel út upp á augn­beinið til að fá þessa svo köll­uðu reyk eða smokey-áferð. Næst not­aði ég tvo sanser­aða augnskugga sem voru aðeins dekkri en fyrsti lit­ur­inn og setti þá á mitt augn­lokið og nota síðan enn dekkri mattan augnskugga sem leiðir frá sanser­uðu lit­unum niður að augn­hára­rót.

Glitter Goals í litnum Multi­verse frá NYX.

Sama aðferð fer svo fram á neðra augn­s­væð­inu nema þá er gott að forð­ast að nota sanser­aða augnskugga til að missa ekki dýpt­ina í lit­unum. Ofan á augn­lokið setti ég svo ótrú­lega fal­legt, fljót­andi glimmer frá NYX pro­fessional makeup sem heitir Glitter goals liquid eyeshadow í lit sem heitir Multi­verse. Ég setti svo nóg af raka­kremi og ljómakremi undir farð­ann en ég not­aði mjög léttan farða og lagði áherslu á ljóma í húð­inni.“

Helstu vörur: Ég not­aði Naked Cherry-augnskugga­pal­lettu frá Urban Decay , NYX pro­fessional liquid eyeshadow , Creme  Cup-vara­lit frá MAC og Bobbi Brown hig­hlighter sem heitir Bronze Glow.

Myndir / Aldís Páls­dóttir

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Fólk

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina