Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Mistök sem margir gera en er mögulegt að leiðrétta

Þetta eru nokkur algeng mis­tök sem fólk gerir hvað lík­ama, sál og sam­skipti varðar. Þá er gott að vera með­vit­aður og reyna að breyta rétt.

Mistök sem margir gera en er mögulegt að leiðrétta

Líkaminn

Þú sefur of lítið. Svefn­leysi veldur þreytu, veik­indum og jafn­vel offitu. Reyndu að fara klukku­tíma fyrr að sofa.

Þú sleppir morg­un­mat. Morg­un­mat­ur­inn er oft sögð mik­il­væg­asta mál­tíð dags­ins. Borði maður morg­un­mat fara efna­skiptin strax í gang, skapið verður betra og lík­urnar á að maður fari að narta í ein­hverja vit­leysu minnka.

Þú húkir inni. Líkaminn og sálin þurfa á dags­birtu að halda. Farðu í tutt­ugu mín­útna göngutúr í hádeg­is­hléinu. Farðu í lengri göngut­úra á kvöldin og þegar þú ert í fríi.

Þú drekkur syk­ur­skerta drykki. Syk­ur­skertar vörur inni­halda oft glúkósa sem insúl­ínið brýtur niður. Á meðan insúl­ínið er upp­tekið við að brjóta niður glúkós­ann fer fitan úr matnum beint í fitu­forða lík­am­ans, að því er sér­fræð­ingar segja. Drekktu heldur vatn.

Þú borðar of lítið af græn­meti og ávöxtum. Grænmeti og ávextir inni­halda mikið af vítamínum sem gefa þér orku og trefjar fyrir dag­inn.

Þú borðar of litla fitu. Fita er ekki óvinur þinn. Sér­fræð­ingar full­yrða að ef maður úti­lokar alla fitu hætti lík­am­inn að brenna henni og bindi í stað­inn þá fitu sem fyrir er til þess að þú sveltir ekki til bana.

Þú stundar ekki lík­ams­rækt. Þú verður sterk­ari og hress­ari af því að styrkja lík­amann. Það er nóg að gera lík­ams­æf­ingar í þrjá­tíu mín­útur þrisvar sinnum í viku. Sviti og púl getur hrein­lega virkað sem gleð­i­lyf á suma.

Þú borðar of mik­inn sykur. Ef þú borðar of mik­inn sykur fram­leiðir brisið meira insúlín en við það eykst fitu­forð­inn.

Sálin

Þú lærir ekk­ert nýtt. Það er ekki bara lík­am­inn sem þarf leik­fimi til þess að vera í formi, heldur einnig heil­inn. Þjálfaðu hann með því að leysa kross­gátur, lestu bækur eða farðu á nám­skeið.

Þú ert aldrei ein. Ef þú leyfir þér stöku sinnum að fara ein í göngutúr eða sitja ein og hlusta á lækj­ar­nið slakarðu vel á.

Þú grætur sjaldan. Líkaminn losnar við streitu ef þú grætur.

Þú leyfir þér aldrei að reið­ast. Það er erfitt að ganga um með inni­byrgða reiði. Slíkt getur meðal ann­ars leitt til þung­lyndis.

Þú berð þig saman við aðra. „Allir hinir” eru ekki ham­ingju­sam­ari en þú. Hafðu hug­ann við þína eigin færni í stað þess að vera alltaf að fylgj­ast með öðrum.

Þú reynir alltaf að vera dug­leg. Þú þarft ekki að vera góð í öllu. Það er allt í lagi að vera stundum í með­al­lagi og það má alveg stundum vera drasl heima hjá þér.

Vinnan

Starfið og þú eruð eitt. Ef þú ein­beitir þér bara að vinn­unni kann þér að þykja lífið til­gangs­laust ein­hvern dag­inn. Reyndu að finna þér eitt­hvert áhuga­mál til að ein­beita þér að utan vinnu.

Þig langar til að skipta um starf. Ef þú hugsar sífellt um að skipta um starf ætt­irðu kannski að drífa í því. Sæktu um annað starf eða farðu að læra eitt­hvað.

Þú þorir ekki að biðja um hærri laun. Konur fá lægri laun en karlar. Hafðu í huga að þú ert jafn­verð­mætur vinnu­kraftur og karl­arnir í vinn­unni þinni og minntu þig á það þegar þú pantar launa­við­tal.

Tengsl við aðra

Þú slítur ekki slæmu sam­bandi. Gagnkvæm virð­ing þarf að ríkja í sam­bandi, hvort sem um er að ræða ást­ar­sam­band eða sam­band á milli vina og ætt­ingja.

Þú hefur áhyggjur af öllu. Hafðu ekki of miklar áhyggjur af vanda­málum allra ann­arra, flestum duga sínar eigin.

Þú væntir of mik­ils. Þú gætir orðið fyrir von­brigðum ef þú væntir alltaf mik­ils af bæði fólki og sam­komum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Fólk

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina