Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Hvernig er að vinna í Buckingham-höll? – Í þjónustu hennar hátignar

Breska kon­ungs­fjöl­skyldan er mikið í fréttum og feiki­lega vin­sæl þótt sumum finn­ist allt kónga­stand til­gangs­laust prjál. Engu að síður þykir mik­ill heiður og mjög fínt að starfa í Buckingham-höll en hvernig ætli sé að vinna þar?

Hvernig er að vinna í Buckingham-höll? – Í þjónustu hennar hátignar

Þegar ég bjó um hríð í Bret­landi, 1975-1976, fann ég ekki fyrir sér­lega mik­illi dýrkun á kon­ungs­fjöl­skyld­unni, enda Díana prinsessa ekki komin til sög­unnar en fjöl­skyldan var virt og vin­sæl. Breskur kunn­ingi minn sagði að það þætti mjög fínt að vinna í höll­inni og bætti glott­andi við að það fynd­ist ekki snobb­aðri mann­eskja en eld­hús­stúlka þar, sú tal­aði ekki við hvern sem væri.

Í höll­inni eru 775 her­bergi. Nítján salir, 52 her­bergi fyrir hátign­irnar og gesti þeirra, 188 starfs­manna­her­bergi, 92 skrif­stofur og 78 bað­her­bergi.

Sjálf kon­ungs­fjöl­skyldan þykir nokkuð alþýð­leg þrátt fyrir að vera háð ströngum reglum og alda­gömlum siðum. Breski háað­all­inn segir hana reyndar plebba­lega og nefnir sem dæmi morg­un­verð­ar­venjur Elísa­betar drottn­ingar og Fil­ippusar drottn­ing­ar­manns sem snæða víst morg­un­verð­inn upp úr Tupperware-dollum í stað þess að láta leggja almenni­lega á borð fyrir sig. Engan veg­inn sæm­andi að mati margra eðal­bor­inna Breta.

Aðeins þeir bestu

Í höll­inni eru 775 her­bergi. Nítján salir, 52 her­bergi fyrir hátign­irnar og gesti þeirra, 188 starfs­manna­her­bergi, 92 skrif­stofur og 78 bað­her­bergi. Þá eru ótalin and­dyri, hol og gangar. Ekki veitir af heilum her­skara starfs­fólks til að þrífa her­leg­heitin. Starfs­menn eru í kringum þús­und tals­ins og sjá um að elda, þvo og þrífa, kemba hesta, strauja rúm­föt, fægja silfur, reyta arfa og allt þar á milli. Þeir þurfa að skrifa undir trún­að­ar­yf­ir­lýs­ingu og margir fara í langa og stranga þjálfun áður en þeir fá að vinna fyrir kon­ungs­fjöl­skyld­una. Einnig er gert sér­stakt örygg­i­s­tékk á þeim og aðeins Bretar og útlend­ingar með starfs­leyfi í land­inu fá vinnu.

Allir umsækj­endur fara í gegnum strangt umsókn­ar­ferli, sumir þurfa að fara í allt að sex atvinnu­við­töl og allt ferlið getur tekið hálft ár. Fjöl­skyldan ræður ekki hvern sem er, aðeins þeir bestu fá vinnu. Þeir mega margir búast við að þurfa að vinna langan vinnu­dag. Anna­samur dagur getur staðið frá hálf­átta að morgni til ell­efu um kvöldið en inn á milli koma vissu­lega mun rólegri dagar.

Starfs­menn mega sjást, stroknir og fínir, en ekki heyr­ast, þeim er ætlað að vera í bak­grunn­inum og mega ekki draga að sér athygli. Þeir mega t.d. ekki ganga niður miðja stig­ana, heldur verða þeir að halda sig til hliðar.

Starfs­menn þurfa að skrifa undir trún­að­ar­yf­ir­lýs­ingu og margir fara í langa og stranga þjálfun áður en þeir fá að vinna fyrir kon­ungs­fjöl­skyld­una.

Skýrar reglur kveða á um hvenær dags­ins hvert verk er unnið og hversu langan tíma það tekur. Það tekur t.d. klukku­stund að strauja rúm­föt drottn­ingar og um tutt­ugu mín­útur að búa um rúm hennar dag hvern. Ekki má byrja að ryk­suga nálægt svefn­her­bergj­unum fyrr en klukkan tíu á morgn­ana til að raska ekki ró íbú­ana. Allt þarf að vera full­komið og ekkier liðið að þrífa með hang­andi hendi.

Eldhúsið er sér­kap­ít­uli fyrir sig. Þar má til dæmis ekki elda skel­fisk því með­limir kon­ungs­fjöl­skyld­unar borða hann ekki af ótta við eitrun. Drottn­ingin hatar hvít­lauk svo hann sést ekki í eld­hús­inu, starfs­fólk má heldur ekki borða hann í höll­inni. Í eld­hús­inu er að finna eins konar umferð­ar­ljós sem sjá til þess að matur ber­ist á borð á réttum tíma.

Þegar lagt er á borð nota bryt­arnir reglu­stikur og leggja diska, silf­ur­hnífa­pör og glös á nákvæm­lega rétta staði.

Hús­gögnin í sölum hall­ar­innar eru öll á sínum full­komna stað, rönd­óttum púðum er raðað lóð­rétt í sóf­ana og ryklausir lampar lýsa á hár­réttum stöðum.

Launin

Það er auð­vitað heil­mik­ill glamúr yfir því að starfa í höll­inni en flest störfin þar eru illa borguð. Sem dæmi hefur mennt­aður bryti laun í kringum 200 þús­und kr. íslenskar á mán­uði, eða á bil­inu 170.000-235.000 kr.

Inni­falið í launum margra er frítt fæði og hús­næði. Í höllu drottn­ingar er, eins og áður hefur komið fram, að finna 188 her­bergi ætluð starfs­fólki. Her­bergin eru lítil og lát­laus, í hverju þeirra er aðeins rúm, vaskur og skápur. Þeir starfs­menn sem búa utan hall­ar­innar nota sér­stakar hlið­ar­dyr til að kom­ast inn.

Þótt flestir séu á lús­ar­launum má finna nokkra vel­laun­aða starfs­menn, þar á meðal þann sem hefur stjórn fjár­mála á sínum herðum, þann sem ber höf­uð­á­byrgð á heim­il­is­hald­inu og einka­rit­ara drottn­ingar. Laun þeirra eru frá 12 milljón kr. og upp í 19 millj­ónir kr. á mán­uði.

Þjálfun

Starfs­fólkið þarf að vera vel þjálfað og afar fjöl­hæft. Þjálfunin kostar sitt og sem dæmi þarf til­von­andi bryti að borga frá einni og hálfri milljón króna til tæp­lega þriggja millj­óna króna til að læra að verða hinn full­komni bryti. Þetta eru yfir­leitt fjög­urra vikna og upp í tíu vikna nám­skeið sem verður að taka til að fá að starfa fyrir kon­ungs­fjöl­skyld­una.

Barn­fóstra Vil­hjálms og Katrínar, Maria Teresa Turrion Borrallo, útskrif­að­ist úr flottasta barn­fóstru­skóla heims, Norland. Þar lærði hún allt frá sjálfs­vörn að aðferðum til að forð­ast hryðju­verka­menn ásamt áhættu­akstri, til að vera betur í stakk búin til að vernda litlu kon­ung­legu krúttin. Hún er frá Spáni og hluti af skyldum hennar er að kenna börn­unum spænsku. Hún gætir þeirra, skemmtir þeim, sér til þess að þau hreyfi sig og borði nær­ing­ar­ríkan mat.

Barn­fóstra Vil­hjálms og Katrínar, Maria Teresa Turrion Borrallo, útskrif­að­ist úr flottasta barn­fóstru­skóla heims, Norland.

Að verða hall­ar­þjónn virð­ist kannski ekki sér­lega erfitt eða flókið en þjálfun þjón­anna tekur þó þrjú ár. „Þetta er lík­lega það sem ég hef kom­ist næst því að vera í her­þjálfun án þess að bera byssu,“ sagði fyrrum þjónn um stífa þjálfun sína í því að bursta skó, strauja ein­kenn­is­bún­inga og ótal margt fleira.

Maður myndi ætla að fólk sem hefur fengið svo góða og mikla þjálfun vinni þetta fína starf sitt alla starfsæv­ina en þannig er það ekki. Þjálfunin kemur sér víða vel og að hafa starfað í Buckingham-höll lítur óneit­an­lega vel út á fer­il­skránni. Margir þjónar hverfa til ann­arra (og trú­lega mun betur borg­aðra) starfa með þessa góðu reynslu í fartesk­inu.

Slegist um hvert starf

Ekki er sér­lega mikil starfs­manna­velta í höll­inni en það losna alltaf störf annað slagið. Sam­keppnin er þó mikil og nán­ast sleg­ist um hvert starf því marga dreymir um að vinna fyrir drottn­ingu. Einn af fyrrum brytum hennar sagði að hann hefði frá barn­æsku þráð að starfa fyrir hana. Hann skrif­aði henni meira að segja bréf þegar hann var lít­ill til að spyrja hvernig hann gæti fengið vinnu hjá henni.

Marga dreymir um að vinna fyrir drottn­ing­una.

Haft er eftir fyrr­ver­andi þjóni sem starf­aði fyrir drottn­ing­una og Filippus árum saman að starfið hafi verið sér­lega fjöl­breytt. Engir tveir dagar hafi verið eins, stundum hafi verið mikið ann­ríki og aðra daga nákvæm­lega ekk­ert að gera. Að þurfa að hafa ofan af fyrir sér annan dag­inn og þann næsta að ganga fyrir allra augum sperrtur í gull­lögðum ein­kenn­is­bún­ingi við hlið­ina á gull­vagni með drottn­ing­una inn­an­borðs væri eðli­legt í þessu starfi.

„Yðar hátign“

Starfs­fólk skal vera form­legt í klæða­burði og flestir starfs­menn eru í sér­stökum bún­ingum. Það á einnig að vera vin­gjarn­legt, kurt­eist, tala fal­legt mál og vera óað­finn­an­legt í hegðun. Það vinnur fyrir fín­asta fólk lands­ins og á að haga sér í sam­ræmi við það en það upp­sker virð­ingu og kurt­eisi á móti. Starfs­menn sem hitta drottn­ing­una verða alltaf að ávarpa hana „yðar hátign“ og ef hún réttir við­kom­andi hönd­ina tekur hann var­lega í hana og kreistir ekki eða hristir. Að hneigja sig þykir kurt­eisi en er ekki lengur skylda hjá starfs­fólk­inu.

Starfið getur verið stressandi, það þarf að vera vel vak­andi og í sínu besta formi alla vakt­ina. Líf­verðir þurfa að vera árvökulir og halda ein­beit­ingu sinni stöðugt sem getur verið stressandi. Fyrrum líf­verðir hafa sagt að erf­ið­asti hluti starfs­ins og sá flókn­asti hafi verið þegar ein­hver úr fjöl­skyld­unni fór óvænt og tal­aði við almenn­ing þar sem jafn­vel mikil mann­þröng var. Það hlýtur einnig að taka á þá þegar brot­ist er inn í höll­ina. Árið 1982 komst Michael Fagan óáreittur alla leið að dyngju drottn­ingar og sett­ist á rúm­stokk­inn hjá henni. Hún spjall­aði rólega við hann í nokkrar mín­útur áður en hann var hand­tek­inn. Fyrir rúmum mán­uði, eða í júlí á þessu ári, nán­ast upp á dag 37 árum síðar, braust 22 ára gam­all maður inn í höll­ina en var hand­tek­inn fjórum mín­útum seinna.

Vinaleg og skemmtileg

Starfið í höll­inni er ekki endi­lega alltaf auð­velt en það þýðir ekki að það sé ekki gaman að vinna þar. Margir gætu haldið að fjöl­skyldan væri bæði stíf og reglu­föst en þau eru líka vina­leg og skemmti­leg, að sögn starfs­manna, og sýna öllum kurt­eisi og virð­ingu. Þau gera vissu­lega miklar kröfur og vilja að hlut­irnir gangi vel.

Eflaust halda ein­hverjir að það saki ekki að þekkja ein­hvern í höll­inni til að fá starf þar en sú er nú ekki raunin. Í raun er betra að hafa engin tengsl því klíku­skapur hjálpar ekki, sem gefur öllum sem sækja um betra tæki­færi.

Það er heil­mik­ill glamúr yfir því að starfa í höll­inni en flest störfin þar eru illa borguð.

Stöku starfs­maður ávinnur sér vin­áttu, eins og fyrr­nefnd Rebecca Deacon sem var aðstoð­ar­kona Katrínar her­toga­ynju, en þær tvær eru góðar vin­konur. Karl prins þykir umhyggju­samur gagn­vart starfs­fólki sínu og hikar ekki við að hringja í það til að athuga hvernig því líður ef það á erfitt.

Fyrr­ver­andi bryti nefndi fal­lega per­sónu­leika og ríka kímni­gáfu þegar hann tal­aði um kon­ungs­fjöl­skyld­una og að með­limir hennar væru sér­lega ljúfir og vin­gjarn­legir.

Athyglisvert

– Starfs­menn mega ekki snerta kon­ungs­fjöl­skyld­una. Á mið­öldum trúði fólk því að kóng­ur­inn/drottn­ingin stjórn­aði í gegnum guð og væri þar af leið­andi guð líka. Og ekki mátti snerta guð.
– Kon­ungs­fjöl­skyldan reynir eftir fremsta megni að vera vist­væn og notar led-ljós víð­ast hvar í höll­inni. End­ur­vinnsla er nokkur, sér­stak­lega í hall­ar­garð­inum.
– Í gegnum ald­irnar máttu sumir starfs­menn koma með hund­inn sinn til vinnu í höll­inni en í maí 2018 var það bannað og vísað til hrein­lætis- og örygg­is­sjón­ar­miða. Þetta þótti skrítið þar sem drottn­ingin sjálf á marga corgi-hunda.
– Sumir starfs­menn verða þess heið­urs aðnjót­andi að snæða með ein­hverjum úr kon­ungs­fjöl­skyld­unni og þegar það ger­ist gilda strangar reglur. Ein þeirra er að fá sér ekki tvisvar á diskinn, það þykir afar dóna­legt.

Konunglegur jólaglaðningur

Jóla­búð­ing­ur­inn sem starfs­fólkið fær er núna keyptur í versl­un­ar­keðj­unni Tesco.

Að vinna fyrir þessa afar auð­ugu fjöl­skyldu þýðir ekki sjálf­krafa að starfs­fólkið fái háa bónusa eða dýrar jóla­gjafir.

Fyrir utan jóla­kort fá allir jóla­búð­ing, fullan af rús­ínum og kon­íaki. Sá búð­ingur var lengi vel keyptur hjá Harrods eða Fortnum & Mason en kemur nú frá versl­un­ar­keðj­unni Tesco.

Þeir sem hafa starfað lengi fyrir fjöl­skyld­una fá þó til við­bótar gjöf á borð við gjafa­kort í bóka­verslun.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Tækið er sagt geta borið fjóra fullorðna einstaklinga
Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Fólk

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Myndir
Fólk

Sögu­frægt sýslu­manns­setur við sjó­inn komið á sölu

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una