Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Aðgát skal höfð í nærveru unglings

Aðgát skal höfð í nærveru unglings

Lífs­reynslu­saga úr Vikunni

Sonur minn fermdist í vor. Ekki hefði mig grunað að það yrði svona erfitt að finna föt á hann í réttri stærð. Það í sjálfu sér væri í lagi en ekki það dónalega viðmót starfsfólks tískuverslana sem mætti okkur. Ég var stundum gráti næst í búðunum og syni mínum leið örugglega enn verr.

Sonur minn, þrettán ára, er ekki sér­lega hár í loft­inu. Frá fæð­ingu hefur hann verið rétt undir með­al­lagi og er enn minnstur í vina­hópnum sínum. Það á eftir að togna úr honum á næstu tveimur árum, veit ég, og hann er sann­ar­lega ekki óeðli­lega lág­vax­inn. Bróðir minn var lang­minnstur ferm­ing­ar­bræðra sinna á sínum tíma og tók vaxt­ar­kipp­inn sinn þegar hann var að verða sextán ára og er núna tæp­lega 1,80 á hæð. Hann var svipað hár á ferm­ing­ar­dag­inn sinn og sonur minn er núna en ég held að mamma hafi ekki lent í neinum vand­ræðum þegar hún keypti á hann ferm­ing­ar­fötin. Ég vildi að ég gæti sagt hið sama. Leitin að ferm­ing­ar­fötum á son minn hefur verið sann­kölluð þrauta­ganga og ég hef varla tölu á þeim búðum þar sem við höfum mætt dóna­legu við­móti. Að finna föt í stærð sonar mín hefur verið hreint út sagt algjör martröð og ekki síst við­brögð starfs­fólks við hæð hans.

Niðurlægjandi fataleiðangur

Nokkrum mán­uðum fyrir ferm­ing­una fórum við mæðginin í fata­leið­angur. Ég vildi vera á góðum tíma því ég er ekki týpan sem gerir allt á síð­ustu stundu. Það er líka mik­il­vægt að krakkar séu ánægðir með ferm­ing­ar­fötin sín og því mik­il­vægt að leita þar til þau réttu finn­ast. Ferm­ing­ar­mynd­irnar okkar lifa lengi með okkur og því um að gera að vera ánægður með sig á allan hátt.

Við þræddum allar ung­linga­búð­irnar í Kringl­unni og Smára­lind. Þar eru jú búð­irnar þar sem vinir hans á sama aldri kaupa sér fötin. Okkur til mik­illar furðu fundum við ekk­ert sem pass­aði á hann. Mikill meiri­hluti starfs­manna þess­ara versl­ana sýndu okkur ein­stak­lega leið­in­lega fram­komu. Eins og sonur minn vissi ekki sjálfur að hann væri lág­vax­inn var eins og starfs­mönnum búð­anna fynd­ist nauð­syn að benda honum á það um leið og þeir sögðu að ekk­ert væri til sem pass­aði á hann. Mér er sér­stak­lega minn­is­stæður einn starfs­mað­ur­inn sem gekk með okkur um alla búð og sagði við mig með reglu­legu milli­bili: „Neeei, við eigum ekk­ert svona lítið eins og á hann,“ eða: „Jaaaa, nei, ekk­ert svona lítið,“ eða: „Þetta er það minnsta sem við eigum og ég held að ekki einu sinni það passi á hann.“ Starfs­fólkið tal­aði sjaldn­ast við son minn, heldur um hann við mig sem gerði nið­ur­læg­ing­una meiri.

Strák­ur­inn minn var í algjöru upp­námi eftir þennan væg­ast sagt ömur­lega versl­un­ar­leið­angur og sagð­ist hata hvernig hann liti út, hata að vera svona lág­vax­inn. Þessi leið mín til að vera snemma á ferð með kaupin á ferm­ing­ar­fatn­aði hans mis­heppn­að­ist algjör­lega og gerði ekk­ert nema svekkja okkur mæðginin.

„Enginn svona grannur komið hingað …“

Þegar aug­lýst var að ferm­ing­ar­fötin væru komin í búðir fagn­aði ég því og hugs­aði með mér að það þýddi að eitt­hvað úrval af stærðum hlyti að vera til.

Enn á ný fórum við mæðginin í bæinn til að finna ferm­ing­ar­föt á hann. Vegna fyrri reynslu okkar nokkrum mán­uðum áður, var sonur minn ekki sér­lega áfjáður í að koma með. Við pabbi hans báðum hann um að vera jákvæðan og með opinn huga og það var dreng­ur­inn í upp­hafi ferð­ar­innar.

Ég vildi vera betur við­búin en síð­ast svo ég hringdi í ákveðna verslun í bænum til að athuga með stærðir og hvort til væru föt í núm­eri drengs­ins. Starfs­mað­ur­inn sem svar­aði í sím­ann sagði mér að versl­unin væri með lag­er­sölu á öðrum stað, þar sem góðan afslátt væri að fá og það væru pott­þétt til föt þar í þeirri stærð sem ég spurði um. Við fórum með dreng­inn beint í þessa lag­er­sölu og vorum heldur betur bjart­sýn. Að fá föt í réttri stærð og þar að auki á góðu verði, hljóm­aði vel.

Þegar við komum inn í búð­ina kom starfs­maður til okkar og bauð fram aðstoð sína. Við sögð­umst vera að leita að ferm­ing­ar­fötum. Starfs­mað­ur­inn leit á dreng­inn, mældi hann út með aug­unum og sagði svo: „Við eigum ekk­ert svona lítið, eins og á hann.“

Ég varð hissa, spurði hvort hann væri viss því ég hefði hringt á undan mér, talað við starfs­mann og spurst fyrir um þetta áður en ég kom. Mér hefði verið sagt að til væru föt í þessu núm­eri.

Þá bar að annan starfs­mann og þeir töl­uðu eitt­hvað saman. Seinni afgreiðslu­mað­ur­inn mældi dreng­inn út með aug­unum eins og sá fyrri og sagði: „Hann er mjög grannur, það hefur bara eng­inn svona grannur komið hingað inn …“ Áður en hann gat haldið áfram stopp­aði ég hann af og sagði: „Fyr­ir­gefið, en ég bara verð að segja að mér finnst þið báðir mjög dóna­legir! Þetta sem þið eruð að segja er mjög sær­andi, svona segir maður ekki við neinn sama hvort hann sé lít­ill, stór, feitur eða hvað. Hvernig væri að segja: Ég skal sjá hvað við eigum til, og gefa honum séns á að kom­ast sjálfur að því hvort eitt­hvað passi á hann eða ekki. Munum að aðgát skal höfð í nær­veru sálar.“ Því næst létum við okkur hverfa út, ekki sátt við fram­kom­una við okkur. Við gáf­umst samt ekki upp og leitin hélt áfram.

Úrbætur óskast

Ef þú ynnir í fata­verslun myndir þú segja við mann­eskju í yfir­þyngd sem væri að koma að máta föt og kaupa hjá þér: „Við eigum ekk­ert nógu stórt á þig,“ eða: „Það hefur eng­inn svona feitur komið inn í þessa búð?“ Ef þessi mann­eskja væri barnið þitt, hvernig myndir þú bregð­ast við?

Sem for­eldri vill maður sjá að börn­unum manns líði vel, hafi sjálfs­traust og séu sátt í eigin lík­ama. Ung­lingur sem er að vera full­orð­inn er á við­kvæmum aldri. Hann er að kynn­ast hver hann er, bæði í eigin augum og ann­arra. Umhverfið mótar ung­ling­inn líka, því er ekki hægt að neita.

Þegar ferm­ing­arnar nálg­ast bíða spenntir krakkar með til­hlökkun eftir þessum stóra degi í lífi þeirra. Þó að þetta sé kannski ekki mikið til­töku­mál í augum flestra for­eldra er þetta stór dagur fyrir krakk­ana. Þau eru ekki lengur börn, heldur telj­ast í full­orð­inna manna tölu og því ber að fagna.

Mig lang­aði að vekja athygli á þessu því að það er mjög mik­il­vægt hvernig við komum fram við aðra. Búð­ar­ferð­irnar okkar í aðdrag­anda ferm­ing­anna hafa hreint út sagt valdið okkur báðum miklum kvíða og ég hef gengið með tár­votan son minn út úr verslun vegna fram­komu starfs­fólks við hann.

Mig langar til að miðla þess­ari sögu sér­stak­lega með versl­un­ar­eig­endum og biðja þá um að skoða þessi mál vel og von­andi bæta úr. Það á eng­inn að þurfa að fara með tárin í aug­unum út úr nokk­urri verslun vegna dóna­legrar fram­komu afgreiðslu­fólks.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Fólk

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina