Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Konurnar sem prýddu forsíður Vikunnar á árinu

Fjöl­breyttur hópur flottra kvenna hafa prýtt for­síður Vikunnar og sagt sögur sínar á árinu sem er að líða. Nú stytt­ist í ára­mótin og þá er ekki úr vegi að taka smá upp­rifjun og líta yfir far­inn veg. Þetta er aðeins lítið brot af þeim konum sem prýddu for­síðu Vikunnar á þessu ári.

Konurnar sem prýddu forsíður Vikunnar á árinu
Stefán Einar birtir frétt með fyr­ir­sögn­inni Hæg­ir á eigna­aukn­ing­unni á mbl.is á meðan á vinnu­stöðvum stóð þann 8. nóv­em­ber.
Svona leit Vikan út þetta árið.

Kristina Skoubo Bærendsen

Hin fær­eyska Kristina Skoubo Bærend­sen skaust fram á íslenskt sjón­ar­svið í Söngvakeppni Sjón­varps­ins. Bak við fal­legt brosið leyn­ist þó mikil sorg eftir skyndi­legan föð­ur­missi. Kristina sagði sögu sína í Vikunni í apríl.

Mynd / Hallur Karlsson

„Þann 21. júní, fjórum dögum eftir að ég hafði hitt pabba í Færeyjum, var ég að fara á æfingu fyrir tón­leik­ana og var á tón­leika­staðnum með Nitu frænku minni og Finni píanist­anum mínum ásamt fimm öðrum dönskum tón­list­ar­mönnum. Evi, ein besta vin­kona mín, átti að vera þarna líka en var ekki komin og við vorum alveg að fara að hefja æfing­una. Svo mætti hún og ég sá það bara á henni að eitt­hvað hafði gerst svo ég fór til hennar því ég hélt að eitt­hvað hefði komið fyrir í hennar fjöl­skyldu. Það sást greini­lega á henni að eitt­hvað hafði komið fyrir. Þá sagði hún við mig: „Það hefur orðið slys og pabbi þinn er dáinn.“ Auðvitað var öllum brugðið og vildu allt fyrir mig gera en ég sagð­ist þurfa að fara og tala við Guð,“ sagði Kristina.

Sjá einnig: Í stað þess að und­ir­búa flutn­inga, und­ir­bjó hún jarða­för

Steinunn Stefánsdóttir

Steinunn Stef­áns­dóttir fyrr­ver­andi aðstoð­ar­rit­stjóri Frétta­blaðs­ins er í hópi þeirra kvenna er hvað lengst hafa náð í íslenskum fjöl­miðlum. Steinunn sagði Vikunni frá starfs­ferl­inum, maka­miss­inum og flakk­inu sem á svo vel við hana.

Mynd / Aldís Páls­dóttir

Sjá einnig: Tekur einn dag í einu

María Loftsdóttir og Sigrún Þórarinsdóttir

Mynd / Hákon Davíð

María Lofts­dóttir og Sigrún Þór­ar­ins­dóttir prýddur for­síðu Vikunnar í febr­úar. Þær sögðu sögu Sig­ur­veigar Þór­ar­ins­dóttur.

Þriðju­dag­inn 4. mars 2014 mætti Sig­ur­veig til vinnu á Land­spít­al­anum í Fossvogi. Þegar hún kvaddi vinnu­fé­lag­ana í lok dags benti ekk­ert til þess að hún ætl­aði sér ekki að mæta í vinn­una næsta morgun. Móðir Sig­ur­veigar, María Lofts­dóttir, seg­ist hafa hringt í Sig­ur­veigu um fimm-leytið og það hafi legið vel á henni.

„Hún var svo kát að ég hugs­aði að hún hlyti að vera að fara að gera eitt­hvað skemmti­legt. Það hvarfl­aði að mér að kannski væri hún bara að fara á stefnu­mót,“ segir María. „En þá var hún greini­lega búin að ákveða að kveðja þetta líf.“

Sjá einnig: „Þið verðið að skilja að ég get ekki lifað bara fyrir ykkur“

Gurra Hauksdóttir Schmidt

Mynd / Aldís Páls­dóttir

Vendi­punktur varð í lífi Gurru Hauks­dóttur Schmidt þegar sonur hennar, Þorbjörn Haukur, lést. Þá ákvað hún að leggja lóð sitt á vog­ar­skál­arnar og berj­ast fyrir bættum hag heim­il­is­lausra. Síðan þá hefur hún séð til þess að félagar Þor­björns af göt­unni finni að ein­hver ber umhyggju fyrir þeim. Hún sagði sína sögu í Vikunni í sumar.

„Þorbjörn lenti í mót­or­hjólaslysi árið 1992, hlaut fjórtán opin bein­brot vinstra megin og var ekki hugað líf fyrstu þrjá sól­ar­hring­ana,“ ssagði Gurra. „Svo var honum haldið sof­andi í langan tíma eftir það. Hann skadd­að­ist á vinstra fram­heila, en þar er sam­skipta­stöðin stað­sett og það breytti honum algjör­lega sem mann­eskju. Í tólf til fjórtán mán­uði sam­fleytt var hann á sterkum verkja­lyfjum, líka eftir að hann kom út af spít­al­anum og fór í end­ur­hæf­ingu. Svo var köttað á þetta og hann kom heim til okkar þá orð­inn háður þessu. Hann átti aldrei í neinum vand­ræðum með að redda sér þeim. Upp frá þessu byrj­aði hann í alvar­legum eit­ur­lyfjum.“

Sjá einnig: Sneri sorg­inni upp í sigur og berst fyrir bættum hag heim­il­is­lausra

Fimm á forsíðu

Mynd / Unnur Magna

Í sumar prýddu fimm konur for­síðu Vikunnar, þær Birna Íris, Eva Ruža, Katrín Þóra, Sædís Karen og Val­ent­ína. Í við­tali við Vikuna ræddu þær lík­ams­í­mynd, sjálfs­traust og fleira því tengt. Þær sögðu meðal ann­ars frá því hvað þær gera til að líða vel í eigin skinni og hvað þeim finnst fel­ast í góðri sjálfs­mynd, sjálfs­trausti og heilsu.

Sjá einnig: Fimm á for­síðu ræða lík­ams­í­mynd og sjálfs­traust

Jasmina Crnac

Í júlí sagði Jasmina Crnac sögu sína í við­tali við Vikuna en hún og fjöl­skylda hennar misstu allt í stríð­inu milli Serba og Króata. Saga Jasminu er mögnuð og ein­læg sem lætur engan ósnort­inn.

Mynd / Unnur Magna

„Lífið hefur ekki farið um mig blíðum höndum og ég hef gengið í gegnum alls konar. Ég hef verið barn á flótta, verið inn­flytj­andi á Íslandi, ein­stæð móðir með þrjú börn, lent í veik­indum og verið óvinnu­fær vegna þeirra og tek­ist á við marg­vís­leg verk­efni í líf­inu. En versta upp­lifun mín, sem stenst engan sam­an­burð við allt annað, er að vera á flótta. Sá sem er á flótta veit aldrei hvað morg­un­dag­ur­inn ber í skauti sér eða hvað kemur næst. Óvissan er gríð­ar­leg.“

Sjá einnig: „Næsta dag voru nágrann­arnir horfnir og sáust aldrei meir“

Helga Hrönn Óladóttir

Helga Hrönn Óla­dóttir hafði frá æsku strítt við marg­vís­legt ofnæmi en læknar gátu ekki fundið ástæðu þess að hún steypt­ist út í útbrotum, bólgn­aði öll upp og barð­ist við ofsa­kláða. Svo alvar­leg urðu ein­kennin að hún var lögð inn á gjör­gæslu til hægt væri að fylgj­ast með henni.

Mynd / Auðunn Níelsson

„Árin 2012-2015 höfðu verið mjög krefj­andi í lífi mínu og álagið sam­fellt. Dóttirin svaf lítið sem ekk­ert, fékk allar pestir og var oft veik. Ég ætl­aði að sanna mig í háskóla­nám­inu og lagði allt í það, vann sam­hliða nám­inu, söng oft í viku í kór, fylgdi syn­inum eftir í tóm­stundum og þurfti að styðja hann þar sem hann var að hefja sína grunn­skóla­göngu. Upp komu erfið mál í nán­ustu fjöl­skyldu manns­ins míns og mitt stuðn­ings­net var fyrir norðan en við hjónin bjuggum á þessum tíma fyrir sunnan. Ég skil­aði loka­verk­efn­inu mínu í Háskól­anum, fagn­aði því og svo kom skell­ur­inn,“ sagði Helga Hrönn

Sjá einnig: „Skyldi ná að kom­ast í gegnum þessa eldraun“

Anna Linda Sigurgeirsdóttir

Anna Linda Sig­ur­geirs­dóttir er ein­fætt en hjólar af krafti jafnt á racer sem tor­færu­hjólum. Hún sagði sína sögu í við­tali við Vikuna í febr­úar.

Mynd / Hallur Karlsson

„Eftir að ég misst fót­inn hélt ég að beygjan væri svo mikil í liðnum við að hjóla að ég próf­aði ekki einu sinni,“ sagði Anna Linda.

„Eitt af því sem ég ótt­að­ist alltaf var að eitt­hvað kæmi fyrir hinn fót­inn. Það er svo erfitt að treysta á gervi­fót sem aðal­fót. Þess vegna þorði ég aldrei á skíði eða hjóla. Ég tók enga áhættu hvað þetta varð­aði en núna fimmtán árum síðar braut ég mig.“

Sjá einnig: Er ein­fætt en hjólar um fjöll og dali

Eva María Hallgrímsdóttir

Mynd / Unnur Magna

Eva María Hall­gríms­dóttir í Sætum syndum prýddi for­síð­una núna í nóv­em­ber og sagði frá hvernig ýmsir í bak­ara­stétt reyndu að leggja stein í götu hennar.

„Já, mér fannst alveg greini­legt að það ætti að hræða mig. Það heyrð­ist svo ekki meira frá þessum manni en nokkrum dögum eftir að hann sendi mér þennan póst fékk ég bréf frá lög­regl­unni og í því stóð að grunur léki á að ég hefði brotið lög og ég ætti von á kæru frá Samtökum iðn­að­ar­ins, eða bök­urum.“

Sjá einnig: Með stöðu sak­born­ings í skýrslu­töku hjá lög­reglu

Tryggðu þér áskrift að Vikunni í vef­verslun

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Fólk

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina