Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Stríðshörmungar og sprunginn magi

Lífs­hlaup Krist­jáns Guð­laugs­sonar hefur verið við­burða­rík­ara en flestra Íslend­inga. Lengst af bjó hann í Noregi og starf­aði við blaða­mennsku og heim­sótti m.a. stríðs­hrjáð svæði og varð vitni að ógnum sem flestir hafa aðeins heyrt fréttir af að eigi sér stað. Nýlega gaf hann út ljóða­bók­ina Ullin brók og hangið kjöt , en þar er að finna safn ljóða frá ýmsum tíma­bilum ævi hans og þar end­ur­spegl­ast minn­ingar bæði sárar og hlýjar.

Stríðshörmungar og sprunginn magi
|Ljóðabók Krist­jáns.

Þór­bergur Þórð­ar­son segir í Bréfi til Láru að sá sem ekki verði sós­í­alisti af að kynna sér stjórn­mál sé fáviti. Ertu kannski sam­mála honum? „Já, ég er hjart­an­lega sam­mála Þórbergi,“ segir Kristján og brosir en hann er meðal þeirra sem rætt er við í heim­ilda­mynd­inni Bráðum verður bylt­ing eftir Hjálmtý Heiðdal. Þar er telft saman tveimur bylt­ing­ar­kenndum atburðum er settu svip á íslenskt sam­fé­lag árið 1970, annar var er þing­eyskir bændur sprengdu upp stífl­una í Laxá í Aðaldal en hinn var taka sendi­ráðs Íslands í Stokk­hólmi. Ellefu íslenskir náms­menn fóru inn í sendi­ráðið í 20. apríl 1970 og drógu rauðan fána að húni og lýstu yfir að sós­íal­ísk bylt­ing á Íslandi væri nauð­syn. Kristján var þeirra á meðal. Hvað gekk ykkur til?

„Hér á Íslandi var mikil óða­verð­bólga en náms­lánin héldu sér. Það varð því sífellt erf­ið­ara fyrir náms­fólk að lifa af lán­unum vegna þess pen­ing­arnir urðu minna og minna virði. Það varð til hreyf­ing meðal náms­manna sér­stak­lega á Norð­ur­löndum sem beind­ist að því að laga þessi mál. Úr varð að ákveðin var setu­mót­staða eða fólk ætl­aði að setj­ast niður í sendi­ráðunum til að mót­mæla. En við fórum aðeins lengra því við vorum svo rót­tækir.

Í stað þess að setj­ast niður fórum við inn og hentum sendi­ráðs­rit­ar­anum út. Við tókum yfir sendi­ráðið.

Þetta var­aði reyndar ekki nema tvo tíma og lög­reglan kom og tók okkur. Hún vissi ekk­ert hvað hún átti að gera við okkur en við sátum inni í ein­hverja fjóra eða fimm tíma. Sendi­herr­ann óskaði ekki eftir að neinir eft­ir­málar yrðu og bað lög­regl­una að láta okkur fara.“

Skorinn upp á tréborði í Kína

Hann brosir og það er ekki alveg laust við að glampi kvikni í augum bylt­ing­ar­sinn­ans við að rifja þetta upp. Á þessum tíma ríkti raunar mik­ill frelsis- og umbreyt­inga­andi um alla Evrópu. Vorið í Prag átti sér stað árið 1968 og lauk með inn­rás Sov­ét­manna, stúd­entar mót­mæltu í París og hin svo­kallað 1968 hreyf­ing hafði gríð­ar­leg áhrif meðal ungs fólks um allan heim. Voruð þið inn­blásnir af því öllu? „Já, við vorum það og sluppum með skrekk­inn,“ heldur Kristján áfram. „Eftir þetta flutti ég til Lundar og nam kín­versku og kín­verska sagn­fræði. Maður fær hins vegar enga vinnu við það. Mig lang­aði að kynn­ast kín­verskum komm­ún­isma, sögu lands­ins og læra tungu­málið. Ég fór svo til Kína og var þar í átta mán­uði.

Þar lenti ég í að maginn á mér sprakk. Ég var tek­inn og bund­inn niður á tré­borði og skor­inn upp með acupunktur.

Það leið nátt­úr­lega bara yfir mig um leið og þeir stungu hnífnum í mig. Þetta voru frá­bærir læknar engu að síður og gerðu allt rétt.

Það þurfti að taka burtu þrjá­fjórðu hluta mag­ans. Upp úr þessu skildi ég við þáver­andi konu mína og fór til Noregs, kynnt­ist þar konu sem ég gift­ist seinna og við bjuggum saman í þrjá­tíu ár. Stóran hluta þess tíma starf­aði ég sem blaða­maður og var frétta­stjóri á dag­blaði í Stavangri.“

Ljóðabók Krist­jáns.

Þótt friður hafi alla tíð ríkt á Norð­ur­lönd­unum voru víða umbrot á þessum árum. Þú kynnt­ist því var það ekki? „Já, ég fékk leyfi frá rit­stjór­anum til að fara til Júgóslavíu þegar stríðið var þar. Ég var í Dubrovnik og þurfti að ganga milli tveggja hót­ela, yfir brú sem þar var og hún var sprengd svo ég datt niður sjö metra, braut á mér bakið á tveimur stöðum og báða ökklana. Lá hálfan mánuð í kjall­ara sjúkra­húss­ins í Dubrovnik þar til keyrt var með mig á sendi­ferða­bíl með palli upp til Lieb þaðan sem hægt var að fljúga. Ég á þær minjar frá Júgóslavíu enda er ég heið­urs­borg­ari í Dubrovnik. Ég skrif­aði mikið um stríðið og um það sem gerð­ist í borg­inni. Þeir mátu það svo mik­ils að þeir gerðu mig að heið­urs­borg­ara.“

Pakkaði látnu barni í dagblöð

En hvernig var fyrir mann ofan af Íslandi, lengst af búsettan á Norð­ur­löndum, þekkj­andi ekki annað en frið og að mestu sak­lausan gagn­vart ofbeld­inu að koma inn í svona aðstæður? „Alveg hrika­legt,“ segir Kristján. „Ég fór líka í kúrdísku héröðin. Var að læra tyrk­nesku í Ankara um tíma og fór þaðan með rútu inn í Írak meðan stríðið geis­aði þar. Það var alveg hörmu­legt. Þeir skutu nú á okkur landamæra­verð­irnir og þá var ekki annað en að kasta sér niður í drull­una og vona að maður lifði af.

Ég man sér­stak­lega eftir konu sem ég hitti þar. Hún kom gang­andi á móti mér með barnið sitt dáið af hungri. Ég hjálp­aði henni að pakka því inn í dag­blað og grafa það.

Svona atriði sá ég á hverjum degi meðan ég dvaldi þarna. Ég var þarna bara í tvær vikur, enda mik­ill mat­ar­skortur og ég vildi ekki þiggja mat af þessu fólki. Hafði raunar litla lyst sjálfur. Mér þótti þessi reynsla engu að síður dýr­mæt og skrif­aði mikið um Kúr­distan og kúrdísku héröðin. Ég á marga kúrdíska vini úti í Noregi. En svo tekur allt enda. Það þarf að skipta um frétta­stjóra. Þeir verða gamlir og þreyttir og ég var búinn að vera það lengi að rit­stjór­inn minn bað mig að víkja. Ég gerði það fús­lega og vann sem venju­legur blaða­maður í fimm ár.“

Viðtalið í heild er að finna í nýjasta tölu­blaði Mannlífs.

Myndir / Unnur Magna

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Tækið er sagt geta borið fjóra fullorðna einstaklinga
Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Svipuð atvik hafa komið upp við heimili Ragnars frá árinu 2023
Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti