Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Crossover, alþjóðleg hönnunarsýning í London – Hlutverk hönnuðarins í samfélagi framtíðarinnar

Crossover, alþjóðleg hönnunarsýning í London – Hlutverk hönnuðarins í samfélagi framtíðarinnar

Aðsend grein frá Hönnunar- og arki­tekt­úr­deild Lista­há­skóla Íslands

Alþjóð­lega hönn­un­ar­sýn­ingin Crossover opnar 19. sept­em­ber næst kom­andi í Old Truman Brewery í London sem hluti af London Design Fair. Á Crossover sýna lista­menn frá Belgíu, Danmörku, Frakk­landi, Finn­landi, Ítalíu, Mexíkó, Svíþjóð, Sviss, Tyrk­landi, Noregi og Íslandi. Átta hönn­uðir frá Íslandi taka þátt í sýn­ing­unni en sýn­ing­ar­stjórar íslenska hlut­ans eru þær María Kristín Jóns­dóttir og Hlín Helga Guð­laugs­dóttir.

Íslensku hönn­uð­irnir sem taka þátt eru Rúna Thors fag­stjóri vöru­hönn­unar við Lista­há­skóla Íslands og Hildur Stein­þórs­dóttir stunda­kenn­ari við skól­ann en sam­starf þeirra gengur undir nafn­inu TOS, Tinna Gunn­ars­dóttir pró­fessor í vöru­hönnun við Lista­há­skóla Íslands, Björn Steinar Blu­men­stein fyrrum nem­andi og núver­andi stunda­kenn­ari við skól­ann, Theódóra Alfreðs­dóttir stunda­kenn­ari við Lista­há­skóla Íslands, Stúdíó Flétta sem sam­anstendur af Birtu Rós Brynj­ólfs­dóttur og Hrefnu Sig­urð­ar­dóttur fyrrum nem­endum við LHÍ, 1+1+1  sem er sam­starf Hugdettu frá Íslandi, Petru Lilju frá Svíþjóð og Alto+Alto frá Finn­landi, Ragna Ragn­ars­dóttir og Studio Hanna Whitehead.

Hönn­un­ar­fyr­ir­tækið Adorno stendur fyrir sýn­ing­unni en Adorno var stofnað í Kaup­manna­höfn árið 2017 af þeim Kristian Snorre Andersen og Martin Clausen. Adorno leggur upp með alþjóð­legt sam­starf sjálf­stætt starf­andi hönn­uða frá ólíkum löndum og skoðar sam­band hönn­unar, hand­verks og lista.

Í frétta­til­kynn­ingu frá Adorno í tengslum við sýn­ing­una er tekið fram að með henni sé lögð áhersla á að auð­velda sam­tal milli ólíkra menn­ing­ar­hluta heims­ins; sam­tal sem á sér upp­haf í hönnun og ákveð­inni fag­ur­fræði en kemur óhjá­kvæmi­lega til með að hafa áhrif á menn­ing­ar­lega og sam­fé­lags­lega þætti síðar meir. Með stefnu­móti alþjóð­legra hönn­uða sé hægt að gefa til kynna strauma og stefnur í hönnun ólíkra landa og end­ur­spegla þannig stöðu hönn­unar og hand­verks sam­tím­ans. Þá er einnig talað um vör­una sem safn­grip, en und­ir­tit­ill sýn­ing­ar­innar er fjöl­menn­inga­legt hönn­un­ar­ferða­lag safn­gripa (e. A cross-cultural collectible design journey). Mikil áhersla er lögð á sam­tal lista, hönn­unar og hand­verks á sýn­ing­unni og áhersla á skap­andi þátt hönn­unnar. Hug­mynda­fræði verk­anna og hönn­un­ar­ferlið sjálft er þannig meg­in­inn­tak sýn­ing­ar­innar en ekki hefð­bundin hluta­hönnun sem styðst við fjölda­fram­leiðslu og er miðuð við fjölda neyt­enda.

Þessi nálgun Adorno á hönnun end­ur­speglar þær áherslur sem sjá má á hönn­un­ar­há­tíðum og í hönn­un­ar­há­skólum víða um heim, meðal ann­ars í Lista­há­skóla Íslands en á náms­braut í vöru­hönnun er mikil áhersla lögð á að skoða ferli sem liggur að baki vöru, mögu­leg sam­fé­lags­leg áhrif sem hönnun getur haft og hvernig nýta megi hönnun til að koma ákveðnum skila­boðum á fram­færi eða vekja fólk til umhugs­unar um dag­legt líf og hvernig hvers­dags­lífið er ætíð hluti af stærra kerfi.

Nemendur kynntir fyrir fjölbreyttum tækjum og tólum

Á náms­braut í vöru­hönnun er lögð áhersla á að kynna fyrir nem­endum fjöl­breytt tæki og tól sem þau geta nýtt til að móta og miðla hug­myndum sínum á skap­andi hátt. Meðal þess sem nem­endur á náms­braut­inni hafa feng­ist við á und­an­förnum árum eru verk­efni á sviði mat­ar­hönn­unar, efn­is­rann­sókna og stað­bund­innar fram­leiðslu. Þá er lögð áhersla á að nem­endur fái þjálfun við að vinna hönn­un­ar­verk­efni í sam­starfi við stofn­anir, félög og sam­tök í sam­fé­lag­inu og hafi þannig bein áhrif inn í sam­fé­lagið, jafn­vel á meðan á námi stendur. Þegar nem­endur fá tæki­færi til að kynn­ast ólíkum efnum, til­einka sér nýja tækni, end­ur­skoða ferla og hanna kerfi eða hluti inn í ákveðið sam­hengi öðl­ast þeir færni til að nýta hönnun sem afl til umbóta og í sam­hengi við umhverfi sitt.

Sigrún Alba Sig­urð­ar­dóttir, deild­ar­for­seti hönn­unar- og arki­tekt­úr­deildar Lista­há­skóla Íslands segir meðal ann­ars: „Á Íslandi eru mögu­leikar til fjölda­fram­leiðslu tak­mark­aðir en margir ónýttir mögu­leikar í stað­bund­inni fram­leiðslu. Á náms­braut í vöru­hönnun förum við því í sam­starf við íslensk fyr­ir­tæki, með það að leið­ar­ljósi að end­ur­skoða þau ferli og kerfi sem fyrir eru. Við könnum mögu­leika á við­bótum inn í fram­leiðslu­ferlið, breyttum aðferðum eða nýt­ingu á þeim efnum sem fara til spillis í stað þess að  byrja á því að hanna hluti og leita svo að fram­leið­endum.

Okkar hug­sjón er sú að hönnun í sam­tím­anum eigi ekki að stuðla að auk­inni neyslu eða byggja á fram­leiðslu­að­ferðum sem hafa nei­kvæð áhrif á umhverfi sitt, heldur þurfi að líta á hönnun sem hluta af lausn á vand­anum. Nú á tímum lofts­lags­breyt­inga er ekki að undra að ungir hönn­uðir skuli leggja síaukna áherslu á að skoða sam­hengi þeirra hluta sem þau vinna með, leggj­ast í rann­sóknir til að nýta efni á nýjan hátt, stokka upp mann­gerð kerfi sem við höfum lengi litið á sem sjálf­gefin, og leita leiða til að skapa eitt­hvað nýtt með því að end­ur­hugsa og end­ur­nýta með umhverf­is­væn sjón­ar­mið að leið­ar­ljósi. Í Lista­há­skóla Íslands er lögð mikil áhersla á að hugsa á gagn­rýn­inn og skap­andi hátt um hið við­tekna og leita leiða til að finna skap­andi lausnir á ein­staka málum og hugsa um heild­ina út frá nýjum for­sendum.“

Hér fyrir neðan má sjá nokkur dæmi um verk­efni sem nem­endur við náms­braut í vöru­hönnun hafa unnið í sínu námi:

Signý Jóns­dóttir nýút­skrif­aður vöru­hönn­uður og Sveinn Steinar Bene­dikts­son mastersnemi í hönnun unnu að rann­sókn í sumar þar sem þau könn­uðu mögu­leika mel­gresis, en mel­gresi er ein af okkar helstu land­græðslu­jurtum. Sjónum var beint að styrk­leikum grass­ins til að auka með­vit­und almenn­ings um mik­il­vægi þess nú á tímum. Verk­efnið verður kynnt á Hönn­un­ar­mars 2020.
Silvía Sif úr nám­skeið­inu Stað­bundin fram­leiðsla. Verk­efnið var unnið í sam­starfi við Ás vinnu­stofu, Sóló hús­gögn og Segla­gerð­ina Ægi. Þekking og efni frá Sóló hús­gögnum og Segla­gerð­inni voru nýtt til að skapa vöru í Ás. Varan skyldi vera úr efnum sem yrði ann­ars hent og að hafa gott nota­gildi. Sylvía segir: „Þá vildi ég að hún væri ein­föld í fram­leiðslu en með þónokkrum og fjöl­breyttum skrefum í ferl­inu svo sem flestir hjá Ás gætu tekið þátt í að búa hana til, til að mynda við að mynd­skreyta vör­una.“
Íris Friðmey Sturlu­dóttir og Móna Lea Ótt­ars­dóttir úr nám­skeið­inu Til­rauna­stofa. „Frum­skóg­ar­gufu­bað“, úr stað­bundnum plöntum frá rækt­endum í Hruna­manna­hreppi, tómat­plöntum og rósum. Verk­efnið er inn­blásið af rúss­nesku gufu­baði og svoköll­uðu „for­est bat­hing“.
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

„Þetta er ekki bara eitthvert mál, þetta er grafalvarlegt mál,“ sagði Stefán Vagn
Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Mannlífið

Myndir
Mannlífið

Novasvellið rís á Ing­ólfs­torgi

Jólin nálgast óðfluga
Mannlífið

Opn­un­ar­veisla Bryggju­húss­ins að hefj­ast

Mannlífið

Mæður sem taka sjálfur eiga dætur sem vilja frekar fegr­un­ar­að­gerðir

Mannlífið

Hvers vegna eru börn oft að segja þessa setn­ingu?

Mannlífið

Bæj­ar­há­tíðin Í tún­inu heima stendur með miklum blóma í Mos­fellsbæ

Mannlífið

Bangsa­fé­lagið heldur upp á afmæli með stór­há­tíð og nýrri keppni