Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

„Í dag máttu vera allt, en þarft líka að vera góð í öllu“

Tón­list­ar­konan Þórunn Antonía var að senda frá sér nýtt lag, Ofur­konan og mynd­band sem hafa hlotið góðar við­tökur. Hún segir heiti lags­ins vera lýsandi fyrir sitt eigið líf þar sem hún sé nýbúin að eign­ast son og sé því orðin ein­stæð tveggja barna móðir.

„Í dag máttu vera allt, en þarft líka að vera góð í öllu“

„Valgeir Magn­ús­son, eða Valli Sport eins og hann er oft kall­aður í brans­anum, hafði sam­band fyrr á árinu og boð­aði mig á fund. Hann byrj­aði að segja að hann væri með lag og hug­mynd sem hann vildi ræða. Ég var nýorðin ólétt þarna og hand­viss um að ég væri ekki rétta mann­eskjan í verkið; því þegar maður hefur verið stimpl­aður frekar eftir útliti en hæfi­leikum eða flokk­aður sem popp­stjarna eru ekki margir að hringja með popp­lög í fartesk­inu þegar maður er með bjúg með bumbu. En svo pass­aði það fárán­lega vel saman. Valgeir var nefni­lega búinn að taka við­töl við fjöld­ann allan af íslenskum konum um þeirra reynslu­heim og það flétt­að­ist saman við lag og texta sem urðu til í okkar sam­starfi,“ segir Þórunn Antonía um nýja lagið og mynd­bandið.

Því fór svo að hún skellti sér í stúdíó ásamt Valgeiri og Ásgeiri Orra Ásgeirs­syni í Stop Wait Go. Þannig varð þessi sam­suða til, eins og hún orðar það, en texti lags­ins er ádeila á press­una sem konur setja á sig sjálfar út frá alls konar við­miðum í sam­fé­lag­inu. „Í dag máttu vera allt,“ tekur hún sem dæmi, „en þarft líka að vera góð í öllu. Ég er ekki þannig, ég er „haugur“, á jákvæðan hátt; ég elska að staldra við og njóta lífs­ins á „ómerki­legum“ augna­blik­unum. Á fínu máli kall­ast þetta víst núvit­und. En svo er ég algjör skrið­dreki þegar ég þarf að vera dug­leg,“ und­ir­strikar hún.

Þórunn Antonía var að senda frá sér nýtt lag og mynd­band. Mynd / Celeste Hope

Talandi um veru­leika kvenna þá hef­urðu verið ófeimin við að ræða ýmis mál­efni sem snúa að konum. „Veistu ég bara stend með konum. Ég er til dæmis þannig gerð að ef karl­maður kemur illa fram við mig og nælir sér strax í nýja, óska ég þess að hann komi betur fram við hana frekar en að blóta henni. Ég bara elska konur,“ segir hún. „Ég á eina litla konu sem er fimm ára og ég vil gera heim­inn að betri stað fyrir hana. Þriðja hver kona verður fyrir kyn­ferð­is­of­beldi. Á Íslandi leita konur dag­lega á neyð­ar­mót­töku vegna heim­il­is­of­beldis. Svo erum við oft svo vondar við okkur sjálfar. Við gerum landa­kort af lík­ömum okkar og merkjum rass, læri og svo fram­vegis, eins og þetta séu ein­hver óvina­svæði sem við þurfum að taka í gegn til að vera sætar og mega anda. Úff, ég þoli ekki þetta rugl,“ segir hún og bætir við að sér finn­ist konur frá­bærar, allar með tölu.

Lánsöm í lífinu

Líður þér sjálfri vel í eigin skinni? „Veistu, hefði ein­hver sagt fyrir svolitlu síðan að ég kæmi til með að verða ein­stæð móðir í dreif­býli þá hefði ég kýlt við­kom­andi. Svo varð ég ein­hleyp tveggja barna móðir og þung­lynd eftir sam­bands­slit og hélt að allt yrði ömur­legt. Nú hlæ ég að þeirri vit­leysu, því þetta er algjör draumur,“ segir Þórunn Antonía en hún flutti ásamt dóttur sinni til Hvera­gerðis fyrr á árinu og eign­að­ist þar son.

„Þetta er það besta sem gat gerst. Ég elska líf mitt.“

„Þvílík lífs­gæði. Þetta er það besta sem gat gerst. Ég elska líf mitt. Elska börnin mín og er með­vituð um hversu heppin ég er að að hafa eign­ast þau.“ Hún segir þetta ein­fald­lega sýna að maður geti vel verið fárán­lega ham­ingju­samur þótt hlut­irnir fari kannski á annan veg en maður ætl­aði og erf­ið­leikar geti á end­anum leitt mann á betri stað.

Texti / Sigrún Guðjohn­sen

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Menning

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Bókaunnendum gefst færi á að kynnast tveimur íslenskum skáldsögum og nýrri þýðingu áður en jólabókaflóðið skellur á.
Menning

Frá Rocky og Springsteen til aftöku í Sádi-Arabíu

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Menning

Sendu sím­ann í svefn­poka og fáðu smá frið

Menning

Ást, missir og barn­þrá í upp­seldri skáld­sögu Mar­grétar