Áætlað er að verkið líti dagsins ljós þann 15. október næstkomandi og mun rafnar þá ásamt fríðu föruneyti flytja plötuna í heild sinni. Fyrst í Alþýðuhúsinu á Siglufirði 15. október og síðan í heimabænum Húsavík þann 16. október á Gamla Bauk. Rafnar mun einnig koma fram á DroneYoga-viðburði Barða í Bang Gang þann 19. október á Húsavík ásamt fleira tónlistarfólki. Fæ Ör er annað myndbandið af sex sem rafnar gefur út af plötunni VODA og eru fleiri tónlistarmyndbönd væntanleg frá honum á næstu vikum.































Athugasemdir