Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Góð ráð fyrir dýraeigendur í kringum áramót

Góð ráð fyrir dýraeigendur í kringum áramót
Mynd / Unsplash / Sarandy Westfall

Í til­efni ára­mót­anna minnir Mat­væla­stofnun dýra­eig­endur á að huga vel að dýrum sínum á meðan á flug­elda­skotum stendur þar sem hávað­inn sem þeim fylgir kann að valda dýr­unum ofsa­hræðslu.

Í grein á vef stofn­un­ar­innar er fólk minnt á að almenn notkun flug­elda er leyfð frá 28. des­em­ber til 6. jan­úar frá kl. 10:00 til 22:00 og alla nýársnótt. Þá eru dýra­eig­endum gefin eft­ir­far­andi ráð:

-Hestum sem komnir eru á gjöf í hest­húsum skal gefið vel, hafa ljósin kveikt og útvarp í gangi.
-Gott er að gefa hestum vel sem eru á úti­gangi og halda þeim á kunn­ug­legum slóðum, þar sem þau fara sér síður að voða ef hræðsla grípur þá. Ef hægt er að setja hesta inn er það örugg­ast.
-Eigendur ættu helst að fylgj­ast með hest­unum ef því er komið við, eða alla vega vitja þeirra sem fyrst eftir lætin.

-Gæludýr: Í þétt­býli er best er að halda köttum alveg inni dag­ana í kringum ára­mót og hafa hunda alltaf í taumi þegar þeim er hleypt út, þó það sé bara út í garð.

-Hunda er best að viðra vel árla dags í birtu svo þeir verði þreyttir um kvöldið og ef þeir eru mjög hræddir þá gjarna viðra fyrir utan bæinn. Svo að kvöldi er mjög snjallt að viðra stutt meðan skaupið er, þá er yfir­leitt afar rólegt.

-Dýr sem sýna mikla hræðslu ber ekki að skilja eftir ein. Misjafnt er hvort hrædd gælu­dýr vilja félags­skap eig­and­ans eða hvort þau vilji skríða í felur. Ef þeim líður betur í felum skildi maður leyfa þeim það. Allra mik­il­væg­ast er að dýrin sleppi ekki út.

-Gott er að tala rólega en glað­lega við dýrin, til að sann­færa þau um að heim­ur­inn sé ekki að far­ast. Jafnvel er hægt að gefa þeim smá dýranammi meðan eða strax á eftir hvelli, svo þau tengi þessi læti ein­hverju jákvæði. Strokur og snert­ing eig­anda róar einnig flest dýr og veitir þeim styrk.

-Þegar það versta gengur yfir ber að að halda dýr­unum inni, gjarna í rými sem þau þekkja, loka og byrgja glugga og hafa tón­list í gangi. Yfir­leitt er best að hafa ljósin kveikt, til að draga úr ljósaglömpum. Fyrir hunda er jafn­væl hægt að prófa að nota eyrn­ar­tappa, sumir sætta sig við það, aðrir ekki.

-Ef ofan­greint er ekki talið nægj­an­legt, þá er gælu­dýra­eig­endum ráð­lagt að tala við sinn dýra­lækni vel tím­an­lega fyrir ára­mót og fá ráð­legg­ingar. Hægt er að fá lyf­seðil fyrir kvíða­demp­andi lyf og þá er mik­il­vægt að byrja ekki með­höndlun of seint þegar dýrið er komið í hræðslu­kast, en þá er virknin mun tak­mark­aðri. En varað er við að gefa dýrum nokkur lyf nema í sam­ráði við dýra­lækni.

-Þó hundar virð­ist rólegir skyldi ekki taka hundana með út, hvorki á brennur né til að skjóta flug­eldum. Blys og rak­ettur geta skot­ist í allar áttir og annað fólk getur stundum verið óút­reikn­an­legt, þannig að slíkt umhverfi er alls ekki hunda­vænt. Munið að hundar heyra mun betur en við. Hundur sem verður fyrir mjög slæmri upp­lifun getur borið skaða af því ævi­langt. Einnig þó hundur virð­ist rólegur getur hann í raun verið ofsa­hræddur, en bara verið í hálf­gerðu löm­unar­á­standi af hræðslu.

-Ungum dýrum sem eru að upp­lifa sín fyrstu ára­mót þarf að sýna sér­staka aðgát. Dagarnir fyrir ára­mót geta gefið vís­bend­ingu um hvað verða vill.

-Ef reynslan sýnir að dýr verður ofsa­hrætt við lætin kringum ára­mótin er ráð­lagt að byrja þjálfun fyrir næsta ár ein­hverjum mán­uðum fyrr. Hljóð af sprengjum og látum er t.d. hægt að finna á YouTube sem er hægt að venja þau við hægt og rólega, og sam­tímis nota jákvæða styrk­ingu. Of seint er að byrja slíka þjálfun nokkrum dögum fyrr og getur það gert illt verra.

-Einnig fæst hjá mörgum dýra­læknum róandi lykt ýmist í háls­bandi, eða til að setja í inns­tungu og er gott að setja slíkt upp ekki seinna en 2 vikum fyrir ára­mót.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Tækið er sagt geta borið fjóra fullorðna einstaklinga
Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Svipuð atvik hafa komið upp við heimili Ragnars frá árinu 2023
Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti