Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

„Lífið alltaf að rétta mér skemmtileg verkefni“

Söng­konan Guðrún Óla Jóns­dóttir, alltaf kölluð Gógó, heldur tón­leika í Linda­kirkju í Kópavogi, í kvöld, 6. sept­em­ber klukkan 20. Hún elskar stórar ball­öður, segir að ekki skemmi fyrir ef þær séu svo­lítið dramat­ískar í ofaná­lag og text­inn um til­finn­inga­lausa óþokka.

„Lífið alltaf að rétta mér skemmtileg verkefni“
Guðrún Óla Jóns­dóttir heldur ein­söngs­tón­leika í Linda­kirkju í kvöld|

„Þetta eru tón­leikar með lögum úr ýmsum áttum en fólk má búast við stórum ball­öðum sem til dæmis Barbra Streisand, Whitney Houston, Haukur Morthens og fleiri hafa gert frægar,“ segir Gógó. „Ég reyni kannski að lauma inn smá­stuði en þetta verður nú engin upp­hitun fyrir djamm í mið­bænum heldur meira nota­leg kvöld­stund þar sem alls konar dæg­urperlur verða fluttar. Óskar Ein­ars­son verður með mér og spilar á flygil­inn. Hann er á við heila hljóm­sveit og ég er enda­laust þakk­lát fyrir að hafa hann mér við hlið í þessu tón­leika­brölti mínu, þriðja árið í röð. Svo verður Eyjólfur Krist­jáns­son, Eyfi, sér­stakur gestur. Það er mjög gaman að Eyfi ætli að vera með, því hann var tón­list­ar­stjóri í fyrstu nem­enda­sýn­ing­unni sem ég tók þátt í og er frá­bær tón­list­ar­maður.“

Þetta er þriðja árið í röð sem Gógó heldur ein­söngs­tón­leika í Linda­kirkju. „Fyrsta árið hélt ég í raun bara tón­leik­ana fyrir sjálfa mig, þeir voru svona á bucket-list­anum en þeir heppn­uð­ust svo vel að ég ákvað að end­ur­taka leik­inn í fyrra og það sama er uppi á ten­ingnum í ár.“

Gógó byrj­aði að syngja þegar hún var í Fjöl­brauta­skól­anum í Breið­holti þar sem hún byrj­aði í kór og tók þátt í árs­há­tíð­ar­sýn­ing­unum sem voru settar upp á hverju ári, fór til dæmis með aðal­hlut­verkið í Litlu hryll­ings­búð­inni sem var sett upp í Íslensku óper­unni 1995 og sigr­aði hæfi­leika­keppn­ina Stjarna morg­un­dags­ins sem Gunnar Þórð­ar­son stóð fyrir á Hótel Íslandi 1996. Að auki söng hún aðeins inn á plötur og í bak­röddum. „Ég tók mér síðan langt hlé frá söngnum þar til ég byrj­aði í Kór Linda­kirkju árið 2011 þar sem ég hef sungið síðan, bæði með kórnum og sem ein­söngv­ari. Við syngjum mikið gospel og það er geggjað; mikil útrás og ótrú­lega gef­andi, enda er gospel enda­laus upp­spretta fyrir nær­ingu and­ans. Ég er nýkomin frá Akureyri þar sem ég var gesta­söngv­ari hjá Gospel­röddum Akur­eyrar ásamt drottn­ing­unni Andreu Gylfa­dóttur sem var alveg meiri­háttar. Lífið er alltaf að rétta mér ein­hver skemmti­leg verk­efni.“

„Við syngjum mikið gospel og það er geggjað; mikil útrás og ótrú­lega gef­andi, enda er gospel enda­laus upp­spretta fyrir nær­ingu and­ans.“

Gógó sendi nýlega frá sér lag sem ekki er ólík­legt að verði flutt á tón­leik­unum. „Við Óskar hitt­umst um dag­inn til að æfa fyrir tón­leik­ana og okkur datt í hug að taka upp eitt lag. Það heppn­að­ist svo vel að það þurfti bara eina töku til. Þetta er lagið Goodbye Yellow Brick Road eftir Elton John en í tölu­vert öðru­vísi útgáfu en fólk á að venj­ast,“ segir hún ánægð og heldur áfram: „Þótt ég hafi verið að syngja hádramat­ískar ball­öður á tón­leik­unum mínum hef ég líka reynt að koma fólki til að hlæja á milli laga. Ég vil hafa and­rúms­loftið svo­lítið heim­il­is­legt og afslappað og ég held að fólk fari út úr Linda­kirkju með bros á vör og hlýju í hjart­anu. Hingað til hefur alla vega bæði verið hlegið og grátið og allt þar á milli.“

Mynd / Unnur Magna

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Tækið er sagt geta borið fjóra fullorðna einstaklinga
Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Svipuð atvik hafa komið upp við heimili Ragnars frá árinu 2023
Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti