Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

„Ólýsanleg tilfinning að sjá regnbogann alls staðar á lofti“

Hinsegin dagar fagna 20 ára afmæli í ár. Gunn­laugur Bragi Björns­son, vara­borg­ar­full­trúi og for­maður Hinsegin daga, segir að af því til­efni og þess að 50 ár skuli vera liðin frá Stonewall-upp­reisn­inni svoköll­uðu komi hátíð­ar­höldin í ár til með að verða umfangs­meiri en áður.

„Ólýsanleg tilfinning að sjá regnbogann alls staðar á lofti“
Helga Katrín Stef­áns­dóttir við drag­ster­inn Batman. Ingólfur Arn­ars­son er eig­andi þessa trylli­tækis. Vélin er 11

„Í ár erum við að fagna 20 ára afmæli Hinsegin daga, þ.e. sam­felldri tveggja ára­tuga sögu hinsegin hátíða í Reykja­vík og minn­umst einnig þess að 50 ár eru liðin frá Stonewall-upp­reisn­inni í Krist­ó­fer­stræti í New York, en upp­haf Pride-hátíða er gjarnan tengt við þann atburð,“ segir hann og bætir við að vegna þess­ara tvö­földu tíma­móta verði dag­skráin lengri. Þannig standi hún í tíu daga, frá 8.-17. ágúst, og fjöl­breyttir við­burðir í boði, drag­keppni, tón­leikar, uppi­stand og margt fleira.

Gunn­laugur Bragi Björns­son, for­maður Hinsegin daga.

Gunn­laugur segir að á þessum við­burðum verði Stonewall að sjálf­sögðu minnst eins og hægt er og horft til þess árang­urs sem náðst hefur á síð­ustu 50 árum en einnig á þeim 20 árum sem Hinsegin dagar hafa verið haldnir í Reykja­vík. „Það hefur gríð­ar­lega margt breyst hvað varðar rétt­indi og sýni­leika hinsegin fólks á und­an­förnum árum, hvort sem við horfum til þeirra 50 ára sem liðin eru frá Stonewall-upp­reisn­inni, frá því að Samtökin ’78 voru stofnuð árið 1978 eða til þeirra 20 ára sem Hinsegin dagar hafa verið haldnir í Reykja­vík. Sýni­leiki hinsegin fólks hefur stór­auk­ist, umburð­ar­lyndi og frelsi sömu­leiðis. Þá hafa fjöl­margar laga­legar úrbætur verið gerðar hér á síð­ustu árum og ára­tugum, nú síð­ast með nýjum lögum um kyn­rænt sjálf­ræði sem sam­þykkt voru fyrr á árinu.“

Stærsta útihátíð landsins

Hann segir að hvað Hinsegin daga varði hafi hátíðin vaxið og dafnað svo um munar. „Árið 1999 var haldin Hinsegin helgi á Ing­ólfs­torgi, ári síðar gengu nokkur þús­und hina fyrstu gleði­göngu en í dag sjáum við margra daga mann­rétt­inda-, menn­ingar- og mar­breyti­leika­há­tíð sem endar með stærstu úti­há­tíð lands­ins,“ segir hann glaður í bragði og getur þess að sýni­leiki Hinsegin daga og sá mikli gesta­fjöldi sem hátíð­ina sæki hafi spurst víða, langt út fyrir land­stein­ana. Hinsegin dagar séu til að mynda stundum nefndir „the big­gest small Pride in the world“ úti í heimi enda þekk­ist ekki ann­ars staðar að upp undir þriðj­ungur þjóðar mæti til slíkra hátíða­halda hinsegin fólks.

Einstakt að upplifa alla þessa samstöðu

Sjálfur seg­ist Gunn­laugur hafa séð fyrstu Gleði­göng­una árið 2010. Tveimur árum síðar hafi hann gerst sjálf­boða­liði á Hinsegin dögum og svo tekið sæti í stjórn Hinsegin daga árið 2013, fyrst sem gjald­keri til árs­ins 2018 og for­maður eftir það. Það hafi þó ekki verið fyrr en 2015 sem hann gekk sjálfur í fyrsta skipti en það ár tóku full­trúar stjórnar Hinsegin daga í fyrsta sinn form­lega þátt í Gleði­göng­unni.

„Stóri dag­ur­inn er svo alltaf ákveðið gæsa­húð­ar­mó­ment en um leið svaka­legt spennu­fall.“

Sú hefð hefur hald­ist frá þeim tíma og hann því gengið fjórum sinnum hér heima en auk þess í göng­unni í Kaup­manna­höfn og í New York. Stemn­ingin í Reykja­vík í kringum Hinsegin daga og Gleði­göng­una sé ansi mögnuð og í raun engu lík.

„Stóri dag­ur­inn er svo alltaf ákveðið gæsa­húð­ar­mó­ment en um leið svaka­legt spennu­fall. Það er bara ólýs­an­leg til­finn­ing að ganga um mið­borg­ina, sjá regn­bog­ann á lofti alls staðar og alla þá gleði og sam­stöðu sem mynd­ast.“

Gleðigangan tímaskekkja?

Gunn­laugur seg­ist reyndar oft vera spurður að því hvort Gleði­gangan og Hinsegin dagar skipti enn máli, hvort þetta sé ekki orðið tíma­skekkja. Hvort tveggja sé enn mjög mik­il­vægt því þótt margt hafi áunn­ist megi margt betur fara. „Í ár ræðum við til dæmis stöðu hinsegin fólks á atvinnu­mark­aði sem lítið hefur verið rætt hér ólíkt því sem ger­ist víða í nágranna­löndum okkar. Enn heyrum við af ungu fólki sem fær ekki að vera það sjálft í for­eldra­húsum auk þess sem hinsegin ung­menni eru lík­legri til sjálf­skaða en jafn­aldrar þeirra. Enn fáum við fréttir af ofbeldi, mis­munun og öráreiti sem hinsegin fólki verður fyrir hér­lendis. Það er hlut­verk Hinsegin daga og Gleði­göng­unnar að benda á það sem betur má fara um leið og við fögnum því sem hefur áunn­ist.“

Umsjón / Roald Eyvinds­son og Ragn­hildur Aðal­steins­dóttir

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Tækið er sagt geta borið fjóra fullorðna einstaklinga
Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Svipuð atvik hafa komið upp við heimili Ragnars frá árinu 2023
Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti