Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Tónlistin kom á undan tungumálinu

Ragn­heiður Erla Björns­dóttir er ungt tón­skáld sem vakið hefur athygli fyrir tón­smíðar sínar, meðal ann­ars í flutn­ingi list­hóps­ins Hlökk sem hún er einn með­lima í. Ragn­heiður lætur þó ekki nægja að semja tón­list hún er einnig með masters­próf í rit­list og segir orðin jafn­stóran hluta af verkum sínum og tón­ana.

Tónlistin kom á undan tungumálinu

Eins og vera ber í upp­hafi sam­ræðna tveggja Íslend­inga sem ekki þekkj­ast byrja ég á að spyrja Ragn­heiði hvaðan hún sé af land­inu. „Ég er upp­runa­lega úr Skaga­firð­inum,“ segir Ragn­heiður glað­lega. „En ég ólst upp hér og þar, í Þýska­landi, á Egils­stöðum og í Mos­fellsbæ. Pabbi var í dýra­lækn­is­námi í Þýska­landi og varð svo hér­aðs­dýra­læknir fyrir austan, þannig að við fluttum mikið vegna vinnu hans.“

Ragn­heiður virð­ist hafa kunnað vel við að flakka milli staða því eftir stúd­ents­próf lagð­ist hún sjálf í flakk í nokkur ár. „Ég hef búið á Spáni, í Banda­ríkj­unum, á Sri Lanka og í Skotlandi, en bý núna í Vín­ar­borg,“ útskýrir hún. „Það hentar mér vel að vera dálítið hreyf­an­leg.“

Tónlistin það eina sem læknaði grátköstin

Hvernig byrj­aði tón­list­ar­fer­ill­inn? „Hann byrj­aði strax úti í Þýska­landi þegar ég var barn,“ segir hún. „Ég var með mikið exem þegar ég var barn og það eina sem róaði mig þegar ég fékk köstin var að hlusta á tón­list. Ég fékk oft mikil grát­köst og klór­aði mér ofsa­lega en ef mamma setti tón­list á fón­inn hætti ég, þannig að hún setti mig í öll tón­list­ar­prógrömm sem hún fann. Þannig byrj­aði það.“

„Ég fékk oft mikil grát­köst og klór­aði mér ofsa­lega en ef mamma setti tón­list á fón­inn þá hætti ég…“

Spurð á hvaða hljóð­færi hún hafi lært sem barn segir Ragn­heiður að þau hafi nú verið nokkur. „Ég lærði á fiðlu upp­haf­lega,“ segir hún. „Síðan á básúnu og þver­flautu og svo glamra ég á píanó pg gítar þegar ég er að semja. Þegar kom að því að fara í háskóla­nám fór ég í tón­smíðar í Lista­há­skól­anum hjá Hróðmari Inga Sig­ur­björns­syni.“

Ragn­heiður Erla Björns­dóttir hefur vakið athygli fyrir tón­smíðar sínar.

Flestum hefði senni­lega þótt þetta nóg en þegar kom að því að velja masters­nám ákvað Ragn­heiður að fara í rit­list í Háskóla Íslands og útskrif­að­ist þaðan í hitteð­fyrra. Hún yfir­gaf þó ekki tón­list­ina á meðan. „Ég var að rann­saka tengsl texta og tón­listar,“ útskýrir hún. „Svo var ég í Aberdeen í Skotlandi í skipti­námi sem hluta af nám­inu í Háskól­anum.“

Samdi lög í röðinni í skólanum

En hvenær byrj­að­irðu að semja tón­list? „Ég samdi mikið sem krakki,“ segir Ragn­heiður. „Alls konar lög. Og ég man eftir mér tíu ára að semja lög og glamra þau á hljóð­færin. Þegar ég beið í röð í skól­anum samdi ég alltaf lag­línur í höfð­inu og setti saman ljóð við þær. Þegar ég byrj­aði svo að læra tón­smíðar á háskóla­stigi um tví­tugt lærði ég meira um hvernig maður getur nýtt tækn­ina til að semja tón­list.“

Spurð hvernig tón­list hún semji hugsar Ragn­heiður sig um dálitla stund og segir svo að hún sé af ýmsum toga. „Ég er í alls konar verk­efnum,“ útskýrir hún. „Ég hef verið að semja tón­list fyrir stutt­myndir og kvik­myndir, fyrir dans­verk og þar fyrir utan sem ég mína eigin tón­list þar sem ég vinn mikið með rödd­ina, bý til raddskúlp­t­úra þar sem ég er að rann­saka íslensku, tek tungu­málið í sundur og bý til hljóð­smíðar úr því þar sem ég bræði það aftur saman með aðferðum tón­smíð­anna. síðan nýti ég text­ann til þess að búa til ljóða­spuna og alls konar. Þannig að, já, þetta myndi flokk­ast undir nútímatón­list.“

Og syng­urðu sjálf? „Já, stundum,“ segir Ragn­heiður. „Ég er experimental söng­kona en ég sem mest fyrir aðra.“

Hulduhljóð, ekki bara tónlistarplata

Fyrir jólin gaf list­hóp­ur­inn Hlökk sem Ragn­heiður myndar ásamt tveimur vin­konum sínum, út plöt­una Huldu­hljóð sem vakti mikla athygli og hlaut meðal ann­ars Kraumsverð­launin. Hvernig kom þetta sam­starf þeirra þriggja til? „Við erum þrjú tón­skáld sem kynnt­umst í Lista­há­skól­anum,“ segir hún. „Hinar eru þær Lilja María Ásmunds­dóttir og Ingi­björg Ýr Skarp­héð­ins­dóttir. Við Ingi­björg vorum að læra tón­smíðar og Lilja á píanó og við bjuggum til list­hóp­inn Hlökk til þess að slaka á og skapa á okkar eigin for­sendum án þess að það væri aðal­náms­greinin okkar. Ég söng og Lilja spil­aði á fiðlu og Ingi­björg á píanó og við unnum fyrst mikið með þjóð­lög. Núna hefur þetta þró­ast meira í ein­hvers konar list­hóp þar sem við nýtum líka aðrar list­greinar til að miðla tón­list á breið­ari hátt. Þá vinn ég mikið með rit­list og Lilja er líka mynd­list­ar­kona þannig að við njótum góðs af því. Plötunni Huldu­hljóðum fylgir mynd­ræn plata sem bygg­ist að nokkru leyti á hljóð­færi sem Lilja smíð­aði og nefndi Huldu. Hljóð­færið Hulda er ljós- og hljóðskúlp­túr, ef strengur er plokk­aður birt­ist ljós úr Huldu. Innan í hljóð­fær­inu getur Lilja stjórnað ljós­unum með örtölvu sem er sniðin sér­stak­lega fyrir Huldu. Platan hefur Huldu í for­grunni, eins og nafnið gefur til kynna, en þar er auð­vitað líka spilað á langspil og píanó.“

Einhvern veg­inn hafði það kom­ist inn í höfuð blaða­manns­ins að platan héti Huldu­ljóð og Ragn­heiður við­ur­kennir hlæj­andi að það sé algengur mis­skiln­ingur. „Margt fólk heldur að þetta séu Huldu­ljóð,“ segir hún. „En það eru sem sagt ljóð eftir mig á plöt­unni en þau eru ekki huldu­ljóð, heldur má heyra hljóð frá Huldu, hljóð­fær­inu, á plöt­unni.“

Platan fékk mjög góða dóma, eins og áður sagði, og Ragn­heiður segir það hafa verið ótrú­lega skemmti­legt að hljóta þá við­ur­kenn­ingu sem Kraumsverð­launin eru. „Þetta verk­efni okkar byrj­aði árið 2017 þegar Ingi­björg samdi verk fyrir Huldu, píanó og langspil og síðan hefur þetta þró­ast í gegnum árin. Við tókum tón­list­ina upp fyrst og svo bætt­ust ljóðin við og síðan mynd­ræna platan og það gerð­ist allt bara nátt­úru­lega. Ég myndi segja að platan hafi gengið betur en ég þorði að vona,“ segir Ragn­heiður og brosir út að eyrum.

Semur tónlist sem tengist stjarneðlisfræði

Ragn­heiður býr í Vín­ar­borg þar sem hún vinnur fulla vinna sem tón­skáld og seg­ist kunna alveg svaka­lega vel við sig. „Ég er í alls konar verk­efnum hérna. Sem fyrir alls konar grúppur bæði hér og í Þýska­landi. Svo syng ég líka mikið sjálf,“ segir hún kát. „Núna er ég til dæmis að semja fyrir þýskan háskóla. Það er verk­efni sem teng­ist stjörnu­fræði og ég vinn það með stjarneðl­is­fræð­ingi við að finna ein­hvers konar brú á milli tón­listar og stjarneðl­is­fræði. Áhorf­endur koma inn, hlusta á hálf­tíma­fyr­ir­lestur um stjarneðl­is­fræði og svo er verkið mitt spilað og síðan fara allir upp á þak að skoða stjörn­u­rnar. Þannig að á meðan verkið mitt heyr­ist skoðar fólkið sem er að hlusta stjörn­u­rnar í leið­inni.“

„Það er verk­efni sem teng­ist stjörnu­fræði og ég vinn það með stjarneðl­is­fræð­ingi við að finna enhvers konar brú á milli tón­listar og stjarneðl­is­fræði.“

Spurð hversu stóran þátt rit­listin eigi í vinnu­degi hennar, hvort hún sé að skrifa eitt­hvað fleira en ljóðin sem hún notar í raddskúlp­t­úra og tón­verk, dregur Ragn­heiður aðeins við sig svarið. „Já, ég skrifa nú ýmis­legt,“ segir hún svo. „En ég vinn mest með ljóðin og þá helst á for­sendum tón­list­ar­innar. Ég hef mikið verið að rann­saka sögu texta og tón­listar, líka á tauga­fræði­legum for­sendum, það hvernig tón­list og tungu­mál virka á heil­ann og ég hef verið að rann­saka frum­tón­list Darwins, hvernig við vorum með frum­tón­list­ar­legt tungu­mál áður en tungu­málið í hefð­bundnum skiln­ingi varð til. Hvernig tón­listin hafi mögu­lega komið á undan tungu­mál­inu og ég vinn mikið með það í verk­unum mínum.“

Ragn­heiður býr í Vín­ar­borg þar sem hún vinnur fulla vinna sem tón­skáld og seg­ist kunna alveg svaka­lega vel við sig.

Hefurðu alltaf haft svona mik­inn áhuga á vís­indum? „Já, eig­in­lega,“ segir Ragn­heiður hugsi. „Mér finnst eig­in­lega skemmti­leg­ast að skapa út frá vís­inda­legum for­sendum. Þannig að ég byrja á að rann­saka og kveikjan að verk­unum mínum verður oft­ast til út frá því.“

Doktorsnám í tónsmíðum næst á dagskrá

Spurð um sína per­sónu­legu hagi, hvort hún eigi mann og börn og svo fram­vegis fer Ragn­heiður aftur að hlæja. „Nei, ég er bara ein að dingla mér í Vín­ar­borg,“ segir hún. „Ég hef verið mjög tengd Aust­ur­ríki síð­ustu sex árin, hef unnið hér í alþjóð­legum tón­list­ar­búðum fyrir ungt fólk á aldr­inum sextán til tutt­ugu og eins árs þar sem við notum tón­list til þess að sam­eina fólk og fá það til að tala um sam­fé­lagið og vekja sam­fé­lags­lega hugsun. Þarna er ungt fólk frá fjöru­tíu löndum sem kemur saman, allt tón­list­ar­fólk og þar hef ég kennt tón­smíðar og söng síð­ustu sex árin. Þannig að ég ákvað í júní síð­ast­liðnum að flytja bara til Aust­ur­ríkis fyrst ég var svona mikið hérna hvort eð var.“

Og hvernig kanntu við þig í Vín­ar­borg? „Ég elska að vera hérna,“ segir Ragn­heiður glað­lega. „Hér er mjög skemmti­legt lista­sam­fé­lag, ótrú­lega mikið af tæki­færum og gott að vera tón­skáld hérna og líka gaman að vera flytj­andi. Vín­ar­borg er svo ofboðs­lega fal­leg borg og mjög þægi­legt land­fræði­lega séð að vera hérna því ég er svo nálægt öllu. Ég get gengið nán­ast allt sem ég þarf að fara innan borg­ar­innar og ef ég þarf að taka lest til ann­ars Evr­ópu­lands þá er það mjög stutt ferða­lag.“

Hvernig eru plönin fyrir nán­ustu fram­tíð? „Núna set ég stefn­una á dokt­ors­nám í tón­smíðum hérna í Vín­ar­borg,“ segir Ragn­heiður. „Það er næsta stóra verk­efni og stefnan er að hefja námið næsta haust en þangað til er ég bara í ýmsum verk­efnum, er að semja og semja í ólíkum löndum og reyni líka að ferð­ast smá­vegis mér til skemmt­unar.“

Mikilvægt að eiga fyrirmyndir

Íslensk tón­skáld hafa verið mikið í sviðs­ljós­inu und­an­farið þegar Hildur Guðna­dóttir sópar til sín hverjum stór­verð­laun­unum af öðrum fyrir kvik­mynda­tón­list sína, hefur árangur Hildar gert það auð­veld­ara fyrir önnur íslensk tón­skáld að koma sér á fram­færi? „Það er alla vega mikil inn­spýt­ing,“ segir Ragn­heiður ein­læg. „Og inn­blástur líka. Það er frá­bært að sjá þegar öðrum gengur vel. Það hvetur mann til dáða og sýnir manni að þetta er hægt. Þannig að það er klár­lega eitt­hvað sem skiptir miklu máli. Enda skiptir öllu máli að hafa fyr­ir­myndir.“

Væri það eitt­hvað sem þú gætir hugsað þér að hasla þér völl í? Dreymir þig um að fara til Hollywood og semja tón­list­ina við margra millj­arða króna kvik­myndir sem fá alþjóð­lega dreif­ingu? „Ja, nei, það er ekk­ert sem ég hef sér­stakan áhuga á,“ segir Ragn­heiður. „Ég hef alla vega ekk­ert hugað að því. En maður myndi kannski ekki segja nei við slíku til­boði. Mér finnst það sem Hildur er að gera ótrú­lega flott og fagna þess­ari ótrú­legu vel­gengni hennar.“

Myndir / Georg Cizek-Graf, Owen Fiene og saLeh roZati

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Fólk

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina