Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Inn og út af gjörgæslu, engin greining, stanslaus barátta

Inn og út af gjörgæslu, engin greining, stanslaus barátta

Eva Ásrún Alberts­dóttir hefur aldrei verið hrædd við að taka U-beygjur í líf­inu, hefur starfað sem ljós­móðir lengi, verið þátta­stjórn­andi í útvarpi og sjón­varpi, rekstr­ar­stjóri Jarð­bað­anna við Mývatn auk þess að vera vin­sæl söng­kona og er nú, rúm­lega sex­tug að ljúka masters­námi sem RIM-leið­bein­andi. Þessi síð­asta kúvend­ing er afleið­ing af alvar­legum veik­indum sonar hennar sem stóðu yfir í þrjú ár og mættu for­dómum innan heil­brigð­is­kerf­is­ins.

„Engin sjúk­dóms­grein­ing fékkst og þetta var bara algjör martröð,“ segir Eva Ásrún í við­tal­inu. „Sonur minn fékk þessi hræði­legu verkja­köst sem stóðu upp undir fimm tíma og engin lyf virk­uðu á og á end­anum þurfti að flytja hann inn á gjör­gæslu og svæfa hann. Ég lendi þarna strax í bar­áttu þar sem við upp­lifðum for­dóma innan heil­brigð­is­kerf­is­ins. Tek það fram að hann hafði alveg ynd­is­legan, ábyrgan lækni sem er algjör­lega frá­bær, en það voru ansi miklir for­dómar fyrir þessum veik­indum vegna þess að það vissi eng­inn hvað olli þeim og sumir drógu þá ályktun að þetta væri eitt­hvað geð­rænt. Á einum punkti var hann sendur heim en var svo kom­inn sam­dæg­urs aftur niður á gjör­gæslu, til dæmis. Ég átt­aði mig á því að ég var komin í stans­lausa bar­áttu og gat ekki vikið frá honum, ég gisti margar nætur á spít­al­anum.

„Eftir að hann hafði verið að lenda inn og út af gjör­gæsl­unni nokkrum sinnum end­aði það með því að einn lækn­ir­inn þar bara snapp­aði og ákvað að það ætti að leggja dreng­inn inn á bráða­geð­deild.“

Lækn­arnir voru allir af vilja gerðir að leita en þeir bara fundu ekki neitt. Og þegar ekki er vitað hvað er að verða hlut­irnir fyrst vanda­samir því þá veit eng­inn hvað á að gera við hann. Eftir að hann hafði verið að lenda inn og út af gjör­gæsl­unni nokkrum sinnum end­aði það með því að einn lækn­ir­inn þar bara snapp­aði og ákvað að það ætti að leggja dreng­inn inn á bráða­geð­deild. Það hefur aldrei verið neitt að honum geð­rænt svo við for­eldr­arnir sögðum bara þvert nei og hann sam­þykkti það heldur ekki sjálfur. Lækn­ir­inn hans var erlendis á þessum tíma og lækn­ir­inn sem var á vakt á hjarta­deild­inni, eftir að hann var sendur þangað, tók ekki vel á móti honum þannig að honum fannst hann vera óvel­kom­inn, enda fékk hann þau skila­boð að hann væri að taka pláss frá öðrum og ætti bara að vera á geð­deild­inni. Hann vildi eðli­lega ekki vera þarna og fór heim dag­inn sem hann var útskrif­aður af gjör­gæslu, sem ger­ist auð­vitað aldrei. Í fram­hald­inu var hann svo inn og út af bráða­mót­tök­unni og var mjög alvar­lega veikur í þrjú ár.“

Eva Ásrún Alberts­dóttir er á for­síðu Vikunnar þessa vik­una.

Í for­síðu­við­tali Vikunnar í dag sem komin er í versl­anir rekur Eva Ásrún fram­hald sög­unnar og hvernig þessi við­brögð heil­brigð­is­kerf­is­ins leiddu hana inn í námið sem RIM-leið­bein­andi sem hún er nú að ljúka. Hvernig hún lærði að treysta inn­sæ­inu og standa með sjálfri sér og því sem hún vissi að var rétt. Þá sögu Segir Eva Ásrún í nýút­kominni bók, Women Who Rise, þar sem þrjá­tíu konur víða að úr heim­inum segja reynslu­sögur af atburðum sem breyttu lífi þeirra til hins betra.

Kaupa blað í vef­verslun

Myndir / Hallur Karlsson

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Fólk

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina