Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Bergrún Íris, Bergþóra og Sigríður Kristín hlutu Fjöruverðlaunin

Fjöru­verð­launin, bók­mennta­verð­laun kvenna, voru afhent í fjórt­ánda sinn við hátíð­lega athöfn í Höfða í gær. Þetta er jafn­framt í sjötta sinn síðan borg­ar­stjóri Reykja­víkur, bók­mennta­borgar UNESCO, gerð­ist vernd­ari verð­laun­anna. Dagur B. Egg­erts­son gesti vel­komna og afhenti verð­launa­höfum blóm. Verð­launa­hafar fá verð­launa­gripi gerða af lista­kon­unni Koggu.

Bergrún Íris, Bergþóra og Sigríður Kristín hlutu Fjöruverðlaunin
Sigríður Kristín

Bergrún Íris Sæv­ars­dóttir teikn­ari og rit­höf­undur vann verð­launin í flokki barna- og ung­linga­bók­mennta fyrir Kenn­ar­inn sem hvarf (Bóka­beitan).

Bergþóra Svein­björns­dóttir vann verð­launin í flokki fag­ur­bók­mennta fyrir Svíns­höfuð (Benedikt bóka­út­gáfa).

Sigríður Kristín Þor­gríms­dóttir vann verð­launin í flokki fræði­rita og rita almenns efnis fyrir Jakobína: Saga skálds og konu (Mál og menn­ing).

Afhend­ing Fjöru­verð­laun­anna fór fram í Höfða.

Umsagnir dómnefnda um verðlaunabækurnar

Kenn­ar­inn sem hvarf

Kenn­ar­inn sem hvarf: Í umsögn dóm­nefndar, sem Guðrún Jóhanns­dóttir, Hildur Ýr Ísberg og Sigrún Birna Björns­dóttir skip­uðu, segir:

Bergrún Íris Sæv­ars­dóttir er fjöl­kunnug mjög enda bæði afbragðs lista­kona og rit­höf­undur. Bók hennar, Kenn­ar­inn sem hvarf er fim­lega byggð spennu­saga sem heldur les­endum á aldr­inum 9-12 ára föngnum til enda. Spennu­sagna­formið keyrir sög­una áfram en sagan er allt í senn, hröð og skemmti­leg og byggð sam­kvæmt lög­málum hefð­bund­innar frá­sagnar. Söguna segir 12 ára gömul stúlka sem ásamt bekkj­ar­fé­lögum sínum leita horf­ins kenn­ara og leysa um leið flóknar þrautir. Per­són­urnar virð­ast við fyrstu sýn fremur ein­faldar og staðl­aðar en þegar á reynir eru þær ekki byggðar upp af staðalí­myndum heldur verða þær lif­andi og margræðar þegar á frá­sögn­ina líður rétt eins og frá­sögnin sjálf. Bygging bók­ar­innar ásamt per­sónu­sköpun fleytir þess­ari heild­stæðu sögu hátt og færir Bergrúnu Írisi Sæv­ars­dóttur til­nefn­ingu til Fjöru­verð­laun­anna 2020.

Svíns­höfuð

Svíns­höfuð: Í umsögn dóm­nefndar, sem Elín Björk Jóhanns­dóttir, Jóna Guðbjörg Torfa­dóttir og Kristín Ást­geirs­dóttir skip­uðu segir:

Svíns­höfuð eftir Bergþóru Snæ­björns­dóttur er ljóm­andi vel skrifuð og marg­þætt skáld­saga. Þar flétt­ast saman sögur ólíkra per­sóna; eldri manns sem elst upp við Breiða­fjörð, hús­móður í Kópavogi og ungs inn­flytj­anda frá Kína. Öll eiga þau það sam­eig­in­legt að vera jað­ar­sett og ein­angruð, hvert á sinn hátt. Heim­ur­inn sem Bergþóra dregur upp er grimmur en per­sónur hennar eru heil­steyptar og þótt lýs­ingar séu oft gróteskar eru þær skap­aðar af stakri næmni fyrir breysk­leika mann­fólks­ins. Bergþóra dregur fram áhrifa­ríkar myndir sem sitja lengi í les­and­anum og vald hennar á tungu­mál­inu er slíkt að unun er að lesa Svíns­höfuð.

Jakobína: Saga skálds og konu

Jakobína: Saga skálds og konu: Í umsögn dóm­nefndar, sem Dalrún J. Eygerð­ar­dóttir, Sóley Björk Guð­munds­dóttir og Þórunn Blöndal, skip­uðu segir:

Jakobína, saga skálds og konu, segir frá lífi og starfi Jakobínu Sig­urð­ar­dóttur rit­höf­undar. Jakobína er án efa með merki­legri skáldum síns tíma á Íslandi, en ferlið var oft flókið. Bókin segir frá löngun í menntun, tog­streitu gagn­vart hjóna­bandi og síðar hús­móð­ur­hlut­verk­inu, og skálda­starf­inu sem hún brann fyrir alla ævi.  Bókin er skrifuð af dóttur Jakobínu, Sigríði Kristínu Þor­gríms­dóttur, sem tvinnar ein­stak­lega vel saman sögu þess­arar áhuga­verðu konu, bréfa­skrif milli Jakobínu og hennar nán­ustu, og ljóð eftir hana og aðra. Útkoman er for­vitni­leg saga sem gefur ómet­an­lega inn­sýn inn í líf og hug­ar­heim þessa áhrifa­mikla skálds.

Níu höf­undar og bækur voru til­nefndar:

Fag­ur­bók­menntir
Svana­fólkið eftir Kristínu Ómars­dóttur
Okfruman eftir Brynju Hjálms­dóttur
Svíns­höfuð eftir Bergþóru Snæ­björns­dóttur

Fræði­bækur og rit almenns eðlis
Öræfa­hjörðin: Saga hrein­dýra á Íslandi eftir Unni Birnu Karls­dóttur
Jakobína: Saga skálds og konu eftir Sigríði Kristínu Þor­gríms­dóttur
Listin að vefa eftir Ragn­heiði Björk Þórs­dóttur

Barna- og ung­linga­bók­menntir
Kjarval: Málarinn sem fór sínar eigin leiðir eftir Margréti Tryggva­dóttur
Kenn­ar­inn sem hvarf eftir Bergrúnu Írisi Sæv­ars­dóttur
Villu­eyjar eftir Ragn­hildi Hólm­geirs­dóttur

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Tækið er sagt geta borið fjóra fullorðna einstaklinga
Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Svipuð atvik hafa komið upp við heimili Ragnars frá árinu 2023
Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti