Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

„Stundum er ástin ekki bundin kyni“

„Stundum er ástin ekki bundin kyni“

Lífs­reynslu­saga úr Vikunni

Ég kynnt­ist Steina á sveita­balli þegar ég var tví­tug. Hann var svo sann­ar­lega maður drauma minna. Við höfum átt ynd­is­leg ár saman. Tíu árum eftir að sam­band okkar hófst stóð ég frammi fyrir erf­ið­ustu ákvörðun lífs míns. Ég þurfti að gera mér grein fyrir því hvað ást er. Er hægt að elska mann­eskju fyrir að vera hún? Sama í hvaða lík­ama hún er?

Þegar ég var ung hafði ég vissar hug­myndir um ást­ina. Hún var eitt­hvað yfir­nátt­úru­legt og ómót­stæði­legt í mínum huga. Eitthvað sem gat sigrað allt. Ég var ung þegar draum­arnir um fjöl­skyldu og eig­in­mann fóru að gera vart við sig. Ég var bara sú týpa. Týpan sem hafði ekki þörf fyrir allt félags­lífið, ég vildi ást og fjöl­skyldu. Ég fór í gegnum tán­ings­árin með þessa glans­mynd í hug­anum. Ég fór á nokkur stefnu­mót í fram­halds­skóla en ekk­ert hitti í mark. Það hafði eng­inn þau áhrif á mig sem dagdraumar mínir sögðu mér að ástin ætti að hafa. Það varð því ekk­ert úr neinu.

Ég er alin upp í litlum bæ úti í landi. Það var ekki margt um mann­inn þar. Ég sótti fram­halds­skóla í næsta bæ og þekkti því flestalla sem ég eyddi þessum árum með. Það var síðan einn dag­inn sem við vin­kon­urnar ákváðum að fara á sveita­ball að lífið breytt­ist. Ballið var í tölu­verðri fjar­lægt frá heimabæ okkar. Þetta var um sumar og því fannst okkur kjörið að kippa bara með okkur tjaldi og gista á nálægu tjald­svæði. Ég hlakk­aði mikið til því það var ekki oft sem við fórum í svona ferð saman.

Draumaprinsinn á sveitaballinu

Ballið var ynd­is­legt. Ég var rétt búin að stíga inn á dans­gólfið þegar allt í einu var gripið í mig og mér snúið í hringi. Ég vissi ekki hvað var að ger­ast en hló þessi ósköp. Að lag­inu loknu þakk­aði þessi herra fyrir sig og smellti á mig kossi. Það var eitt­hvað sem gerð­ist innra með mér á þess­ari stundu. Ég kol­féll. Hann fór og dans­aði við vini sína en við litum samt ekki hvort af öðru. Eitt leiddi af öðru og áður en ég vissi af var ég komin út í móa með hann mér við hlið. Ég svaf ekk­ert um nótt­ina, við sátum og spjöll­uðum og á þess­ari stundu vissi ég að hann væri mað­ur­inn sem mig lang­aði að vera með.

Nóttin leið hratt og þegar kom að því að fara heim ákváðum við að hitt­ast helg­ina eftir. Hann var úr Reykja­vík og ætl­aði að gera sér ferð í heimabæ minn, ein­göngu til að hitta mig.

Ég man enn í dag spenn­una og eft­ir­vænt­ing­una sem ríkti alla vik­una. Biðin var löng og erfið að mér fannst. Loksins kom hann og við smullum saman. Eftir þessa helgi vildum við ekki hvort án ann­ars vera. Hann leit á það sem ævin­týri að flytja í lít­inn smábæ úti á landi. Sagði að sér leidd­ist hvort eð er í vinn­unni og hefði alltaf langað til að verða bóndi.

Sumrinu eyddum við í sitt­hvorum lands­hlut­anum. Þegar haustaði kom að því að við fundum okkur lítið hús, úti í sveit, til að leigja. Og þar hófst sam­búð okkar Steina.

Steini var ekk­ert að ljúga þegar hann sagði við mig að hann hefði átt þann draum að verða bóndi. Um leið og við fengum litla sveita­bæ­inn okkar á leigu hófst hann handa við að fá dýr og annað til okkar. Ég hafði klárað skól­ann um vorið og vann í Kaup­fé­lag­inu. Hann fékk vinnu við fisk­verkun. Honum leidd­ist það fljótt. Hann var samt ein­stakur að finna það jákvæða í hlut­unum og það var það sem heill­aði mig við hann frá upp­hafi.

Árin liðu og við eign­uð­umst tvö börn. Fyrstu árin voru draumur, þetta var eig­in­lega of gott til að vera satt, eins og stundum er sagt.

Við eign­uð­umst stelpu og strák með tveggja ára milli­bili. Steini tók föð­ur­hlut­verkið af fullri alvöru. Stundum upp­lifði ég að hann væri að bæta fyrir eitt­hvað sem faðir hans hafði ekki gefið honum í æsku.

Horfinn einn daginn

Steini var fyrsta og það má segja eina ástin mín. Ég kippti mér því lítið upp við hluti sem telj­ast ekki eðli­legir í sam­böndum. Kynlíf okkar var svo­lítið skrítið og hann átti það til að spyrja mikið út í allt varð­andi konur. Hann hafði ein­stakan áhuga á lík­ama kvenna. Mér fannst það fal­legt. Hann var líka ein­stak­lega næmur. Vinkonur mínar áttu það til að fífl­ast með að hann væri einn af okkur. Hann lét sig varða um hluti sem menn­irnir þeirra gerðu ekki.

Eins ynd­is­legur og Steini minn var þá fannst mér alltaf skrítið að hann sagði alveg skilið við lífið sem hann átti áður en hann kynnt­ist mér. Það fylgdu honum engir vinir. Hann var í litlu sam­bandi við fjöl­skyldu sína. For­eldrar hans voru í eldri kant­inum og pabbi hans var lát­inn þegar við hófum sam­búð. Mamma hans var komin á elli­heim­ili. Þegar við hittum hana sagði hún alltaf að hann Steini sinn hefði verið sér­stakt barn. Hann hefði þurft að hafa fyrir líf­inu. Þegar ég spurði hann út í þetta fékk ég lítið um svör. Hann sagði mömmu sína hafa ofverndað sig sem barn. Með árunum fann ég samt á honum að hann leyndi ein­hverju fyrir mér. Hann var ekki allur þar sem hann var séður.

Það gerð­ist svo einn dag­inn að Steini hvarf. Hann fór út um morg­un­inn en kom ekki heim aftur þann dag­inn. Ég reyndi að hringja í hann en slökkt var á sím­anum hans. Ég spurð­ist fyrir um hann en eng­inn virt­ist hafa séð hann. Ég tal­aði við lög­regl­una á svæð­inu og þeir sögð­ust ekki geta gert neitt í mál­inu strax. Ég varð viti mínu fjær af hræðslu því þetta var ólíkt Steina. Tveir dagar liðu og þá fékk ég frá honum bréf. Hann hafði póst­lagt það sama dag og hann hvarf. Bréfið var langt og inni­legt og ég get ekki haft orð á því hvað ég feldi mörg tár við lestur þess.

Leyndarmálið afhjúpað

Steini sagði mér frá leynd­ar­málum sínum í þessu bréfi. Hann sagði af hverju hann forð­að­ist að ræða æsku sína. Sagði mér frá ein­elti sem hann varð fyrir og af hverju hann ætti enga vini. Hann hafi byrjað nýtt líf með mér, líf sem hann óskaði svo heitt að gæti gengið upp. En hann átt­aði sig á því að hann gæti ekki breytt því hver hann er. Frá unga aldri hafi hann vitað að hann væri í röngum lík­ama. Þegar hann var barn hag­aði hans sér eins og stelpa, ekki eins og strákur eins og lík­ami hans sagði til um. Hann varð fyrir miklu aðkasti og með tím­anum lærði hann að bæla niður þessa líðan sína. Hann sagð­ist aldrei hafa hall­ast að karl­mönnum, hann væri ást­fangin af mér. En hann hefði ekki þorað að standa fyrir framan mig og segja mér þetta. Nú væri hann búinn að leita sér leiða til að koma hlut­unum í ferli og ætl­aði að verða konan sem hann þráði alltaf. Hann sagði þetta eina erf­ið­ustu ákvörðun sem hann hafi tekið á lífs­leið­inni en að sama skapi þá bestu. Hann hafði áhyggjur af börn­unum okkar og bað mig um að ræða þetta ekki strax við þau.

Ég gjör­sam­lega fraus við lest­ur­inn. Ég vissi ekki hvað ég átti að gera, segja eða ein­fald­lega hvort ég ætti að tala við hann aftur. Það bærð­ust með mér alls­konar til­finn­ingar. Það sem stóð alltaf upp úr var samt ást mín til Steina. Hann var ástin mín eina. En gat ég elskað hann sem konu?

Erfið ákvörðun

Dagarnir liðu og ég heyrði ekk­ert frá Steina. Ég reyndi sjálf ekki að ná í hann. Ég þurfti að átta mig. Átta mig á mínum til­finn­ingum, ræða við fólkið í kringum mig og finna út hvernig ég ætti að takast á við þetta. Vinkonur mínar brugð­ust mis­jafn­lega við. Sumar sögðu að ég væri gagn­kyn­hneigð. Að auð­vitað gæti ég ekki verið með konu. Aðrar reyndu að vera eins opnar með þetta og þær gátu. Eins og áður þá skortir mig orð til að lýsa þeim til­finn­ingum sem bærð­ust innra með mér.

Það kom svo að því að Steini minn birt­ist á tröpp­unum heima. Hann leit illa út en samt var ein­hver ró yfir honum sem ég hafði ekki upp­lifað áður. Þegar ég sá hann gerð­ist eitt­hvað innra með mér. Ég átt­aði mig á því að ég er ást­fangin af honum. Ég er ást­fangin af per­són­unni hans, mann­eskj­unni sem hann er, ekki kyni hans. Við áttum langt og mikið spjall næstu daga og ég sagði honum að ég myndi standa með honum. Ég þyrfti að taka einn dag í einu og kannski myndi ég hætta við. Hann sam­þykkti það.

Tókst á við fordóma

Nú eru liðin sex ár og ég á bestu konu sem ég gæti hugsað mér. Ég er ást­fangin upp fyrir haus. Stundum er ástin ekki bundin kyni. Ég hef lært það með tím­anum. Það hafa ýmsir erf­ið­leikar mætt okkur á leið­inni og þá aða­l­ega for­dómar. Það er önnur og löng saga hvernig við tók­umst á við þetta með börn­unum. En í dag líður öllum vel. Við erum bændur og börnin orðin stór. Við erum ham­ingju­samar og þessi erf­ið­asta ákvörðun lífs míns varð til þess að ég lærði að sjá hlut­ina og lífið í nýju ljósi. Ég tókst á við eigin for­dóma og hlusta ekki á for­dóma ann­arra.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Tækið er sagt geta borið fjóra fullorðna einstaklinga
Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Fólk

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Myndir
Fólk

Sögu­frægt sýslu­manns­setur við sjó­inn komið á sölu

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una