Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Hlustaði á innsæið og lífið tók nýja stefnu

Hlustaði á innsæið og lífið tók nýja stefnu

Tinna Sverr­is­dóttir, leik­kona, söng­kona og heil­ari, er ævin­týra­gjörn ung kona sem hlustar á hjartað og er óhrædd við að feta nýjar slóðir. Þegar hún frétti af námi sem fjall­aði um jóga, tón­list og súkkulaði sagði hún upp vinn­unni og var flogin til Guatemala fimm dögum síðar til að setj­ast á skóla­bekk – eða jógamottu öllu heldur.

„Ég myndi segja að ég væri mjög ævin­týra­gjörn og opin,“ svarar Tinna þegar ég byrja sam­talið á því að biðja hana að segja mér hver Tinna Sverr­is­dóttir sé. „Ég er lærð leik­kona frá Lista­há­skóla Íslands og hef haft ástríðu fyrir því að leika síðan ég var lítil stelpa. Listin hefur verið ómissandi partur af lífi mínu frá því ég var mjög ung. Ég er í tón­list líka, spil­aði með Reykja­vík­ur­dætrum í nokkur ár og var ein af þeim sem stofn­uðu þann hóp, svo gaf ég út plötu með rokk­hljóm­sveit­inni Kroniku þar sem ég fékk að spreyta mig með „live“-bandi í fyrsta skipti. Svo ég fór úr því að koma fram með sautján rapp­andi konum í að spila með fjórum full­vaxta rokkjötnum. Það var mikið ævin­týri.

Ætli besta lýs­ingin á mér sé ekki bara „Listynja“ því ég geri mitt besta að leyfa list­inni að flæða þangað sem hún vill hverju sinni og leyfi mér þannig að vefa saman allt sem ég elska.“

Tinna Sverr­is­dóttir Mynd / Hallur Karlsson

Fór að hágráta þegar hún heyrði af náminu

Andleg iðkun Tinnu hefur síð­ustu árin tengst súkkulaði, hvernig kom það til?

„Ég hef verið á and­legu ferða­lagi síðan ég var mjög ung,“ útskýrir Tinna. „Ég byrj­aði fimmtán ára að stunda sjálfs­rækt, hug­leiðslu og fleira og svo þró­að­ist það meira út í jóga með tím­anum. En kakó­plantan kom inn í líf mitt þegar ég fór í fyrstu kakóat­höfn­ina mína á tutt­ugu og sjö ára afmæl­inu. Ég ætl­aði að flytja til Berlínar og ger­ast bóhemísk lista­kona á þessum tíma en þess í stað tók lífið mig skyndi­lega til Guatemala þar sem ég end­aði í námi sem heitir Yoga of Sound and Chocolate. Þar lærði ég um um töfra tón­heil­unar og mátt kakó­plönt­unnar. Kakóið hefur verið notað af Maya-indíánum svo öldum skiptir en það er frekar nýtil­komið að hvíti mað­ur­inn sé að not­ast við plönt­una sem lækn­inga­jurt. Svo að mínu mati er mik­ill heiður að fá að vinna af heil­indum með þessa mögn­uðu jurt í mínu starfi.”

„Ég vinn mikið sem heil­ari í kvenna­hringjum og við höldum nám­skeið sem heita Villi­kell­inga­Kakó þar sem við stuðlum að því að mæta konum þar sem þær eru og efla systra­lagið.“

Er það leynd­ar­mál hvernig stóð á því að þú fórst til Guatemala?

„Nei, alls ekki,“ segir Tinna og hlær. „Það var nú bara þannig að vin­kona mín fór að segja mér frá þessu námi við eld­hús­borðið heima hjá henni og ég fór að hágráta þegar hún var að lýsa þessu. Það bara gerð­ist eitt­hvað innra með mér og ég grét og grét sem er yfir­leitt frekar góð vís­bend­ing um að eitt­hvað hitti mig í hjarta­stað. Þarna sam­ein­að­ist það sem ég elska mest; jóga, tón­list og súkkulaði, allt í einu námi, þannig að ég ákvað að hlusta á inn­sæi mitt og fann að þetta var það sem ég ætti að gera. Ég hætti í vinn­unni og var flogin út til Guatemala fimm dögum síðar.“

Í Guatemala lærði Tinna í jóga­skól­anum Mystical Yoga Farm við vatnið Atitlán sem hún segir ótrú­lega magn­aðan stað umvaf­inn eld­fjöllum, inni í miðjum skógi langt frá öllum erli.

„Þetta var bæði kraft­meira og dýpra en ég bjóst við,“ segir hún. „Ég vissi satt að segja ekk­ert út í hvað ég var að fara en ég ákvað að treysta líf­inu og taka flugið yfir hafið.“

Skellihló þegar var minnst á bissness

Tinna seg­ist á þeim tíma ekki hafa hugsað námið sem atvinnu­tæki­færi, það hafi meira verið hugsað til að gefa henni inn­blástur, prófa nýjan menn­ing­ar­heim og sjá hvað gerð­ist ef hún hlust­aði á inn­sæið án þess að hafa eitt­hvert mark­mið í huga.

„Ég man að pabbi spurði mig hvað ég ætl­aði eig­in­lega að gera við þetta nám, hvort ég ætl­aði að nýta það í ein­hvern biss­ness og ég fór að skelli­hlæja. Það síð­asta sem ég bjóst við var að ég myndi stofna fyr­ir­tæki upp úr þessu öllu saman.“

„Það eru ótrú­leg for­rétt­indi að geta ein­ungis unnið við það sem maður elskar. Ég næ að flétta þessu mjög fal­lega saman og er að átta mig á því að þetta er í raun­inni allt keim­lík vinna.“

Raunin varð þó sú að fljót­lega eftir heim­kom­una stofn­aði Tinna fyr­ir­tækið Andagift og opn­aði í fram­hald­inu Andagift Súkkulað­i­setur í sam­starfi við Láru Rún­ars­dóttur tón­list­ar­konu. Hvernig atvik­að­ist það?

„Ég kom heim eftir að hafa dvalið í Guatemala í rúm­lega tvo mán­uði og fljót­lega fór fólk að spyrj­ast fyrir um hvort það mætti koma til mín í einka­heilun,“ útskýrir hún. „Þá var ég bara að bjóða fólki heim á stofu­gólf til mín í kakó­bolla, tón­heilun og spila­spá, allt mjög heim­il­is­legt. Síðan vatt það upp á sig og einn dag­inn mætir Lára Rún­ars­dóttir heim í stofu til mín. Við könn­uð­umst örlítið hvor við aðra í gegnum Reykja­vík­ur­dætur, en þekkt­umst ekk­ert þannig. Hún átti ótrú­lega magn­aða stund með mér þarna í stof­unni og það end­aði með því að hún hætti líka í sinni vinnu og upp frá því spurði hún mig hvort ég hafi áhuga á að halda Mön­tru­kvöld með henni. Ég er mikil jámann­eskja svo ég svar­aði auð­vitað strax ját­andi og við héldum okkar fyrsta Mön­tru­kvöld haustið 2017. Þar mættu sex­tíu manns sem kom okkur ótrú­lega á óvart og í fram­hald­inu ákváðum við að halda áfram sam­starfi. Upp frá því sendi Lára mér einn dag­inn mynd af rými sem var til leigu á Rauð­ar­ár­stígnum og setti inn blikk­kall og spurn­ing­ar­merki og spurði hvort við ættum ekki bara að opna okkar eigin stað. Þetta var kannski meira í djóki en alvöru en samt ekki. Ég fór og kíkti á rýmið og allt inni í mér æpti á mig að þetta væri það rétta. Þannig að við end­uðum hjá rík­is­skatt­stjóra og stofn­uðum fyr­ir­tækið Andagift Inspire ehf. og opn­uðum svo Súkkulað­i­setrið í fram­hald­inu.“

Tinna Sverr­is­dóttir Mynd / Hallur Karlsson

 Búið að eyða orðinu væmið úr tungumálinu

Tinna segir ásetn­ing þeirra stall­systr­anna hafa verið að skapa griða­stað í mið­bænum þar sem fólk fengi tæki­færi til að staldra við og hlúa að sjálfu sér í amstri dags­ins.

„Við vinnum mikið með sjálfs­ást og sjálfsmildi sem eru kannski frekar ný hug­tök í okkar sam­fé­lagi,“ útskýrir Tinna og við­ur­kennir að hún hafi sjálf átt svo­lítið erfitt með að nota þessi hug­tök í upp­hafi. „Mér fannst það erfitt út frá ein­hverri hug­mynd um hvað væri væmið, fannst erfitt að fara úr því að vera rapp­ari í Reykja­vík­ur­dætrum í að drekka kakó og miðla sjálfs­ást,“ segir hún og skellir upp úr. „Egóið mitt var ekki alveg visst um þetta.“

Þannig að þú ert væmni rapp­ar­inn?

„Nei, ég myndi nú ekki segja það,“ segir Tinna milli hlát­urskvið­anna. „Ég er nefni­lega eig­in­lega komin með þá sýn að við séum að eyða orð­inu væmið úr tungu­mál­inu okkar. Ég held að sam­fé­lagið sé að þró­ast í þá átt að fólk sé til­bún­ara að lifa meira frá hjart­anu og þegar fólk lifir frá hjart­anu þá er það ekki væmið heldur ekta. Þannig að rappið mitt hefur lík­lega breyst mest á þann hátt að ég ég er farin að rappa og syngja meira frá hjart­anu en egóinu.“

Leikur Sunnefu í nýju verki

Tinna hefur hvorki lagt tón­list­ina né leik­list­ina á hill­una, seg­ist syngja alla daga í vinn­unni og að þær Lára séu að semja efni saman. Næsta verk­efni á leik­svið­inu er þó ekki tón­list­ar­tengt.

„Ég og leik­hóp­ur­inn minn, Svipir, fengum lista­manna­laun til að setja á svið sýn­ingu,“ útskýrir hún. „Og ég er að fara að taka að mér stærsta hlut­verkið mitt hingað til sem er burð­ar­hlut­verk í verk­inu Sunnefa þar sem ég get fléttað leikkon­unni og seið­kon­unni saman.“

„Hún átti ótrú­lega magn­aða stund með mér þarna í stof­unni og það end­aði með því að hún hætti líka í vinn­unni sinni og upp frá því spurði hún mig hvort ég hafi áhuga á að halda Mön­tru­kvöld með henni.“

Verkið sem um ræðir, Sunnefa, er eftir Árna Frið­riks­son sem skrifar það ásamt Þór Tulinius sem leik­stýrir einnig. Tinna leikur Sunnefu og tón­list­ar­konan Fabúla sér um tón­list og leikur á móti henni. Elín Signý Ragn­ars­dóttir úr Íslenska dans­flokknum sér um sviðs­hreyf­ingar og frum­sýn­ing er áætluð í leik­hús­inu þann 10.10 2020. En bitnar það að vera á fullu í leik­hús­inu ekk­ert á starf­inu í Andagift?

„Nei, núna erum við orðnar þrjár sem eigum og rekum Andagift í sam­starfi við Yoga Shala í Skeif­unni 7 og sam­starfs­konur mínar, Lára og Signý Leifs­dóttir, eru alltaf til staðar og halda með mér alla leið “ segir Tinna skæl­bros­andi. „Það eru ótrú­leg for­rétt­indi að geta ein­ungis unnið við það sem maður elskar. Ég næ að flétta þessu mjög fal­lega saman og er að átta mig á því að þetta er í raun­inni allt keim­lík vinna. Ég vinn mikið sem heil­ari í kvenna­hringjum og við höldum nám­skeið sem heita Villi­kell­inga­Kakó þar sem við stuðlum að því að mæta konum þar sem þær eru og efla systra­lagið. Eftir me too bylt­ing­una og allt sem búið er að eiga sér stað í sam­fé­lag­inu und­an­farin ár finnst okkur það starf mik­il­vægt. Við leyfum okkur að mæt­ast og styðja við hvora aðra í að end­ur­skrifa sög­una svo við getum farið að lifa með það við­horf að konur séu konum bestar. Þegar ég kem svo í leik­húsið er ég að fjalla um nákvæm­lega það sama. Þar tek ég á mig hlut­verk stelpu sem barð­ist fyrir sann­leika, rétt­læti og sam­stöðu! Stelpu sem var uppi á átj­ándu öld en var í raun og veru að kljást við sömu hluti og við nema bara á ólíkan hátt í ólíku umhverfi. Því á sagan sterka teng­ingu við tím­ann sem við lifum í dag. Svo að mér finnst þetta allt vera nátengt, sama hvort ég er á sviði eða í ser­emóníu.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Fólk

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina