Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Björn Steinar meðal þekktustu hönnuða heims

Björn Steinar meðal þekktustu hönnuða heims
Óhætt er að segja að Björn Steinar hafi í nógu að snú­ast því hann vinnur nú að plast­end­ur­vinnslu verk­efn­inu Plast­plan sam­hliða því að fram­leiða hús­gögn úr íslensku timbri fyrir Skóg­ar­nytja verk­efnið. „Það er aldrei dauð stund,“ segir hann og hlær. Mynd / Aldís Páls­dóttir|

Vöru­hönn­uð­irnir Björn Steinar Blu­men­stein og Johanna Seelemann sýna Banana Story á Travel as a Tool í hinu virta finnska hönn­un­ar­safni Design Museo í Helsinki. Á sýn­ing­unni er að finna verk eftir nokkra af fremstu hönn­uðum heims.

„Þetta er mik­ill heiður, að fá tæki­færi til að sýna sam­hliða sumum af fær­ustu og þekkt­ustu hönn­uðum Norð­ur­land­anna, eins og Arne Jacobsen, Alvar Aalto og Hans J. Wegner. Þessir menn voru mín fyr­ir­mynd þegar ég byrj­aði í hönnun á sínum tíma,“ segir Björn, spurður út í þátt­töku hans og Johonnu Seelemann á sam­sýn­ing­unni Travel as a Tool.

Sýningin er haldin í hinu virta hönn­un­ar­safni Design Museo í Helsinki og þemað er ferða­lög nor­rænna hönn­uða í víðum skiln­ingi. „Verkefni okkar Johonnu, Banana Story, fellur mjög vel að þem­anu þar sem það snýst um ferða­lög hvers­dags­legra hluta, í þessu til­viki ban­ana sem eru fluttir frá Ekvador til Íslands, en til­gang­ur­inn með verk­efn­inu er að varpa ljósi á og auka skiln­ing okkar á þeim flóknu ferlum sem eiga sér stað við fram­leiðslu neyslu­varn­ings,“ útskýrir Björn. „Vöru­flutn­ingar eru grund­vallar und­ir­staða nútíma lifn­að­ar­hátta og þarna erum við að sýna hvernig það flókna kerfi hefur breytt heims­mynd­inni á örsvip­stundu.“

Að sögn Björns hafa þau Johanna lengi verið áhuga­söm um upp­runa og sögu hluta, en hann segir að sá áhugi hafi fyrst kviknað fyrir alvöru með Cargo, sam­eig­in­legu útskrift­ar­verk­efni þeirra úr vöru­hönnun við Lista­há­skóla Íslands. „Þar beindum við einmitt sjónum að því hvernig hið flókna ferli vöru­flutn­inga á heims­vísu gerir nútíma lifn­að­ar­hætti okkar í raun mögu­lega og því má segja að Banana Story sé sjálf­stætt fram­hald af því.“

Banana Story snýst um ferða­lög hvers­dags­legra hluta, í þessu til­viki ban­ana sem eru fluttir frá Ekvador til Íslands, en til­gang­ur­inn með verk­efn­inu er að varpa ljósi á og auka skiln­ing fólks á þeim flóknu ferlum sem eiga sér stað við fram­leiðslu neyslu­varn­ings.

Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Banana Story kemur fyrir sjónir almenn­ings. Síðast var verk­efnið sýnt á Victoria and Albert Museum í London og vakti þá athygli, meðal ann­ars fyrir það hvernig Johanna og Björn nálg­ast við­fangs­efnið frá sjón­ar­hóli blaða­mennsku (design journalism), með við­tölum við mat­væla­inn­flytj­endur og vöru­flutn­inga­fyr­ir­tæki, gagna­söfnun frá Hag­stof­unni og sam­bæri­legum stofn­unum erlendis og upp­lýs­ingum frá dreif­ingar- og fram­leiðslu­fyr­ir­tækjum víða um heim. Og þetta er langt í frá síð­asta sinn sem verkið verður til sýnis.

„Þetta er mik­ill heiður, að fá tæki­færi til að sýna sam­hliða sumum af fær­ustu og þekkt­ustu hönn­uðum Norð­ur­land­anna.“

„Það stendur til að sýna það víðar um heim á næst­unni,“ segir Björn, „og það er ein­hvern veg­inn þannig að það er alveg sama hversu oft verkið hefur verið sýnt, það er alltaf jafn spenn­andi. Og ótrú­lega gaman að sjá hvernig það virð­ist breyt­ast í mis­mun­andi sam­hengi.“

Þess má geta að Banana Story er ekki eina fram­lag Íslands til Travel as a Tool því á sýn­ing­unni er til sýnis verk eftir Brynjar Sig­urð­ar­son. Af öðrum hönn­uðum má nefna Kaj Franck, Ramona Salo Myrseth og Arne Jacobsen. Sýningin stendur yfir til 7. mars á næsta ári.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Mannlífið

Myndir
Mannlífið

Novasvellið rís á Ing­ólfs­torgi

Jólin nálgast óðfluga
Mannlífið

Opn­un­ar­veisla Bryggju­húss­ins að hefj­ast

Mannlífið

Mæður sem taka sjálfur eiga dætur sem vilja frekar fegr­un­ar­að­gerðir

Mannlífið

Hvers vegna eru börn oft að segja þessa setn­ingu?

Mannlífið

Bæj­ar­há­tíðin Í tún­inu heima stendur með miklum blóma í Mos­fellsbæ

Mannlífið

Bangsa­fé­lagið heldur upp á afmæli með stór­há­tíð og nýrri keppni