Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

„Flækt í atburðarás sem ég réð ekkert við“

Lífs­reynslu­saga úr Vikunni

Ég leidd­ist inn í ást­ar­sam­band með giftum manni sem reynd­ist bæði nið­ur­brjót­andi og erfitt. Konan hans var ekki til­búin að sætta sig við skilnað og það flækti málin meira en orð fá lýst. Mér fannst ég oft ekki ráða neitt við neitt og að tog­streita þeirra tveggja væri að færa mig í kaf.

Ég skildi við mann­inn minn eftir að hafa upp­lifað mikla erf­ið­leika í hjóna­band­inu. Hann var ákaf­lega mis­lyndur og stjórn­aði heim­il­inu með fýluköstum sem komu ákaf­lega illa við mig og börnin okkar. Mér fannst ég lengi ekki geta skilið vegna skap­bresta manns­ins og taldi að það væri eitt­hvað sem ætti að vera hægt að leysa og takast á við í hjóna­bandi. Loks var þetta ástand orðið svo óbæri­legt að ég fann að ég varð að gera eitt­hvað. Börnin okkar voru þá orðin tals­vert stálpuð og það elsta flutt að heiman.

Ég keypti mér lítið hús í sama hverfi og við hjónin höfðum búið í og var harð­á­kveðin í að byrja nýtt líf. Ég var sann­ar­lega ekki í leit að elsk­huga eða öðrum manni þegar ég féll engu að síður kylli­flöt fyrir einum. Hann bjó í nágrenni við mig og við spjöll­uðum nokkrum sinnum saman þegar við hitt­umst á förnum vegi. Fljót­lega bauð hann mér að keyra mig heim þegar hann hitti mig í verslun hverf­is­ins og þar sem ég átti ekki bíl bauð hann mér að vera sér sam­ferða á morgn­ana í vinn­una. Vinnu­staður minn var ekk­ert mjög langt frá hans þannig að þetta hent­aði okkur báðum mjög vel. Í þessum bíl­ferðum gafst okkur tæki­færi til að tala saman og fljót­lega urðum við góðir vinir.

Þegar þetta var bjó hann með eig­in­konu sinni en hann sagði mér að sam­band þeirra hjóna væri stirt og hann hefði átt í ást­ar­sam­bandi við aðra konu árið áður. Kona hans vissi um það og þótt hún væri ekki til­búin að skilja væri hún ekki til­búin að fyr­ir­gefa honum heldur. Hann sagð­ist jafn­framt vera á báðum áttum um hvort honum fynd­ist það þess virði að halda hjóna­band­inu gang­andi. Ég lýsti fyrir honum á móti því hel­víti sem ég hafði gengið í gegnum í mínu hjóna­bandi og við studdum hvort annað.

Ofsótt af eiginkonunni

Kvöld nokk­urt hringdi hann í mig og spurði hvort hann mætti koma í heim­sókn. Hann hafði lent í rifr­ildi við kon­una og hún rokið burtu. Ég var svo­lítið hik­andi en sam­þykkti svo að hann kæmi. Ég var auð­vitað undir niðri hrifin af honum þótt ég við­ur­kenndi það ekki fylli­lega fyrir sjálfri mér þá. Þetta kvöld byrj­aði sam­band okkar og ein­hvern veg­inn varð ekki aftur snúið eftir það.

Næstu mán­uði sner­ist líf mitt meira og minna um að finna tíma til að hitta hann og í hvert skipti sem konan hans fór eitt­hvað kom hann til mín. Nágrannar okkar tóku eftir þessu og ein­hver þeirra hefur lík­lega sagt kon­unni hans þetta því skyndi­lega fór hún að elta mig á röndum. Í hvert skipti sem ég fór út í garð eða sett­ist út á ver­önd birt­ist hún. Stundum gekk hún fram hjá hús­inu mínu en þess á milli stillti hún sér upp og horfði á mig þar til ég stóð á fætur og gekk inn aftur.

„Mér leið skelfi­lega illa á þessu tíma­bili og þorði varla út úr húsi. Ég vissi auð­vitað sem var að ég hafði brotið af mér gagn­vart þess­ari konu og ég skamm­að­ist mín.“

Ýmislegt fleira skrýtið gerð­ist um svipað leyti. Á næt­urnar var hringt heim til mín og þegar ég tók upp tólið var ann­að­hvort skellt á eða kven­maður á hinum enda lín­unnar hellti yfir mig sví­virð­ingum og því­líkum hroða að ég get ekki einu sinni haft það eftir. Nokkrum sinnum var rusl og alls konar ógeð á víð og dreif um garð­inn minn og tröpp­urnar þegar ég kom út á morgn­ana og eitt sinn hafði mold verið mokað inn um opinn glugga inn á gólf hjá mér.

Leið skelfilega illa

Mér leið skelfi­lega illa á þessu tíma­bili og þorði varla út úr húsi. Ég vissi auð­vitað sem var að ég hafði brotið af mér gagn­vart þess­ari konu og ég skamm­að­ist mín. Hvað eftir annað reyndi ég að slíta sam­band­inu við mann­inn en hann grát­bað mig alltaf um að halda því áfram. Hann sagð­ist elska mig og vilja búa með mér og hann lof­aði að ganga frá sínum málum gagn­vart kon­unni. Það dróst hins vegar alltaf að hann gerði alvöru úr því og ég varð alltaf fast­ari og fast­ari í þessum víta­hring.

Ég hélt að ég gæti leyst þetta og ákvað því að tala við kon­una. Ég hringdi í hana bað hana að hitta mig og ræða við mig. Hún svar­aði því til að við ættum ekk­ert van­talað hvor við aðra. Ég benti henni á að sam­band mitt við mann­inn hennar hefði nú staðið í nokkra mán­uði og kannski væri kom­inn tími til að höggva á þennan hnút. Í stað þess að tala við mig hóf hún að spyrja mig alls konar spurn­inga um sam­band mitt við mann­inn sinn. Ég hélt að hún vildi fá sann­leik­ann umbúða­lausan svo ég svar­aði henni eins hrein­skiln­is­lega og ég gat. Það sem ég vissi hins vegar ekki var að hún tók sam­talið upp á seg­ul­band og næstu daga á eftir spil­aði hún það fyrir nágranna, vini sína og nán­ast hvern þann sem vildi hlusta.

Flestir þeir sem hlýddu á þetta sam­tal áfelld­ust mig. Þeim fannst ég grimm að tala af svona mik­illi hrein­skilni. Ein nágranna­konan vék sér að mér úti á götu og til­kynnti mér að ég hlyti að vera sad­isti að geta nuddað konu­grey­inu svona upp úr sam­lífi mínu og mann­ins hennar. Ég reyndi að benda á að ég væri ekki eina konan sem mað­ur­inn hefði átt í ást­ar­sam­bandi við og fæst af þessu hefði átt að koma eig­in­kon­unni á óvart. En allt kom fyrir ekki. Ýmsir sýndu mér fyr­ir­litn­ingu sína á mjög opin­skáan hátt. Þetta varð til þess að brjóta mig end­an­lega niður. Ég flúði að heiman og bjó hjá systur minni í þrjár vikur.

Rugluð í ríminu

Enn og aftur reyndi ég að slíta sam­bandi mínu við mann­inn en hann gekk á eftir mér og grét og bað mig að hafa þol­in­mæði ögn lengur. Systir mín skildi þetta ekki og var mér mjög reið fyrir að halda þessu áfram. Ég var hins vegar orðin svo óör­ugg með mig og rugluð í rím­inu að ég vissi ekki hvert ég átti að snúa mér. Að sumu leyti fannst mér eins og ég væri hrein­lega að gef­ast upp með því að yfir­gefa hann. Við hefðum nú gengið í gegnum svo margt saman að góðu tím­arnir hlytu að fara að renna upp og ef ég bara sýndi örlítið þol­gæði þá yrði allt gott aftur.

Konan hans hélt upp­teknum hætti og hringdi í mig á næt­urnar og nokkrum sinnum varð ég vör við hana í bíl fyrir utan hús systur minnar. Dag nokkurn var ég á leið í vinn­una og bíll keyrði upp að gang­stétt­inni við hlið mér. Mér brá óskap­lega og tók á rás niður eftir göt­unni. Þegar ég þorði loks að líta við sá ég að bíl­stjór­inn hafði stoppað til að hleypa út far­þega. Þá átt­aði ég mig á að svona gæti þetta ekki gengið lengur. Ég ákvað að slíta mig frá þess­ari vit­leysu í eitt skipti fyrir öll.

„Ég verð þó að við­ur­kenna það að ég sakna hans og enn í dag er ég ást­fangin af honum.“

Ég lét ekki standa við orðin tóm heldur setti húsið mitt á sölu og sótti um flutn­ing í starfi. Systir mín gat útvegað mér íbúð til leigu sem ég flutti í þar til húsið var selt. Eig­in­konan hætti að hringja í mig eftir að ég fór úr hverf­inu en hann hélt áfram að hringja og reyna fá mig til að halda sam­bandi okkar áfram. Ég var hins vegar alveg ákveðin í að nú yrði ég að vera sterk og standa við þessa ákvörðun.

Nú eru liðnir margir mán­uðir síðan ég heyrði síð­ast í mann­inum og vissu­lega er það léttir að vera laus við allt það nei­kvæða sem fylgdi sam­bandi okkar. Ég verð þó að við­ur­kenna það að ég sakna hans og enn í dag er ég ást­fangin af honum. Hann virð­ist á hinn bóg­inn ekki til­bú­inn að taka af skarið og slíta hjóna­bandi sínu og lengi vel gat hann heldur ekki að látið mig í friði. Ég lenti á milli hjóna og inni í ein­hverri brjál­æð­is­legri hring­iðu sem ég skil ekki almenni­lega enn í dag. Þótt ég hafi sann­ar­lega ekki verið sak­laus í þessum átökum þá verð ég að segja að bæði komu þau hjónin illa fram. Annað fólk dæmdi mig hins vegar harð­ast.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Fólk

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina