Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Persónuvernd um Boðaþings- og Hlífarmálin: Gæti þurft að skoða nánar

Persónuvernd um Boðaþings- og Hlífarmálin: Gæti þurft að skoða nánar
Þjón­ustu­í­búðir aldr­aðra við Boðaþing í Kópavogi

„Ef þetta eru sam­bæri­leg dæmi og tekið mis­mun­andi á þeim, þá gæti þurft að skoða það nánar,“ segir Helga Þór­is­dóttir, for­stjóri Per­sónu­verndar, um ólíkar nálg­anir sótt­varn­ar­yf­ir­valda gagn­vart öldruðum íbúum Boða­þings í Kópavogi og Hlífar á Ísafirði. Í fyrra til­vik­inu var smiti leynt vegna per­sónu­vernd­ar­sjón­ar­miða en í því síð­ara til­kynnt opin­ber­lega um smit og öllu skellt í lás.

Per­sónu­vernd varð til þess að Covid-smiti var leynt í Boða­þingi, þjón­ustu­í­búðum aldr­aðra í Kópavogi. For­stjór­inn þar segir að sótt­varn­ar­læknir hafi tekið yfir málið og meinað að til­kynnt yrði opin­ber­lega um smitið. Líkt og Mannlíf greindi var því öfugt farið á Ísafirði þegar aldr­aður íbúi Hlífar, þjón­ustu­í­búða fyrir aldr­aða, greind­ist jákvæður og um það var til­kynnt opin­ber­lega og íbúar skip­aðir í sótt­kví. Bæði heim­ilin virð­ast sam­bæri­legt rekstr­ar­form.

Á Ísafirði urðu íbúar og aðstand­endur þeirra reiðir yfir hörðum sótt­varn­ar­að­gerðum. Í Kópavogi var hins vegar engum sagt frá sökum per­sónu­verndar. Aðspurð hvor leiðin hafi verið sú rétta segir Helga erfitt að segja til um án þess að skoða málin til hlítar. Á mis­mun­andi nálgun geti nefni­lega verið skýr­ing.. „Maður veltir því fyrir sér hvort það sé ein­hver skýr­ing á þessu. Ég get ekki sagt til um hvor leiðin var rétt því ég hef ekki gögnin. Gætu aðstæður á Ísafirði verið þannig að nauð­syn­legt hafi verið talið að aðvara þetta fólk? Kannski eru þetta ekki alveg sam­bæri­leg dæmi.“

Hlíf, þjón­ustu­í­búðir fyrir aldr­aða á Ísafirði. Mynd Ísa­fjarð­ar­bær

Helga segir að í upp­hafi far­ald­urs­ins hafi sótt­varn­ar­læknir mætt til fundar til að fara yfir hans heim­il­i­dir gagn­vart per­sónu­vernd. „Þær heim­ildir eru rúmar. Þjón­ustu­í­búðir eru heim­ili fólks og við erum almennt ekki að sjá Covid-merk­ingar utaná húsum um borg og bý. Þarna er hins vegar veitt þjón­usta og fullt af fólki sem þarf að koma þarna inn þannig að kannski er ekki heldur hægt að tala um þetta sem hefð­bundið sam­band leigj­anda og leigu­sala,“ segir Helga og ítrekar að þessi mál geti verið snúin. „Það að vera með Covid eru við­kvæmar heilsu­fars­upp­lýs­ingar. Þarna erum við komin algjör­lega að frið­helgi einka­lífs­ins. Við erum að tala um fólk sem býr í ákveðnum húsa­kynnum, en kannski rétt­lætir þetta aðeins meiri upp­lýs­inga­gjöf því þarna er þjón­usta veitt. Það er þeirra að útskýra hvers vegna þeir fóru mis­mun­andi leiðir. Okkar afstaða er sú að allt það sem metið er nauð­syn­legt til að tryggja sótt­varnir er útgangs­punkt­ur­inn en það þarf auð­vitað að fara að lögum og reglum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum