Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Ábreiða íslenskrar söngkonu af laginu Húsavík slær í gegn: „Maður roðnar bara“

Ábreiða íslenskrar söngkonu af laginu Húsavík slær í gegn: „Maður roðnar bara“

Ábreiða Katrínar Ýrar af lag­inu Húsavík, úr Eurovision-kvik­mynd Wills Farrel Eurovision Song Contest: The Story of Fire Saga, hefur slegið í gegn á sam­fé­lags­miðlum. Á fyrstu 12 tímunum fékk mynd­bandið 2.000 áhorf á YouTube og fal­legum skila­boðum rignir yfir söng­kon­una, sem seg­ist vera alveg í skýj­unum.

Katrín Ýr starfar í tón­list­ar­brans­anum í London þar sem hún hefur komið tölu­vert fram ásamt því að raddút­setja, syngja lög eftir aðra og syngja bak­raddir og fleira fyrir aðra lista­menn. Hún hefur einnig staðið fyrir tón­leikum til heið­urs söng­kon­unni Adele á Íslandi og á síð­asta ári stóðu hún og Erla Stef­áns­dóttir á bak­við tón­leik­ana Konur í rokki sem voru haldnir í Reykja­vík. Katrín er á Facebook og YouTube undir @IntroducingKat: Facebook.com/IntroducingKat youtube.com/IntroducingKat

„Þetta hefur verið alveg vonum framar,“ segir Katrín Ýr, þegar hún er spurð hvernig ábreiðu hennar af lag­inu Húsavík hafi verið tekið. „Ég bjóst við að fá kannski 2.000 áhorf, en það tókst á 12 tímum. Þetta er komið í 10.000 áhorf núna og vid­eóið er bara búið að vera uppi í rúm­lega tvo daga. Ég er búin að fá fullt af ynd­is­legum kommentum frá fólki all­staðar að úr heim­inum og fal­leg skila­boð á sam­fé­lags­miðlum. Maður roðnar bara við að lesa þetta allt.“

Katrín horfði á mynd­ina með kærast­anum og seg­ist hafa kol­fallið fyrir lag­inu um leið og hún heyrði það. „Ég féll strax fyrir því. Laglínan er svo flott og text­inn fal­legur. Lögin í mynd­inni eru fín. Þau eru kannski ekki öll sér­stöku í upp­á­haldi, en Demi Lovato lagið er flott, segir hún og vísar þar í lagið In the Mirror sem söng­konan heims­fræga syngur af mik­illi inn­lifun.  Svo gat ég ekki losnað við Ja Ja Ding Dong úr höfð­inu í marga daga á eftir,“ bætir hún við og hlær.
Lagið hljóð­rit­aði Katrín Ýr heima í stofu hjá sér og fékk góð­vin sinn Loucas Haji­ant­oni til að taka upp píanó­und­ir­spil við lagið, og annan vin sinn Jon Ray til að hljóð­blanda lagið. Mynd­bandið við lagið tók hún svo líka upp í stofu, fékk að nota myndefni af Íslandi úr smiðju frænku sinnar Láru Stef­áns­dóttur og plat­aði kærasta sinn Ed Broad til að klippa mynd­bandið.

„Ég er búin að fá fullt af ynd­is­legum kommentum frá fólki all­staðar að úr heim­inum og fal­leg skila­boð á sam­fé­lags­miðlum. Maður roðnar bara við að lesa þetta allt.“

En hvað varð til þess að hún tók sig til og gerði ábreiðu af Húsavík? „Svarið við því er nú bara ein­falt. Þegar ég var að horfa á mynd­ina fatt­aði ég fyrst ekki að per­sóna Rachel McAdams væri að syngja að hluta til á íslensku. Ekki fyrr en ein per­sónan í mynd­inni segir: ‘Wow, she’s sing­ing in Icelandic’. Þá þurfti ég að hlusta á lagið nokkrum sinnum og gúgglaði text­ann til að skilja hvað hún er að syngja. Svo heyrði ég að fleiri Íslend­ingar ættu í erf­ið­leikum með að skilja hana. Þannig að mig lang­aði til þess að syngja lagið til þess að fólk fengi að heyra hvernig ætti raun­veru­lega að bera íslenku orðin fram. Fyrir utan það þá sakn­aði ég þess bara heil­mikið að syngja fyrir fólk þar sem ég bý í vestur hluta London og vinn í fullu starfi sem tón­list­ar­kona og hef ekki mátt koma fram und­an­farnar vikur og mán­uði vegna fjölda­tak­mark­ana sem eru í gildi. Þetta er svona mín leið til að geta gert það.“

Erlendis hefur verið haft orð á því að myndin sé móðgun við bæði Íslend­inga og Eurovision-keppn­ina, en Katrín Ýr seg­ist nú alls ekki hafa orðið vör við að fólki í kringum hana finn­ist það. Þvert á móti. „Nei, ég hef ekki heyrt það. Ég skil nú svo sem alveg að fólk gæti haldið það. En þetta er grín­mynd og maður verður bara að taka mynd­inni þannig. Ef eitt­hvað er hefur þessi mynd vakið enn meiri athygli á Íslandi og Eurovision­keppn­inni, sem mér finnst nú bara jákvætt,“ svarar hún enda seg­ist hún sjálf vera mik­ill Eurovision-aðdá­andi. „Já, ég er algjör aðdá­andi! Ég horfi á keppn­ina á hverju ári og hef gert síðan ég var barn og ég var meira að segja í dóm­nefnd eitt árið,“ segir hún og játar að hana dreymi um að fá að taka þátt í keppn­inni. „Já, og ég hef góða trú á því að það verði að raun­veru­leika einn dag­inn.“

Í ljósi vin­sælda Húsvíkur-ábreið­unnar er ekki úr vegi að spyrja hvort söng­konan ætli sér að taka fleiri lög úr mynd­inni upp á sína arma. „Það er spurn­ing. Það eru margir sem vilja endi­lega heyra Ja ja Ding Dong. En mér finnst In the Mirror með Demi Lovato mjög flott lag. Spurning hvort að það komi næst. Annars var spurði ein­hver hvort ég ætl­aði ekki að semja íslenskan texta við Húsavík. Það væri líka gaman,“ segir hún glað­lega.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Fólk

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina