Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

„Þurftum að berjast fyrir okkar alla daga“

Lífsreynslusaga úr Vikunni:

Ég var alin upp í mikilli fátækt. Mamma mín var ein með okkur þrjú systkinin en pabbi hafði lítinn áhuga á að hjálpa til eða var kannski ekki aflögufær, ég veit það ekki. Við systkinin áttum hvorki flott föt né fínt dót eins og hinir krakkarnir og við fengum sannarlega að finna fyrir því.

Við bjuggum í lít­illi tveggja her­bergja íbúð og það segir sig sjálft að þetta var ekki mikið pláss fyrir eina full­orðna mann­eskju og þrjú börn. Mamma leigði þessa íbúð af kunn­ingja afa og íbúðin þurfti end­ur­nýj­unar við. Hún hafði verið lengi í leigu og allar inn­rétt­ingar voru farnar að láta á sjá. Íbúðin var ódýr fyrir vikið en dag nokkurn fékk mamma leyfi hjá eig­and­anum til að taka hús­næðið í gegn. Við unnum öll eins og ber­serkir og bróðir hennar mömmu sem er smiður hjálp­aði.

Íbúðin var máluð, nýir skápar settir í svefn­her­bergið og bróðir mömmu smíð­aði fal­legt og snið­ugt fata­hengi í for­stof­una. Þegar eig­and­inn kom að skoða var auð­séð að hann var ánægður með verkið og þess vegna kom það okkur mjög á óvart nokkrum vikum seinna þegar bréf barst frá honum með til­kynn­ingu um að hann hygð­ist hækka leig­una umtals­vert. Mamma gat ekki borgað svona háa leigu og við urðum því að flytja.

Aftur var heppnin með okkur því við fengum íbúð í góðu hverfi og þótt leigan væri há gerði það ekk­ert til því Félags­mála­stofnun hafði fall­ist á að borga hluta hennar. Sú íbúð var einnig mun stærri en hin þannig að við hlökk­uðum mikið til að flytja inn. En Adam var ekki lengi í Paradís. Við vorum komin í rót­gróið mið­stétt­ar­hverfi þar sem allir höfðu nóg að bíta og brenna og fátækt þótti ekki ásætt­an­leg í þessum hópi. Sú stað­reynd að við urðum að fara spar­lega með pen­inga var nóg til að nágrannar okkar dæmdu okkur pakk og við systk­inin fengum sann­ar­lega að heyra háðs­glós­urnar og hnjóðs­yrðin.

Lögð í einelti

Systir mín var opin­ská og kát lítil stelpa. Hún hafði aldrei verið í vand­ræðum með að eign­ast vini og bjóst því ekki við öðru en góðu þegar hún fór í fyrsta sinn út að leika sér fyrir framan nýja húsið. For­eldr­arnir voru greini­lega búnir að tala við börnin sín því við­tök­urnar voru and­styggi­legar. Krakk­arnir hreyttu í hana ónotum, hrintu henni út á göt­una og köst­uðu í hana drullu. Hún kom grát­andi inn og var alveg miður sín það sem eftir var dags­ins. Eldri bróðir minn reidd­ist þessu illa og rauk út til að kenna krökk­unum lexíu. Hann hafði það upp úr krafs­inu að einn pabb­inn kom grenj­andi og öskr­andi út og sló bróður minn, sem þá var þrettán ára, í and­litið.

Mamma fór og reyndi að tala við þetta fólk en henni var til­kynnt að eng­inn vildi fá félags­mála­pakk í hverfið sitt og við skyldum pilla okkur burtu sem fyrst. Þarna byggi aðeins sóma­kært fólk. Mér fannst hegð­unin ekki bera vott um mikla sóma­til­finn­ingu en ell­efu ára gutti má sín lít­ils þegar hinir full­orðnu eru ann­ars vegar. Systir mín var ekki sú eina sem lögð var í ein­elti þarna í hverf­inu. Ég og bróðir minn þurftum að berj­ast fyrir okkar alla daga og vorum hvergi óhultir. Við vorum sak­aðir um að stela úr hverf­is­búð­inni þótt við gætum sannað að við hefðum hvergi nálægt henni komið þann dag sem stuld­ur­inn átti sér stað. Við vorum líka sagðir hafa kveikt í rusla­tunnum og margt fleira en ekk­ert af þessu var satt.

Námið í skól­anum gekk þokka­lega en við gátum alltaf átt von á því að á okkur yrði ráð­ist. Fötunum okkar var hent í kló­settið, tösk­urnar okkar skemmdar og við lamin. Umsjón­ar­kenn­ari minn og systur minnar var góður maður sem var til­bú­inn að láta reyna á mann­gildi okkar áður en hann dæmdi okkur. Hann sýndi okkur mikla hlýju og kom bróður mínum nokkrum sinnum til hjálpar þegar hann lenti í vand­ræðum.

„Mamma fór og reyndi að tala við þetta fólk en henni var til­kynnt að eng­inn vildi fá félags­mála­pakk í hverfið sitt og við skyldum pilla okkur burtu sem fyrst.“

Systir mín átti erfitt með að sætta sig við óvin­sældir sínar því hún hafði alltaf átt svo auð­velt með að eign­ast vini. Til þess að ganga í augun á krökk­unum tók hún því upp á alls konar hlutum. Meðal ann­ars stökk hún ofan af háum vegg við skóla­lóð­ina og sneri sig illa þegar hún kom niður og í annað sinn þvoði hún hárið á sér upp úr drullu­polli á plan­inu heima vegna þess að ein­hver krakk­inn hafði manað hana til þess. Það var eins og hún áliti það skárra að vera fræg að endemum en að eng­inn tæki eftir henni eða vildi við hana tala.

Persónuleiki barnanna breytist

Mömmu leið óskap­lega illa yfir þessu og hún ræddi nokkrum sinnum við Félags­mála­stofnun um að finna okkur annað hús­næði. Þar á bæ vildu menn ekki hlusta á umkvart­anir sem þessar og töldu að krakk­arnir myndu fljótt jafna sig og taka okkur í sátt. Það var eins og eng­inn átt­aði sig á að krakk­arnir voru ekki vanda­málið heldur sú inn­ræt­ing sem fór fram af hálfu full­orðna fólks­ins. For­eldr­arnir vildu okkur burtu og þeir beittu börn­unum sínum eins og vopnum í þeirri bar­áttu. Starfs­menn Félags­mála­stofn­unar höfðu þó rétt fyrir sér að einu leyti því þegar frá leið vorum við að mestu látin afskipta­laus.

Systir mín hætti að reyna að ganga fram af öllum og lok­aði sig af. Þessi glaða litla stelpa varð ein­ræn og í raun þung­lynd. Það eina sem hún virt­ist hafa áhuga á var að teikna myndir og hún bjó til heilu mynda­sögu­blöðin þar sem hún og vin­kona hennar úr gamla hverf­inu, Nína, voru í aðal­hlut­verki. Ég var alltaf hræddur og kvíð­inn. Á hverjum degi gat ég átt von á því að á mig yrði ráð­ist, ann­að­hvort á leið í skól­ann eða á heim­leið­inni. Ég forð­að­ist ákveðin hús því þar bjuggu óvinir sem gátu stokkið á mig fyr­ir­vara­laust og fór því langar og skrýtnar króka­leiðir heim til mín. Þetta breytt­ist ekk­ert þótt árás­irnar minnk­uðu.

„Ég veit að börn sem lenda í svæsnu ein­elti bíða þess aldrei bætur. Óverð­skuldað ofbeldi og stöð­ugur ótti setur mark á sál­ina sem aldrei hverfur að fullu.“

Bróðir minn var harður af sér og sterkur og það leið ekki á löngu þar til jafn­vel hörð­ustu nagl­arnir hættu að þora í hann. Til þess að kom­ast af rækt­aði hann með sér þessa eig­in­leika og ég vil meina að sú grimmd sem hann mátti þola hafi drepið eitt­hvað í sál hans. Hann leidd­ist fljót­lega út í vímu­efna­neyslu og hefur barist við fíkn­ina allt sitt líf. Stundum gengur honum vel og stundum illa. Lengst hefur honum tek­ist að vera edrú í sex ár og von­andi tekst honum ein­hvern tím­ann að yfir­vinna sjúk­dóm­inn að fullu.

Lélegt sjálfsmat og mikil andleg vanlíðan

Við yngri systk­inin höfum bjargað okkur ágæt­lega. Systir mín fór í lista­skóla og er mjög skap­andi. Það háir henni hins vegar hversu lélegt sjálfs­mat hún hefur og henni gengur illa að koma sjálfri sér og verkum sínum á fram­færi þess vegna. Ég starfa við ákveðna iðn sem ég lærði og er ekk­ert sér­lega ánægður í starfi. Ég hafði engan áhuga á þess­ari grein þegar ég fór í námið en vildi læra eitt­hvað. Ég vissi ekki hvað ég vildi og taldi mig ekki geta farið í lang­skóla­nám því mér hafði verið talin trú um að ég hefði ekki þær gáfur sem þyrfti til bók­náms af fyrrum bekkj­ar­fé­lögum mínum. Þegar ég lít til baka sé ég að ein­kunnir mínar voru í góðu með­al­lagi og svo sann­ar­lega var það ekki þess vegna sem þeir töldu mig heimskan. Að þeirra mati gat félags­mála­pakkið auð­vitað ekki verið góðum gáfum gætt.

Ég veit að börn sem lenda í svæsnu ein­elti bíða þess aldrei bætur. Óverð­skuldað ofbeldi og stöð­ugur ótti setur mark á sál­ina sem aldrei hverfur að fullu. Fordómar gagn­vart þeim sem eiga erfitt upp­dráttar fjár­hags­lega í þessu sam­fé­lagi eru miklir og stór hópur fólks trúir því að fátækt stafi af leti og ómennsku. Mamma mín var hvorki löt né drykk­felld, hún var ein­fald­lega verka­kona sem stóð uppi ein með þrjú börn. Við systk­inin vorum hvorki betri né verri en önnur börn við höfðum bara minna handa á milli og fyrir það þurftum við að gjalda.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Hann mætti ekki við þingfestingu málsins
Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Fólk

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina