Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Nýttu tímann í COVID-einangruninni í að núllstilla sig – „Við gerðum þennan tíma að gleðistund“

Nýttu tímann í COVID-einangruninni í að núllstilla sig – „Við gerðum þennan tíma að gleðistund“

Höfundur / Guðný Hrönn

„Ég óska engum þess að veikj­ast en ef þú ert skikk­aður í ein­angrun eða sótt­kví hvet ég þig til þess að nýta tím­ann til góðs og æfa þig í þakk­læt­inu alla daga,“ skrifar Aðal­heiður Jensen meðal ann­ars í færslu á Facebook en hún og kær­asti hennar, Tryggvi Við­ars­son, veikt­ust af COVID-19 og tóku strax ákvörðun um að nýta tím­ann í ein­angr­un­inni vel.

„Við nýttum tím­ann í mik­inn lær­dóm, fórum á online-nám­skeið og vorum í bæði lík­am­legri og and­legri vinnu. Við byrj­uðum flesta daga á önd­unaræf­ingum og að koma okkur í sef­kerfið (parasympathetic). Við borð­uðum lit­ríkan og fal­legan mat og stund­uðum lík­ams­rækt, hug­leiðslu og slökun. Við bjuggum okkur í raun­inni bara til umgjörð sem er heilandi. Við gerðum þennan tíma að gleði­stund,“ segir Aðal­heiður í sam­tali við Vikuna.

Aðal­heiður tekur fram að þau Tryggvi hafi ekki orðið mikið veik. „Við fundum fyrir ein­hverjum smá­vegis ein­kennum í tvo til þrjá daga. Þetta var það lítið að ef við hefðum ekki vitað að við værum með COVID hefðum við gert alla þá hluti sem við erum vön að gera.“

„Ótti er það versta þegar þú ert veikur…“

Aðal­heiður er þjálf­ari hjá Primal Iceland og jóga­kenn­ari fyrir börn. Hún segir þann bak­grunn hafa hjálpað við að til­einka sér þetta við­horf, að sjá tæki­færin sem fel­ast í því að vera í ein­angrun í tvær vikur. „Við erum bæði mjög með­vituð um lík­am­lega og and­lega heilsu og það hjálpar klár­lega. Við vitum hvað virkar. Ótti er það versta þegar þú ert veikur, ótti veldur streitu sem dregur athygl­ina út á við í „fight and  flight“-ástand. Þegar við erum veik viljum við beina orkunni inn á við að ónæm­is­kerfi lík­am­ans með því að vera í „rest and dig­est“ eða „parasympathetic“-tauga­kerf­inu. Það er alls ekki jákvætt að liggja bara upp í sófa og borða nammi og horfa á fréttir, það mun ekki hjálpa þér að ná bata,“ útskýrir Aðal­heiður.

Hún bætir við: „Við vissum að við yrðum saman í ein­angrun í tvær vikur og fórum strax að hugsa hvað við gætum gert til að gera þann tíma gleði­legan og upp­byggi­legan fyrir okkur. Og það tókst, við höfum lært hell­ing um heilsu og heil­brigði, hafa gaman og hlæja. Það skemmir ekki fyrir að við eigum sömu áhuga­mál og elskum að vera saman.“

Bara jákvætt sjónvarpsefni

Aðal­heiður segir að þau hafi þá vandað valið þegar kom að sjón­varps­efni sem þau horfðu á í ein­angr­un­inni. „Við horfðum bara á það sem er jákvætt og skemmti­legt. Við kveiktum ekki á fréttum og báðum fólk um að hlífa okkur við öllum hryll­ings­sögum, fólk vill oft fara í þann pakka.“

Aðal­heiður hefur und­an­farið skrifað færslur á Facebook þar sem hún hvetur fólk sem þarf að fara í ein­angrun eða sótt­kví að nýta tím­ann í að end­ur­skoða lífs­stíl­inn. „Ég hvet fólk til að líta á ein­angr­un­ina sem tæki­færi.“

„Þetta minnir mann á hvað það er mik­il­vægt að skapa sér líf án óþarfa streitu.“

Aðal­heiður segir að hún sjálf hafi upp­lifað nýja líðan á und­an­förnum tveimur vikum. „Í þessar tvær vikur hef ég farið algjör­lega slök upp í rúm á kvöldin, af því að ég veit að ég er ekki að fara að gera neitt næsta dag, fyrir utan að sinna and­legri og lík­am­legri heilsu heima hjá mér. Og mig dreymir alveg svaka­lega mikið sem þýðir að ég er í miklum djúpsvefni. Þetta finnst mér merki­legt að upp­lifa, þetta minnir mann á hvað það er mik­il­vægt að skapa sér líf án óþarfa streitu. Við þurfum líka að læra að þekkja hvenær við erum að detta inn í streitu­á­stand og hafa tæki og tól til að koma sér út úr því.“

Aðal­heiður og Tryggvi klára tveggja vikna ein­angr­un­ina á morgun. „Við höfum ekki einu sinni farið út í garð, en þetta hefur ekki truflað mig á neinn hátt. Þetta hefur bara verið bjútífúl.“

Aðal­heiður tekur fram að hún muni byrja að bjóða upp á einka­tíma í Primal Iceland, frá og með fimmtu­deg­inum. Þá mun hún einnig bjóða upp á einka­tíma og ráð­gjöf í gegnum Zoom. „Fyrir fólk sem er fast í sótt­kví eða ein­angrun, bæði fjöl­skyldur og ein­stak­linga. Þannig að ef þú vilt fá leið­sögn um öndun, teygjur, styrkta­ræf­ingar eða ann­ars konar ráð­gjöf tengdri lík­am­legri og and­legri heilsu þá endi­lega hafðu sam­band á [email protected] eða í síma 8632290.”

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Fólk

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina