Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

„Þeir voru margir sem syrgðu eftir þessa örlagaríku nótt“

Lífs­reynslu­saga úr Vikunni Ég hef alla tíð verið ber­dreymin þrátt fyrir að hafa ekki þroskað þennan hæfi­leika minn sér­stak­lega og í gegnum árin hefur mig oft dreymt fyrir tíð­indum, sér­stak­lega sem varða mig og fjöl­skyldu mína. Draumar eru merki­legt og í raun ein­stakt fyr­ir­bæri, sem taka ber mark á.

Ég man ótal drauma sem mig hefur dreymt um ævina, enda hef ég lært að þeim ber ekki að taka af léttúð. Þegar okkur dreymir erum við oft að vinna úr eigin reynslu og upp­lif­unum og draum­arnir bera okkur gjarnan skila­boð úr hinni öfl­ugu und­ir­með­vit­und. Þeir geta hins vegar líka verið annað og meira. Það hefur reynslan kennt mér.

„Sami draumur sótti endurtekið á mig“

Í minn­ingum mínum kemur fyrst upp draumur sem mig dreymdi aðfara­nótt 16. sept­em­ber árið 1961. Tíðin hafði verið slæm og veðrið minnti vel á sig þessa erf­iðu nótt. Vind­ur­inn gnauð­aði og mér fannst í mér ein­hver beigur sem ég gat ekki útskýrt eða skilið af hverju staf­aði. Ég lá lengi and­vaka en leið loks inn í drauma­landið. Svefninn varð þó ekki vær. Sami draum­ur­inn sótti end­ur­tekið á mig alla nótt­ina og sífellt voru mér birt blöð með svörtum ramma og krossi. Í ramm­anum stóð talan 16.

Ég vakn­aði snemma og var þreytt og eftir mig, enda rann þessi óþægi­legi draumur mér ekki úr minni allan morg­un­inn. Ég gat þó ekki tengt hann við neitt og kenndi því veð­urofs­anum um óþæg­indi næt­ur­innar. Undir hádegi fékk ég skila­boð um að hringja í for­eldra mína þar sem ekki hefði náðst í mig. Ég vissi ekki til þess að þeir ættu við mig erindi og þessi sami beigur og ég hafði fundið fyrir kvöldið áður hellt­ist yfir mig af fullum þunga.

Ég tók upp sím­tólið, hringdi og beið þess sem verða vildi. Ég gleymi aldrei rödd­inni í mömmu þegar hún til­kynnti mér að bróðir minn væri lát­inn. Hann varð bráð­kvaddur þar sem hann svaf í skála á fjöllum ásamt ferða­fé­lögum sínum. Síðar kom í ljós að ástæðan var hjarta­á­fall en bróðir minn var ungur og hafði alla tíð verið hraustur fjalla­garpur. Hann var yngstur ferða­lang­anna í þess­ari síð­ustu ferð vin­anna sum­arið 1961 og þeir voru margir sem syrgðu eftir þessa örlaga­ríku nótt.

Máttlaus á miðilsfundi

Þremur dögum síðar dreymdi mig að látin föð­ur­systir mín kom til mín og sagði: „Ekki hafa áhyggjur, bróðir þinn verður jarð­aður við hlið­ina á mér,“ en áður hafði okkur fjöl­skyld­unni verið sagt að ekk­ert pláss væri laust í þessum graf­reit, þar sem afi minn og amma, ásamt föð­ur­systur hvíldu. Á síð­ustu stundu vorum við látin vita að hægt yrði að jarða hann hjá þeim.

„Ég vissi ekki hverju ég ætti að trúa og fannst ég ekki geta rætt reynslu mína við neinn.“

Nokkrum dögum eftir jarð­ar­för­ina fannst mér sem bróðir minn kæmi að rúmi mínu og brosti til mín. Hann hvarf jafn­skjótt aftur en í stað hans kom kona, sem ég þekkti ekki, að rúm­inu. Hún leit hlý­lega á mig, beygði sig niður til mín og hvísl­aði svo: „Hvers vegna þjálfar þú ekki upp þennan hæfi­leika sem þér er gef­inn?“ Síðan leið hún aftur frá. Á meðan á öllu þessu stóð fannst mér ég vera ein­hvers staðar á milli svefns og vöku en minn­ingin um bróður minn og kon­una var afar skýr og er það enn þann dag í dag.

Ég vissi ekki hverju ég ætti að trúa og fannst ég ekki geta rætt reynslu mína við neinn. Ég fann ekki hjá mér löngun eða kraft til að þroska þessa hæfi­leika mína frekar en mundi þó alltaf orð kon­unnar. Tveimur árum síðar fór ég á mið­ils­fund með vin­konu minni. Við fengum okkur sæti og ég virti fyrir mér rökkvað en nota­legt her­bergið áður en mið­ill­inn, sem var kona, gekk inn.

Fund­ur­inn hófst og fljót­lega fann ég að ég fór að missa til­finn­ingu og varð á skömmum tíma mátt­laus upp að mitti. Ég gat alls ekki hreyft mig. Mið­ill­inn tók strax eftir þessu, leit hug­hreystandi á mig og sagði svo: „Æ, ertu svona, vinan. Ekki vera hrædd við þetta. Það líður hjá.“ Til­finn­ingin leið vissu­lega hjá og í nokkurn tíma eftir þetta varð ég ekki fyrir upp­lif­unum sem ég gat ekki útskýrt. Mér varð þó oft hugsað til mið­ils­ins, sem hafði virst skilja hvernig mér leið og kon­unnar hlý­legu úr draumnum.

Tíðindi við heimkomu

Rúmum tutt­ugu árum síðar hafði ég verið á mán­að­ar­löngu ferða­lagi um mið- og suð­ur­hluta Ameríku og eðli­lega verið í litlu sam­bandi við fjöl­skyldu mína þann tíma. Örfáum dögum fyrir heim­för fór ég að finna fyrir und­ar­legri til­finn­ingu. Það var eins og ég hefði ein­hvern beyg og upp í hug­ann kom nóttin örlaga­ríka árið 1961. Um nótt­ina dreymdi mig föður minn og var hann gulur á lit og allur mjög veiklu­legur. Sömu nótt dreymdi mig einnig systur mína sem var gift frönskum manni. Þau höfðu verið búsett í Frakk­landi í mörg ár og þótt við syst­urnar héldum góðu sam­bandi hitt­umst við sjaldan á þessum árum.

„Ég fékk mér sæti hjá henni og var viss um að mín biðu frek­ari tíð­indi. Því miður hafði ég rétt fyrir mér.“

Í draumnum var systir mín fót­brotin og mér fannst sem hún mjak­aði sér áfram á hækjum ein­hvers staðar í mik­illi eyði­mörk. Þessir draumar gerðu mér bilt við og mér leið illa morg­un­inn eftir enda vissi ég ekki betur en að allt væri í lagi hjá bæði föður mínum og systur. Ég var óró­leg og ákvað að finna síma til að hringja í móður mína, þótt ekki væri nema til að láta vita af mér. Hún var glöð að heyra í mér, lét sem ekk­ert væri og kvaðst hlakka til að sjá mig. Mér fannst gott að tala við hana en ónota­til­finn­ingin fylgdi mér út ferða­lagið.

Þegar ég kom heim aftur flýtti ég mér til for­eldra minna. Ég hafði saknað þeirra en var samt dálítið stressuð þegar ég barði að dyrum. Systir mín kom til dyra. Við föðm­uð­umst og hún sagði mér að hún væri skilin og hefði verið á svolitlu flakki á milli vina sinna í Evrópu til að jafna sig. Við gengum svo inn í stofu þar sem móðir mín beið okkar. Ég fékk mér sæti hjá henni og var viss um að mín biðu frek­ari tíð­indi. Því miður hafði ég rétt fyrir mér. Hún til­kynnti mér að faðir minn væri kom­inn með krabba­mein og nokkrum mán­uðum síðar var hann allur. Sjálf­sagt hefur bróðir minn tekið vel á móti honum.

Kveðja hrafnsins

Í seinni tíð hef ég verið opn­ari fyrir boð­skap drauma minna. Nokkrum mán­uðum áður en ég tók þá ákvörðun að skilja við eig­in­mann minn dreymdi mig að hrafn sett­ist í eld­hús­glugg­ann hjá mér, en ég hafði haft það fyrir sið að ganga út á holtið skammt frá heim­ili mínu og tala við hrafn­ana. Hrafninn var kom­inn þarna í glugg­ann til mín til að kveðja mig og þakka fyrir sam­ver­una. Eftir draum­inn vissi ég að ákvörð­unin um skilnað hafði þegar verið tekin.

Ég er ekki hrædd við draumana. Þeir gera mér ekki mein heldur hjálpa mér að skilja betur sjálfa mig og líf mitt. Þrátt fyrir orð hlý­legu kon­unnar hef ég ekki þroskað hæfi­leika minn mark­visst en með árunum hef ég orðið opn­ari fyrir því sem draum­arnir hafa fram að færa. Þeir eru í raun aðeins leið til að bera mér skila­boð frá mínum innsta kjarna eða frá æðri mátt­ar­völdum sem ég kann ekki frek­ari deili á. Hvað sem um ræðir þá geta þeir ekki verið af hinu slæma. Þeir til­heyra mér og eru órjúf­an­legur hluti af mér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Fólk

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina