Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Vill gefa ósýnilega fólkinu rödd

Vill gefa ósýnilega fólkinu rödd

Vilborg Dav­íðs­dóttir var að senda frá sér skáld­sög­una Undir Ygg­drasil þar sem hún heldur áfram að segja sögur kvenna á land­náms­öld. Í þess­ari bók er sögu­hetjan Þor­gerður Þor­steins­dóttir, son­ar­dóttir Auðar djúpúðgu sem Vilborg skrif­aði þrí­leik um. Sterk kona sem fer sínar eigin leiðir, brýtur hefðir, upp­lifir djúpa sorg og menntar sig í völvu­fræðum.

Þótt sagan ger­ist árið 900 talar umfjöll­un­ar­efnið beint inn í sam­tím­ann, enda segir Vilborg að hlut­skipti mann­eskj­unnar sé ekki tíma­bundið, við séum alltaf að fást við okkur sjálf og til­finn­ingar okkar.  „Mér finnst þessi horfni heimur land­náms­fólks­ins svo gríð­ar­lega heill­andi, sér í lagi yfir­nátt­úru­legi hluti hans,“ segir Vilborg þegar hún er spurð hvernig á því standi að hún haldi áfram að segja sögu ætt­fólks Auðar djúpúðgu í Undir Ygg­drasil. „Þegar ég ákvað að skrifa um Auði á sínum tíma tók ég þá stefnu að velja þá gerð sög­unnar um hana sem segir að hún hafi verið kristin. Þannig að þegar ég hef verið að sýna heiðna trú í þrí­leiknum hefur það alltaf verið í gegnum augu auka­per­sóna og áhorf­enda. Ég hef ekki fyrr en núna haft frelsi til að sýna heið­inn sið innan frá, frá sjón­ar­horni aðal­per­són­unnar Þor­gerðar sem þráir það heit­ast af öllu að nema kunn­áttu af völvu og verða ein slík sjálf. Mér hefur alltaf fund­ist gaman að skrifa og alltaf fund­ist ég vera í besta starfi í heimi, en ég hef sjaldan skemmt mér eins vel og á meðan ég var að skrifa þessa bók.“

Samkynhneigðir sjást ekki í sagnaarfinum

Talandi um konur sem gera hluti sem ekki tíðk­að­ist að konur gerðu á þessum tíma þá virð­ast þær heilla Vilborgu mikið. Hefur hún femíníska hugsun að leið­ar­ljósi þegar hún velur sér við­fangs­efni?

„Já, þegar ég er að skrifa skiptir það mig máli að varpa ljósi á sögur og hlut­skipti kvenna,“ segir hún. „Vegna þess að þær hafa auð­vitað staðið í skugga karla­veld­is­ins alla tíð. Þetta er helm­ingur mann­kyns en allar bók­menntir, allar frá­sagnir og öll sagn­fræði þar til mjög nýlega, er skrifuð af körlum um karla og fyrir karla. Það að vera kona sést ekki í sög­unni almennt og það skiptir mig máli að sýna hvernig lífið hefur verið fyrir þennan helm­ing mann­kyns­ins og auð­vitað ekki bara konur heldur sam­fé­lagið allt. Ég vil lyfta upp sjón­ar­horni þeirra og ann­arra sem hafa enga rödd, til dæmis barna og fólks með fötlun, þeirra sem eru mis­rétti beittir. Í þess­ari bók er ég í fyrsta skipti með per­sónu sem er sam­kyn­hneigður karl og það er fólk sem við sjáum ekki heldur í sagna­arf­inum, þetta er ósýni­lega fólkið sem ég vil gefa rödd. Mér finnst það mjög mik­il­vægt.“

Í Undir Ygg­drasil er einmitt fjallað um ýmis fleiri mál sem eru ofar­lega á baugi í sam­tím­anum, til dæmis kyn­ferð­is­brot gegn barni, ein­elti og móður sem ekki teng­ist börnum sínum. Þannig að þótt Vilborg skrifi sögu sem ger­ist árið 900 er hún að fjalla um hluti sem eru brenn­andi í umræð­unni í dag en ítar­legt við­tal er við hana í nýj­ustu Vikunni þar sem hún talar einnig um hvernig sorgin hafi opnað henni nýja sýn.

Tryggðu þér áskrift að Vikunni í vef­verslun >

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Fólk

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina