Thor Aspelund, prófessor í líftölfræði segist óttast bakslag í kringum 20. des fari fólk ekki varlega þrátt fyrir örlitlar tilslakanir.
Margir eru eflaust áhyggjufullir um að erfitt verði að halda í hefðirnar og jólin verði ekki eins hátíðleg og áður. Fjölskyldur gætu átt erfitt með að hittast vegna fjöldatakmarakana og ótta við sýkingu.
Margir hugga sig hins vegar við það að frá á með morgundeginum verða tilslakanir. Þær snúa fyrst og fremst að þjónustu með mikilli nánd og börnum og unglingum. Fjöldatakmarkanir haldast almennt óbreyttar og hámarksfjöldi þeirra sem mega koma saman helst í tíu manns.
Áfram verður grímuskylda en þeir sem hafa fengið COVID-19 mega sleppa því að bera grímu – hafi þeir vottorð þess efnis.
Hárgreiðslustofur, nuddstofur og snyrtistofur opna á ný. Aftur mega krakkarnir stunda íþróttir og æskulýðsleiki. Grímuskylda fellur niður hjá krökkum í 5-7 bekk í grunnskólum og fjöldatakmarkanir í framhaldsskólum rýmkar úr 10 í 25 manna takmörkun.
Thor Aspelund sagði í kvöldfréttum Stöðvar 2 óttast bakslag í kringum 20. desember fari fólk ekki varlega. Hann hvatti fólk til að gefa krökkunum rými og þá fullorðnu til að halda sér til hlés fram í miðjan desember til að koma í veg fyrir bakslag.































Athugasemdir