Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Neytandi vikunnar: Veiðir sér til matar, gerir slátur og tíu sortir

Neytandi vikunnar: Veiðir sér til matar, gerir slátur og tíu sortir
Jódís Skúla­dóttir er með­vit­aður neyt­andi. Mynd: Gunnar Gunnarson / Austurglugginn

Jódís Skúla­dóttir, lög­fræð­ingur, verk­efna­stjóri hjá Aust­ur­brú og sveit­ar­stjórn­ar­full­trúi  í Múla­þingi er neyt­andi vik­unnar að þessu sinni.

Jódís flutti fyrir nokkrum árum aftur heim í Fellabæ, hvar hún sleit barns­skónum, eftir að hafa búið í höf­uð­borg­inni um ára­bil. Þar býr Jódís nú ásamt þremur börnum sínum, tveimur kisum og einum naggrís. Elsti sonur hennar er upp­kom­inn og býr í Reykja­vík. Það er því í mörg hornin að líta. En þrátt fyrir miklar annir nostrar Jódís við heim­ilið og börnin og lætur sjaldan eftir sér ein­faldar lausnir sem gjarnan ein­kenna nútíma­heim­ili.

„Ég reyni að vera eins sjálf­bær og ég get. Ég veiði á stöng og stunda skot­veiðar í þeim eina til­gangi að veiða mér til matar. Ég er t.d. að fara ferma í vor og sótti því um hrein­dýra­veiði­leyfi fyrir árið í ár svo ég ætti nóg til af veislu­mat. Ég ber mikla virð­ingu fyrir nátt­úr­unni og tek það fram að ég myndi aldrei skjóta fíl!“

Jódís lýsir sér sem ábyrgum neyt­anda. Hún vilji vita upp­runa vör­unnar og forð­ast mikið unnar vörur. Þá eru loft­lags­málin henni hug­leikin og m.a. af þeim sökum velji hún stað­bundnar afurðir eins og kostur er.

„Ég baka mikið sjálf og reyni að kaupa bara þessar grunn­vörur sem ég get ekki fram­leitt sjálf. Ég rækta græn­meti og krydd­jurtir, sulta, geri kæfu, slátur og sviða­sultu. Ég kaupi kjöt og fisk beint af býli. Börnin taka þátt í þessu öllu saman og við stundum í leið­inni mikla úti­vist saman.“

Svona var Jódís alin upp. Þetta hefur henni alltaf þótt sjálf­sagt og nú er komið að henni að miðla áfram til sinna barna og þar er eng­inn afsláttur gef­inn.

„Við ákveðum alltaf mat­seðil vik­unnar og verslum bara einu sinni í viku. Þetta hefur breytt lífi okkar að mörgu leyti. Við sóum mun minna af mat og fækkum ferðum til og frá búð­inni. Þetta er bæði umhverf­is­vænna og sparar okkur hell­ings tíma.“

Börnin taka svo þátt í elda­mennsk­unni, hvert þeirra á sinn dag í eld­hús­inu og hjálpar til. „Þetta eru dýr­mætar sam­veru­stundir. Elur með þeim sjálf­bærn­is­hugsun og ákveðna með­vit­und. Mér finnst mik­il­vægt að halda í svona hefðir.“

Þá er Jódís mikið jóla­barn og er að sjálfs­sögðu búin að öllu fyrir jólin. „Ég er búin með laufa­brauðið og búin að baka 10 sortir.“

En hvað með fatnað?

„Ég hef van­ist því að kaupa not­aðan fatnað. Þannig var það í mínu upp­eldi. Pokar gengu á milli, ég er líka yngst svo mér hefur þótt þetta mjög eðli­legt. Ég er ekki til­búin að borga fyrir merkjaflíkur, sem kosta marg­falt meira en raun­veru­legt virði. En þetta getur verið snúið í upp­eld­inu. Nú vill ung­lings­strák­ur­inn minn merkja­vörur og hef bara sagt honum að kaupa þær á sinn eigin reikn­ing. Þau rang­hvolfa stundum aug­unum og botna ekk­ert í mér. En ég held þau séu samt voða ánægð með mig.“

En allir eiga nú sína veik­leika, hvað finnst Jódísi erf­ið­ast að neita sér um?

„Pepsi Max, þar er ég er veik­ust á svell­inu!“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Tækið er sagt geta borið fjóra fullorðna einstaklinga
Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Svipuð atvik hafa komið upp við heimili Ragnars frá árinu 2023
Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti