Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Jólaævintýri á Hótel Rangá – Þrettán réttir og þjónað til borðs

Stúdíó Birtíngur í sam­starfi við Hótel Rangá

Hótel Rangá býður upp á ómót­stæði­legan þrettán rétta jóla­seðil á aðvent­unni. Yfimat­reiðslu­meist­ar­inn Emil Örn Val­garðs­son hefur sett saman veg­legan jóla­seðil sem sam­anstendur af fjöl­breyttum og girni­legum jóla­réttum. Græn­kerum til mik­illar gleði er einnig boðið upp á þrettán rétta vegan-jóla­seðil.

Á Hótel Rangá er hefð fyrir því að halda glæsi­legt jóla­hlað­borð í des­em­ber en í ljósi aðstæðna býður hót­elið upp á skemmti­lega nýj­ung í ár. Í stað­inn fyrir hefð­bundið hlað­borð verður gestum þjónað til borðs og boðið upp á þrettán hefð­bundna rétti með nýstár­legu tvisti sem allir eru ómissandi partur af jól­unum.

„Þarna erum við auð­vitað að vísa til íslensku jóla­svein­anna þrettán.“

„Þegar það var ljóst að við gátum ekki verið með jóla­hlað­borð í ár vegna far­ald­urs­ins brugðum við á þetta ráð, að bjóða upp á þrettán rétta jóla­mat­seðil. Þarna erum við auð­vitað að vísa til íslensku jóla­svein­anna þrettán,“ segir Kolbrún Jóns­dóttir, mót­töku­stjóri á Hótel Rangá. Hún segir starfs­fólk Hótels Rangár leggja áherslu á að gera íslenskum jóla­hefðum hátt undir höfði í kringum hátíð­irnar.

Eyrún Aníta Gylfa­dóttir, mark­aðs­stjóri á Hótel Rangá, tekur undir með Kolbrúnu. „Okkur þykir gaman að halda íslensku jóla­hefð­irnar og und­an­farin ár hafa gestir okkar til að mynda fengið „í skó­inn“ í des­em­ber. „Við hengjum poka á hurð­ar­hún­inn hjá gestum og gleðjum þá með ein­hverju góð­gæti, ávöxtum eða íslensku nammi sem við setjum í pok­ana,“ segir Eyrún.

Kolbrún bætir við: „Svo fylgir lítið blað með gjöf­unum sem hefur að geyma upp­lýs­ingar um þann til­tekna jóla­svein sem kom til byggða þá nótt­ina. Þetta hefur vakið mikla lukku.“

Það eru nem­end­urnir í Grunn­skól­anum á Hellu sem sauma litlu pok­ana sem hengdir eru á hurð­ar­hún­inn hjá gest­unum. „Þetta hefur verið skemmti­legt sam­starfs­verk­efni með Grunn­skól­anum á Hellu þar sem pok­arnir eru hand­gerðir af nem­endum skól­ans úr end­ur­nýttum sæng­ur­verum frá hót­el­inu. Við höfum svo styrkt skól­ann með kaupum á þeim tækjum sem vantar fyrir textíl­kennsl­una,“ segir Eyrún.

Dásamlegur veganjólaseðill fyrir grænkera

Spurð nánar út í jóla­seð­il­inn segir Eyrún: „Þetta er útfært í sam­vinnu við Emil Örn mat­reiðslu­meist­ara. Við höfum und­an­farin ár haldið skand­in­av­ískt jóla­hlað­borð en aldrei farið þessa leið og Emil var mjög áhuga­samur að ráð­ast í þetta nýja verk­efni. Nú verður þjónað til borðs og mis­jafnt hvort rétt­irnir komi á sér­diskum eða eru reiddir fram á platta fyrir allt borðið. Við hlökkum mikið til að taka á móti gestum okkar þar sem þeir munu njóta aðvent­unnar hjá okkur yfir góðum mat,“ segir Eyrún.

Kolbrún og Eyrún segja mikla spennu ríkja yfir vegan-jóla­seðl­inum. „Þegar við vorum að setja jóla­seð­il­inn saman vildum við líka geta boðið upp á vegan-jóla­rétti og nið­ur­staðan var sú að gera vegan­út­gáfu af öllum þrettán rétt­unum,“ segir Eyrún. „Við höfum fengið frá­bær við­brögð við þess­ari nýj­ung og greini­legt að margir græn­kerar eru mjög ánægðir með fram­takið hjá okkur. Rétt­irnir eru allir inn­blásnir af þessum hefð­bundnu jóla­réttum og útfærðir á mjög skemmti­legan hátt.“

Kolbrún bendir áhuga­sömum á að nálg­ast nán­ari upp­lýs­ingar á hot­el­ranga.is og bóka í gegnum síma 487-5700 eða með tölvu­pósti á [email protected]. „Áhuginn er mik­ill og margir þeirra sem hafa komið árlega til okkar á jóla­hlað­borðið eru byrj­aðir að bóka.“

Jóla­seð­ill­inn verður í boði allar helgar á Hótel Rangá frá og með 27. nóv­em­ber fram að jólum. „Ef aðstæður í sam­fé­lag­inu leyfa munum við svo geta tekið á móti hópum sem telja tíu manns eða fleiri, í jóla­seð­il­inn á virkum dögum,“ segir Eyrún.

Verð á mann í jóla­seð­ill er 10.900 krónur. Verð fyrir jóla­seðil og gist­ingu fyrir tvo er frá 49.900 krónum. Nánari upp­lýs­ingar á hot­el­ranga.is.

Myndir / Hallur Karlsson

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Kynning

Efni unnið í samstarfi við auglýsendur