Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

„Ég þekki einmana fólk sem fáa grunar að sé einmana“

„Ég þekki einmana fólk sem fáa grunar að sé einmana“

Eftir / Stein­grím Sævarr Ólafsson

Maðurinn einn er ei nema hálfur,

með öðrum er hann meiri en hann sjálfur

-Einar Bene­dikts­son

Það er lík­lega fátt verra en ein­mana­leiki. Að upp­lifa félags­lega ein­angrun, að finn­ast maður yfir­gef­inn, einn, vina­fár, jafn­vel vina­laus, að maður sé ekki nógu góður eða skemmti­legur. Í eðli­legu árferði er það nógu erfitt, á Covid tímum tals­vert meira og svo bætum við jóla­mán­uð­inum sjálfum við, þegar allir eiga nóg með sig og sína nán­ustu, stress nær hámarki og til­finn­ingin er sú að maður EIGI að vera glaður og sáttur. Slíkar til­finn­ingar fara illa í sál­ar­tetrið. Til að bæta gráu ofan á svart sýna rann­sóknir að ein­mana­leiki er bein­línis lík­am­lega óhollur, hann hefur bein áhrif á heilsu og jafn­vel lífslíkur. Svo ein­mana­leiki er vondur bæði fyrir sál og lík­ama.

Sam­komu­bann, heim­sókn­ar­bann, lok­anir staða…allt hefur þetta síðan ýtt undir enn meiri ein­mana­leika hjá fjöl­mörgum. Jú, við vitum örugg­lega öll af ein­mana fólki, eldra fólki, sjúk­lingum og svo mætti áfram telja. Sumir eru ein­mana af því að þeir eiga fáa vini, hafa lítið stuðn­ings­net, eiga litla fjöl­skyldu, vinna á fámennum vinnu­stöðum eða eiga í erf­ið­leikum með að tengj­ast öðrum félags­lega. Aðrir verða ein­mana í kjöl­far skiln­aðar, and­láts maka, upp­sagnar á vinnu­stað. Ástæð­urnar eru margar, grein­ingin marg­slungin, en ein­kennin eru ekki alltaf áber­andi út á við. Ein­mana­leiki sést nefni­lega ekki utan á fólki.

Þá hefur verið sýnt fram á að sam­fé­lags­miðlar hafa ýtt undir og ýkt ein­mana­leika hjá mörgum. Glan­s­tjöldin sem blakta svo skært en eng­inn fær í raun risið undir. Það er auð­veld­ara að þykj­ast vera allt annað en einn, að þykj­ast vera félags­vera við bjarma tölvu­skjás­ins eða sím­ans, þegar raun­veru­leik­inn er allt annar. Því bjart­ara sem glans­lífið á skjánum oft er, því dimmara er heima við.

Ég þekki ein­mana fólk sem fáa grunar að sé ein­mana. Fólk sem póstar svo oft skemmti­legum hlutum, myndum og upp­á­komum á Facebook og Instagram. Það er stundum að fela van­líðan, van­sæld og ein­mana­leika. Sumar færslur eru kall á hjálp. Og ég held að ein­mana­leiki sé algeng­ari en við höldum. Ég held nefni­lega að öll séum við stundum ein­mana. Bara mis­mikið.

Sjálfur á ég ynd­is­leg börn, frá­bæra vini og góða fjöl­skyldu. En þegar kvölda tekur eða þegar helg­arnar renna upp, þá hef ég stundum fundið fyrir ein­hverju sem ég hef hingað til kallað eirð­ar­leysi. Mér fannst það alltaf svo fínt orð yfir það sem var að ger­ast. „Ég er eitt­hvað eirð­ar­laus, ég ætla í göngu“, hef ég sagt. Ég reyni að vera dug­legur að vera með fjöl­skyld­unni, hitta vin­ina, en það eru tak­mörk fyrir því hvað maður getur lagt á fólkið í kringum sig. Það á sína fjöl­skyldu sem það þarf að sinna, aðra vini og hugð­ar­efni.

Ég hef aldrei litið á sjálfan mig sem ein­mana. En það rann upp fyrir mér um dag­inn, þar sem ég sat heima, horfði í gaupnir mér og tók svo fram göngu­skó, keyrði út í blá­inn og gekk í þrjá tíma til þess eins að þreyta mig svo ég myndi sofna fyrr um kvöldið, að já, ég get verið ein­mana. Ég kall­aði ein­mana­leik­ann bara öðru orði, ég kall­aði hann eirð­ar­leysi, til að mér liði betur. Ég þurfti ítar­lega sjálf­skoðun og full­kom­inn heið­ar­leika við sjálfan mig til að við­ur­kenna stað­reyndir. Já, ég er stundum ein­mana. En vit­iði…ég er bara mann­legur, mér má alveg stundum líða illa, sakna, vilja félags­skap. Það er eðli­legt. Og ég þarf að mæta mér, sýna mér mildi og skiln­ing. Að við­ur­kenna og takast svo á við verk­efnið. Og þau eru alltaf næg verk­efnin. En ég vil líta út á við, horfa til ann­arra sem eru að glíma við þennan fjára og ég held að við þurfum að gera það öll.

Það eru svo margir sem eru ein­mana, sem þurfa á félags­skap að halda, þurfa á þér að halda. Heimsókn, sím­tal, tölvu­póstur, spjall á Messen­ger. Allt getur hjálpað. Maðurinn er félags­vera, hann þarf annað fólk. Hann þarf teng­ingar. Nú í des­em­ber sér­stak­lega. Eins og Einar Ben orð­aði það í hend­ing­unni í upp­hafi færsl­unnar, þegar maður er einn, þá er maður bara hálfur. Maður þarf félags­skap til að verða heill.

Eigum við að gefa hvert öðru það í jóla­gjöf í ár að hafa sam­band við fólkið okkar, vin­ina okkar og gera eitt­hvað í þessu? Það er nefni­lega sælla að gefa en þiggja…vin­skap og teng­ingar.

Höfundur er fjöl­miðla­ráð­gjafi og almanna­teng­ill undir Sævarr slf.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Fólk

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina