Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Borðaði spagettí í jólamatinn klædd lopapeysu og síðum nærbuxum

Borðaði spagettí í jólamatinn klædd lopapeysu og síðum nærbuxum

Auður Jóns­dóttir rit­höf­undur seg­ist hafa upp­lifað alls konar ólík og eft­ir­minni­leg jól, en það eru þó þau jól sem ekki voru haldin á hefð­bund­inn hátt sem koma fyrst upp í huga hennar þegar hún er beðin að rifja upp sína skemmti­leg­ustu jóla­minn­ingu. Spagettí í jólamat­inn í nístandi köldu hús­næði í Barcelona og óvenju­legt jóla­sam­kvæmi í Kaup­manna­höfn eru efst á blaði.

„Eig­in­lega, þegar ég hugsa út í það, hef ég upp­lifað alls konar mjög ólík og eft­ir­minni­leg jól,“ segir Auður hugsi.  „Ég man eftir jólum þegar ég var nýflutt til Barcelona, ásamt fyrr­ver­andi eig­in­manni, og við ætl­uðum að kaupa humra á stóra mat­ar­mark­aðnum í hátíð­ar­mat­inn. Við fórum þangað á síð­ustu stundu en þegar til kast­anna kom, þá voru þeir lif­andi með bundnar klær og mér óx þetta eitt­hvað í augum, minnug bíó­myndar þar sem lif­andi humrar sluppu lausir, svo það end­aði með að við borð­uðum bara spa­gettí í ískulda því við bjuggum í risi sem var kynnt upp með ein­hvers konar sól­ar­kynd­ingu sem virk­aði ekki sem skyldi svo við skulfum úr kulda. Ég hafði þá fengið lopa­peysu frá ömmu minni í jóla­jöf og var í henni og senni­lega þremur pörum af ull­ar­sokkkum og í síðum nær­buxum og lík­lega mest langað til að vera í úlpu. En það var mjög fal­legt í Barcelona á þessum tíma, í hverf­inu okkar lá stöðug angan af kryddum og reyk­elsum, ilm­ur­inn var reyndar ekki bara á jól­unum heldur alla daga því þarna voru margar búðir og líka veit­inga­staðir í eigu araba. Eitthvað svo sen­sjúal and­rúms­loft sem gerði jólin ein­stak­lega jóla­leg.“

Auður lætur þó ekki þar staðar numið og jóla­minn­ing­arnar streyma fram.

„Eins man ég eftir jólum þegar ég var ung, líka með fyrr­ver­andi eig­in­manni, í Kaup­manna­höfn,“ heldur hún áfram. „Fyrstu jólin sem við héldum tvö í útlöndum og það var svo­lítil upp­lifun að halda dönsk jól því þá rann svo vel upp fyrir manni að íslensku hefð­irnar voru svo margar danskar. Allt þetta ömmu­lega reynd­ist bara vera danskt. En við buðum íslenskum náms­manni að borða með okkur hangi­kjöt og líka frænku minni sem dvaldi í borg­inni. Hann var frekar hæg­látur með eft­ir­nafnið bóndi, og sómdi sér vel með hangi­kjöt­inu, en hún kom hins vegar blað­skellandi dressuð fyrir gott djamm með fullan poka af grasi, til að setja í jónu, sem hún, að mig minnir, hafði fengið í jóla­gjöf frá starfs­fé­lögum á breskri búllu í bænum, en hún var á leið að hitta þá eftir hangi­kjötið. Við snertum þó ekki á því heldur létum hangi­kjötið og ora­baun­irnar nægja og þetta urðu ein­hvern vegin svo mikið jól eins og ég hafði ímyndað mér þau hjá íslenskum náms­mönnum í Köben. En þau urðu fal­lega hátíð­leg og man að það var svo gaman að halda upp á jólin í fyrsta sinn upp á eigin spýtur.“

Eitthvað fleira sem rifj­ast upp?

„Held ég láti þetta duga, gæti haldið enda­laust svona áfram,“ segir Auður og brosir við minn­ing­arnar. „Man reyndar að í Köben fannst mér mjög þægi­legt þegar það allra heilag­asta var skollið á að geta hlaupið út í nær­liggj­andi búð múslima og keypt krydd sem vant­aði. Inni á heim­il­inu ríkti hátíð­leik­inn og RUV að senda út hátíð­lega þögn­ina, en úti  í fjöl­menn­ing­ar­legu hverf­inu ríkti allt annar veru­leiki og bara fólk að tjilla. Jú, og svo man ég ein jólin þegar mamma var hjá okkur í Köben, ein­beitt að elda þegar löggan hljóp inn í garð­inn og gott ef það hljóp ekki skot úr byssu. Allavega gall í henni: „Er bara verið að skjóta fólk hérna úti í garði hjá ykkur? En já, gleði­leg jól!““

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

„Þetta er ekki bara eitthvert mál, þetta er grafalvarlegt mál,“ sagði Stefán Vagn
Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Fólk

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Myndir
Fólk

Sögu­frægt sýslu­manns­setur við sjó­inn komið á sölu

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una