Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Ugla Stefanía klökk: „Fallegt að sjá fólk standa saman í þessu máli“

Ugla Stefanía klökk: „Fallegt að sjá fólk standa saman í þessu máli“
Ugla Stefanía. Mynd / Móa Hjart­ar­dóttir

„Það hefur verið ótrú­lega fal­legt að sjá þing­fólk standa saman í þessu máli og kveða burt rök­leys­una og til­raunir til að afvega­leiða umræð­una með öfug­snúnum áróðri og öfgum. Það sýnir að fræðsla og vit­und­ar­vakn­ing hefur áhrif og það gefur mér orku til að halda áfram,“ segir Ugla Stefanía Krist­jönu­dóttir Jóns­dóttir, um breyt­ingar á lögum um kyn­rænt sjálf­ræði sem voru sam­þykktar á föstu­dag.

Síðustu daga stóðu yfir umræður um breyt­ing­arnar sem miða að því að að tryggja rétt barna sem fæð­ast með ódæmi­gerð kynein­kenni og verja þau gegn ónauð­syn­legum skurð­að­gerðum. Fáeinir þing­menn gagn­rýndu frum­vörpin og sögðu þau meðal ann­ars svipta börn sjálf­sögðum og lífs­bæt­andi lækn­ingum. Hlutu þeir bágt fyrir. Páll Magn­ús­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, kall­aði gagn­rýn­ina þvætt­ing og upp­skar góðar und­ir­tektir í þing­sal. Frum­vörpin eru nú orðin að lögum.

„Það er ótrú­legt að upp­lifa þessa sam­stöðu,“ segir Ugla Stefanía, spurð hvernig hafi verið að sjá þá miklu sam­stöðu meðal þing­manna þegar þrjú frum­vörp rík­is­stjórn­ar­innar sem fela í sér breyt­ingar á lögum um kyn­rænt sjálf­ræði voru sam­þykkt á Alþingi í föstu­dag.

„Ég var að horfa á beina útsend­ingu þegar umræð­urnar áttu sér stað og varð satt að segja bara frekar meyr. Mér fannst mjög fal­legt hversu margt þing­fólk steig upp í pontu og sagð­ist styðja þetta mál og hversu margt mót­mælti útúr­snún­ingi þess þing­fólks sem lagð­ist gegn því. Í mínum augum sýndi þessi stuðn­ingur að þetta er mál­efni sem við eigum öll að geta skilið og stutt við, enda snýst það um að Ísland stígi fleiri skref í átt þess að bæta laga­lega stöðu trans fólks og inter­sex fólks. Þetta snýst bara um ein­föld mann­rétt­indi.“

Ættu að skammast sín

Ugla sem er for­maður Trans Íslands fer þó ekki leynt með þá skoðun að þeir þing­menn sem settu sig upp á móti mál­inu séu, að hennar mati, að stimpla sig inn sem fólk sem setji sig upp á móti miklum umbótum í mann­rétt­inda­málum.

„Mér finnst þessi mál­flutn­ingur ein­fald­lega vera fólki til skammar, því það er bók­staf­lega að segja að það sé í lagi að fram­kvæma óþörf og óaft­ur­kræf inn­grip á ung­börnum sem geta ekki veitt sam­þykki fyrir þeim, aðgerðir sem geta leitt til alvar­legs heilsu­far­s­vanda og fylgi­kvilla,“ segir hán og vísar þar í aðgerðir sem fram­kvæmdar eru á börnum sem eru inter­sex, eða með ódæmi­gerð kynein­kenni, til að laga kynein­kenni þeirra að vænt­ingum um dæmi­gert útlit og form kvenna og karla. „Hvernig ein­hver getur barist fyrir slíku er ofar mínum skiln­ingi. Fólk sem það gerir ber sann­ar­lega ekki hag barna fyrir brjósti.“

Hræðsluáróður

Ugla segir síðan rangt að nær engin umræða hafi átt sér stað um þessi mál hér­lendis, eins og ein­hverjir þing­menn héldu fram máli sínu til stuðn­ings, eða að um sé að ræða „blinda póli­tík“, eins og það var orðað, þar sem rík­is­stjórnin hafi hvorki tekið mark á vís­indum né lækn­ingum þegar hún lagði fram frum­vörpun þrjú.

„Þvert á móti hefur heil­mikil umræða átt sér stað um rétt­inda­mál trans fólks og hinsegin fólks sem hefur verið öllum aðgengi­leg. Ég held þetta snú­ist meira um það að fólk sé litað af mjög fjand­sam­legum og hatrömmum umræðum um trans mál­efni, eins og þær hafa verið ann­ars staðar, til dæmis í Bret­landi, sem á sér langa og erf­iða sögu þegar kemur að rétt­inda­málum hinsegin fólks. Sögu sem ætti ekki að vera öðrum til eft­ir­breytni. Ég ætla bara rétt að vona að slík við­horf nái ekki fót­festu hér­lendis, enda eiga þau ekk­ert erindi í rétt­látu lýð­ræð­is­sam­fé­lagi sem kennir sig við jafn­rétti og sann­girni,“ segir hán.

„Þetta snýst bara um ein­föld mann­rétt­indi.“

„Svo finnst mér líka að fólkið sem hefur hvað hæst um að ekki megi ræða hlut­ina sé í raun ekki til­búið að ræða við fólkið sem á í hlut. Og þetta fólk sem er hvað mest á móti þessum breyt­ingum, er oft­ast nær fólk sem er í engum tengslum við trans fólk eða inter­sex fólk eða bar­áttu­sam­tök þess. Því það má svo sann­ar­lega ræða hlut­ina. Ég held að vanda­málið sé bara miklu frekar að þetta fólk er ekki til­búið að með­taka svörin þegar kemur að þessum málum og vilji frekar trúa mis­vísandi áróðri og aft­ur­halds­semi.“

Hán seg­ist hvetja fólk því til að spyrja sig í fullri ein­lægni hvern eigi að taka alvar­lega í þessum efnum: trans fólk, inter­sex fólk, nútíma­rann­sóknir, sér­fræð­inga innan heil­brigð­is­kerf­is­ins, hinsegin sam­tök, femínísk sam­tök og mann­rétt­inda­sam­tök almennt — eða fólk sem er lítið sem ekk­ert inn í þessum málum. „Þessar laga­breyt­ingar byggja nefni­lega á stað­reyndum, vís­indum, sann­girni, jafn­rétti og skyn­semi,“ bendir hán á, „en ekki hræðslu­á­róðri, aft­ur­halds­semi eða öfug­snún­ingi.“

Mynd / Sharon Kil­gannon

Enginn undir 18 ára í kynleiðréttingu

Eitt af því sem fór hvað mest fyrir brjóstið á Uglu í vik­unni var sú umræða að fólk sem ekki er orðið sjálf­ráða eigi ekki að geta farið í kyn­leið­rétt­ingu. Hán segir þessa umræðu ein­fald­lega sýna að því miður ríki enn mikil van­þekk­ing á þeim stuðn­ingi og þjón­ustu sem trans börn og ung­lingar fá á Íslandi.

„Fyrir kyn­þroska snýst þetta ein­göngu um að veita börn­unum félags­legan stuðn­ing og leyfa þeim að tjá sitt kyn og sína kyn­vit­und. Það er svo ekki fyrr en á ákveðnu stigi kyn­þroska að ung­lingar geta fengið aðgengi að svoköll­uðum horm­óna­blokkerum, sem þau geta fengið aðgengi að, að vel íhug­uðu máli og með­ferð hjá sér­fræð­ingum og heil­brigð­is­starfs­fólki. Þessir horm­óna­blokkerar setja áhrif kyn­þroska tíma­bundið á pásu og gefa trans ung­lingum rými til þess að fóta sig og ákveða hvað þau vilja gera í fram­tíð­inni. Horm­óna­blokker­arnir koma því í veg fyrir lík­am­legar breyt­ingar sem valda ung­lingum djúp­stæðri van­líðan og ang­ist, og kemur í veg fyrir óaft­ur­kræfar lík­am­legar breyt­ingar sem þau þyrftu ann­ars oft að bera alla ævi,“ útskýrir hán. „Oft er því margra ára und­an­fari áður en nokkuð er aðhafst.“

„Ég held að vanda­málið sé bara miklu frekar að þetta fólk er ekki til­búið að með­taka svörin þegar kemur að þessum málum og vilji frekar trúa mis­vísandi áróðri og aft­ur­halds­semi.“

Eykur lífsgæði barna

Ugla segir að það vilji oft gleym­ast í þess­ari umræðu að horm­óna­blokkerar eru full­kom­lega aft­ur­kræfir og ef ung­lingar hætta á þeim fari kyn­þrosk­inn aftur af stað. „Horm­óna­blokkerar eru lyf sem hafa verið notuð í hátt í þrjá ára­tugi og voru upp­runa­lega notuð til að hægja á kyn­þroska bráð­þroska barna. Lyfið hefur því lengi verið notað með góðum árangri, og hafa rann­sóknir sýnt að þeir hafa gríð­ar­lega jákvæð áhrif á vellíðan trans barna og auka lífs­gæði þeirra til muna,“ bendir hán á.

„Þegar ung­lingar eru svo 16 ára, sem er sá aldur sem við fáum sjálf að ráða yfir eigin heil­brigð­is­þjón­ustu sam­kvæmt lögum um rétt­indi sjúk­linga, þá geta þau byrjað í horm­óna­með­ferð og fengið estrógen eða testó­steron. Svo eftir 18 ára aldur geta þau und­ir­geng­ist skurð­að­gerðir ef þau kjósa slíkt. Trans ung­lingar sem fara þessa leið þurfa því ekki að und­ir­gang­ast nærri því jafn­mörg inn­grip eins og til dæmis brjóst­nám, brjósta­stækk­anir, minnkun barka­kýlis, and­lits­að­gerðir eða hár­rót­ar­tökur, þar sem horm­óna­blokkerar og síðar horm­óna­með­ferðir veita þeim kyn­þroska sem er í sam­ræmi við kyn­vit­und þeirra. Þetta snýst því fyrst og fremst um það að gera fólki kleift að vera það sjálft.“

Umbætur fyrir fólk sem skilgreinir sig hvorki sem konu né karl

Hér skipti ég aðeins um kúrs og bið Uglu um að útskýra fyrir þeim sem ekki til þekkja til út á hvað upp­haf­legu lögin um kyn­rænt sjálf­ræði gangi eig­in­lega. „Þessi lög breyttu mjög miklu á sínum tíma, þegar þau voru sam­þykkt í fyrra­sumar,“ svarar hán. „Þau gerðu fólki til dæmis kleift að breyta um nafn og kyn í Þjóðskrá án þess að þurfa að fá leyfi til þess frá heil­brigð­is­starfs­fólki, en áður fyrr þurfti fólk að hafa „lifað í gagn­stæðu kyn­hlut­verki“ í 18 mán­uði áður en það gat fengið nafni eða kyni breytt. Þetta var gríð­ar­lega stór rétt­ar­bót og gerir það að verkum að fólk getur breytt þessu þegar því hentar,“ útskýrir hán.

„Þetta afnam líka allar kynja­reglur þegar kemur að nöfnum og frá og með 6. jan­úar 2021 getur fólk fengið kyn­hlut­lausa skrán­ingu,“ segir hán og tekur fram að þetta sé mikil rétt­ar­bót fyrir kynsegin fólk, eða fólk sem skil­greinir sig ekki sem karl eða konu, sem hefur hingað til ekki verið til í laga­legum skiln­ingi.

Réttindin ekki lengur á fornaldarstigi

„Sömu­leiðis breyttu þessi lög líka hvernig heil­brigð­is­þjón­usta fyrir trans fólk er sett upp. Það er ekki lengur gengið út frá því að trans fólk eigi við geð­rænan vanda að stríða, sem þurfi að greina og með­höndla, heldur ein­fald­lega að fólk þurfi aðgengi að þess­ari heil­brigð­is­þjón­ustu til að koma í veg fyrir langvar­andi van­líðan og heilsu­far­s­vanda. Sömu­leiðis var heil­brigð­is­þjón­usta við trans ung­linga og börn lög­fest, sem er stórt skref í átt að því að fólk fái að vera það sjálft fyrr en áður,“ bendir hán á.

„Lögin tryggðu líka að flótta­fólk eða hæl­is­leit­endur gætu fengið skil­ríki í sam­ræmi við kyn­vit­und, burt­séð frá hvað önnur skil­ríki kunna að segja, enda oft ekki hægt að breyta slíku þaðan sem þau koma.

Það má því segja að á heild­ina litið hafi þessi lög fært rétt­indi trans fólks af forn­ald­ar­stigi og yfir í miklu betra og nútíma­legra horf.“

„Það má því segja að á heild­ina litið hafi þessi lög fært rétt­indi trans fólks af forn­ald­ar­stigi og yfir í miklu betra og nútíma­legra horf.“

Gert ráð fyrir að karlar geti gengið með börn

Spurð út í breyt­ing­ar­til­lög­urnar á lög­unum sem voru sam­þykktar á föstu­dag segir Ugla að þær gangi meðal ann­ars út á að lækka ald­urs­tak­mark til að breyta kyni og nafni í Þjóðskrá úr 18 ára niður í 15 ára. „Fimmtán ára aldur er mik­ill tíma­móta­aldur í lífi ung­linga, því eins og við vitum byrja margir krakkar í fram­halds­skóla og það er því mik­il­vægt að þau geti haft aðgang að þessum breyt­ingum áður en það ger­ist. Þau þurfa þá ekki að hafa áhyggjur af því að aðrir nem­endur viti gamla nafnið þeirra eða að þau séu „out-uð“ sem trans af skóla­kerf­inu. Þannig að þessi breyt­ing kemur til með að auð­velda þeim skóla­göng­una.“

Sömu­leiðis voru lagðar til orða­lags­breyt­ingar í ýmsum lögum til þess að koma til móts við kyn­hlut­lausa skrán­ingu og afkynja lög sem eru oft og tíðum óþarf­lega kynjuð. Hugsunin er sú að íslenskt lagaum­hverfi taki til­lit til trans fólks og til dæmis sé gert ráð fyrir því að trans karlar geti gengið með börn. Þessar breyt­ingar eru allar frekar ein­faldar en skipta gríð­ar­lega miklu máli þegar kemur að rétt­inda­stöðu trans fólks og inter­sex fólks.“

Leyfa ekki óþarfa inngrip í líkama barna

Að sögn Uglu er ein stærsta breyt­ingin bann við óþarfa og óaft­ur­kræfum inn­gripum í lík­ama inter­sex barna, eða barna sem fæð­ast með ódæmi­gerð kynein­kenni. „Það er því verið að veita inter­sex börnum lík­am­lega frið­helgi og vernd gegn óþörfum inn­gripum, sem er stórt frelsis- og rétt­læt­is­mál,“ segir hán.

„Hingað til hafa verið fram­kvæmd óþörf inn­grip á lík­ömum unga barna, sem snú­ast oftar en ekki um það að aðlaga lík­ama ein­stak­linga að hefð­bundnum kynja­flokkum. Þetta eru hlutir eins og aðgerðir á kyn­færum, kyn­kirtla­tökur eða önnur inn­grip sem gerir fólk alla jafna háð heil­brigð­is­þjón­ustu, skurð­að­gerðum eða horm­óna­með­ferðum. Þetta getur haft í för með sér langvar­andi heilsu­vanda, skort á næmni kyn­færa eða aðra fylgi­kvilla sem fylgja fólki alla ævi.“

Lífsnauðsynlegar aðgerðir alls ekki bannaðar

Ugla segir að lang­flest inn­grip séu óþarfi og fólk geti lifað full­kom­lega eðli­legu lífi án þeirra. Lögin kveði því á um að þau séu bönnuð þangað til ein­stak­lingar hafi aldur og þroska til að taka ákvarð­anir um þær sjálfir. Þetta sé í sam­ræmi við til­skip­anir Evr­ópu­ráðs­ins, Sam­ein­uðu þjóð­anna og fleiri alþjóða­stofn­ana.

„Með þessum lögum eru nær öll slík inn­grip bönnuð eins og ég segi, að und­an­skildu því þegar fólk fæð­ist með þvag­rás­arop á öðrum stað en vana­legt er eða þegar fólk fæð­ist með „micro-penis“, eða van­vöxt á typpi. Lögin eiga hins vegar að verða end­ur­skoðuð þegar fram líða stundir og þá verður það aftur tekið til umræðu hvort ekki eigi að leggja bann við slíkum aðgerðum líka. Þangað til er læknum skylt að skrá­setja öll slík inn­grip og sjá til þess að for­eldar og aðstand­endur fái réttar upp­lýs­ingar og sál­fræði­þjón­ustu.“

Ugla tekur fram að vita­skuld verði inn­grip sem eru börnum lífs­nauð­syn­leg ekki bönnuð. Slíkar aðgerðir verði fram­kvæmdar ef líf barna liggur við. „En þau til­felli eru bara svo lítið brota­brot af þeim inn­gripum sem hafa verið fram­kvæmd hingað til,“ bendir hán á.

Mynd / Sharon Kil­gannon

Alltaf þurft að berjast fyrir réttindum okkar

Spurð hvort háni þyki stundum ekki skrítið að árið 2020 sé enn verið að þusa á þingi um það sem mörgum þykir vera sjálf­sögð mann­rétt­indi kinkar Ugla kolli. „Jú, það er í raun bara alveg ótrú­legt hvað mis­vísandi upp­lýs­ingar og afvega­leiðslur geta gert til að hægja á svona málum. Því þótt það þurfi að huga að ýmsum laga­legum atriðum, fjár­magn sem þarf að til­einka þessum mála­flokki og svo fram­vegis þá ætti þetta auð­vitað að vera sjálf­sagt mál að koma í gegn. Við ættum ekki að þurfa að ræða það frekar.

En því miður höfum við alltaf þurft að berj­ast fyrir okkar rétt­indum, eins og reynslan hefur kennt okkur. Ætli það sé ekki vegna þess að þessi rétt­indi storka ákveðnum kerfum eða við­miðum sem er oft erfitt fyrir meiri­hlut­ann í sam­fé­lag­inu að sleppa tak­inu á eða hugsa um út frá öðru sjón­ar­horni en hann er vanur að gera.“

Baráttunni langt frá því að vera lokið

Ugla játar að það geti líka tekið á að leið­rétta sífellt ýmsan mis­skiln­ing sem gæti varð­andi mál­efni trans fólks og inter­sex fólks. „Það hefur hins vegar verið ótrú­lega fal­legt að sjá þing­fólk standa saman í þessu máli og kveða burt rök­leys­una og til­raunir til að afvega­leiða umræð­una með öfug­snúnum áróðri og öfgum. Það sýnir að fræðsla og vit­und­ar­vakn­ing hefur áhrif og það gefur mér orku til að halda áfram.“

„Það hefur hins vegar verið ótrú­lega fal­legt að sjá þing­fólk standa saman í þessu máli og kveða burt rök­leys­una og til­raunir til að afvega­leiða umræð­una með öfug­snúnum áróðri og öfgum.“

Hán tekur fram að bar­átt­unnni sé þó langt frá því að vera lokið. „Við eigum enn eftir að stíga skrefið til fulls þegar kemur að mál­efnum inter­sex fólks. Ákveðnir hlutar lag­ana verða end­ur­skoð­aðir á næstu árum og ég vona bara að það gefi okkur þá tíma til að kafa enn dýpra í þessi mál og stíga skrefið til fulls að lokum.

Lög geta sömu­leiðis líka bara tekið á ákveðnum þáttum en það er mik­il­vægt að þeim sé fylgt eftir og að heil­brigð­is­kerfið taki sig á og vinni sitt starf út frá fremstu verk­lags­reglum í þessum efnum. Það skiptir máli að þetta sé í stöðugri end­ur­skoðun og þróun og að nægt fjár­magn sé til í mála­flokk­inum til þess að tryggja það.“

Mikill sigur

Ugla segir að á heild­ina litið sé þetta auð­vitað mik­ill sigur og við­ur­kenn­ing á því starfi sem hún hefur lagt fram og allir aðrir sem áttu þátt í gerð frum­varpanna þriggja. „Þessi lög eru afrakstur margra ára vinnu sem hópur fólks tók þátt í og það er frá­bært að sjá þetta loks­ins verða að veru­leika. Frum­vörpin eru unnin af mik­illi fag­mennsku og í sam­ráði við alla helstu aðila og ég leyfi mér að full­yrða að þau séu einna vönd­uð­ustu lög hvað þessi mál varðar sem hafa komið fram á síð­ustu árum, alla vega upp­runa­legu lögin. Að mínu mati erum við að stíga nokkur skref fram á við og ég hlakka til að sjá þau þró­ast áfram.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

„Þetta er ekki bara eitthvert mál, þetta er grafalvarlegt mál,“ sagði Stefán Vagn
Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Fólk

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Myndir
Fólk

Sögu­frægt sýslu­manns­setur við sjó­inn komið á sölu

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una