Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Herðakistill og hálsrígur geta orðið fylgifiskar skjáskrums ef maður passar sig ekki

Hvar sem maður kemur virð­ast símar vera á lofti. Alls staðar er ein­hver að skruna niður eftir skjánum og skoða nýj­ustu fréttir, slúður og myndir. En læknar segja þetta enda­lausa skrun vera að valda okkur lík­am­legum skaða.

Líklega er það frekar aug­ljóst að það að fram­kvæma sömu ein­hæfu hreyf­ing­una lið­langan dag­inn, þar sem maður rennir fingri eftir skjánum á sím­anum, geti leitt af sér kvilla á borð við vöðva­bólgu og verkja. Vöðva­bólga hefur til dæmis verið leið­in­legur fylgi­kvilli þess að nota tölvu­mús mikið svo manni finnst ekki svo ótrú­legt að síma­skr­unið geti leitt af sér sömu óþæg­indi.

Mikið álag á hálsinn að hanga álútur yfir símanum

Breski lækn­ir­inn dr. Christian Jessen segir í pistli í The Closer að slík óþæg­indi geta verið til­komin af ein­hæfri, end­ur­tek­inni hreyf­ingu en einnig af stöð­unni sem maður er í á meðan maður fram­kvæmir hana. Þegar tölvumúsin er notuð heldur maður hend­inni iðu­lega langt frá lík­am­anum og dr. Jessen seg­ist í starfi sínu sjá mörg til­felli sina­bólgu. Að renna þuml­inum eftir síma­skjánum geti einnig valdið bólgum en það sem hann taki einna mest eftir séu slæm lík­ams­staða, þökk sé snjall­símum, tölvum og spjald­tölvum sem allir hangi álútir yfir dag­inn út og dag­inn inn.

Jessen segir að það sé orðin sjálf­gefin stell­ing að vera nið­ur­lútur. Það setji mikið auka­á­lag og mik­inn þunga á háls­inn. Með­al­höfuð vegi um fjögur og hálft kíló og þegar maður halli höfð­inu fram um 60 gráður til að horfa á skján­inn auk­ist álagið á háls­inn og verði tæp­lega þrjá­tíu kíló, sem sé heil­mikið.

Hann segir að áður fyrr hafi það aðal­lega verið eldra fólk sem fékk sveigju á efri hluta hryggs­ins en nú sé æ algeng­ara að hann sjái ung­linga með slík vanda­mál.

Líkamsstaðan skiptir miklu máli

En hvað er til ráða? Dr. Jessen mælir með því að halda skjánum í augn­hæð, eins og verið sé að lesa bók. Hann segir að hægt sé að athuga hvort maður sé of álútur með því að nota mál­band, eða eitt­hvað beint, til að athuga hvort eyrað sé í flúkti við öxl­ina. Ef maður er mjög hávax­inn þurfi frekar að huga að því hvort maður sé far­inn að skjóta bak­inu í kryppu og þá þurfi að passa sig sér­stak­lega vel.

Nauð­syn­legt sé fyrir alla að huga vel að lík­ams­stöð­unni og taka sér hlé frá skjánum ef maður finnur fyrir verkjum, rétt eins og maður myndi gera ef um ann­ars konar meiðsli væri að ræða. Þá mælir dr. Jessen með því að fólk haldi heil­anum við, þótt það taki hvíld, og seg­ist hvetja sína sjúk­linga til að gera hlut­ina á annan hátt en þeir eru vanir. Til dæmis sé gott að nota hina hönd­ina þegar maður burstar í sér tenn­urnar, þá hægri ef maður er örv­hentur og svo fram­vegis. Þá sé gott að hafa tölvumús­ina öfugu megin við það sem maður er vanur, reyna að nota hinn þum­al­inn við að skruna niður skjá­inn og halda sím­anum hærra, eða í augn­hæð.

Mik­il­vægt er að teygja vel, að sögn lækn­is­ins, á hand­leggjum, fingrum og baki og rúlla upp öxlum því vöðvarnir stífna og það valdi sárs­auka.

Leyfum dr. Jessen að eiga loka­orðið:
„Það leikur eng­inn vafi á því að við notum sím­ana okkar allt of mikið. Við þurfum að áttta okkur á því að við erum ekki að missa af neinu þótt við skiljum þá við okkur um stund og að þegar við notum þá ættum við að hafa hug­ann við það sem við erum að gera. Annars gæti heil kyn­slóð ungs fólks endað með herða­kistil.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

„Þetta er ekki bara eitthvert mál, þetta er grafalvarlegt mál,“ sagði Stefán Vagn
Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Fólk

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Myndir
Fólk

Sögu­frægt sýslu­manns­setur við sjó­inn komið á sölu

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una