Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Þórdís um árið sem er að baki: „Mér finnst við sem samfélag hafa staðist þetta próf“

Þórdís um árið sem er að baki: „Mér finnst við sem samfélag hafa staðist þetta próf“
Þórdís Kolbrún Reyk­fjörð Gylfa­dóttir

Þórdís Kolbrún Reyk­fjörð Gylfa­dóttir, ferða­mála-, iðn­aðar- og nýsköp­un­ar­ráð­herra og vara­for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, horfir björtum augum til fram­tíðar á nýju ári.

Hvernig leggst 2021 í þig?
„Árið leggst vel í mig eins og nýtt ár gerir alltaf. Ég trúi að árið verði ár end­ur­reisnar í íslensku sam­fé­lagi. Ég vona að okkur farn­ist að nýta þær breyt­ingar sem fylgdu Covid til að hugsa hlut­ina upp á nýtt þegar kemur að þjón­ustu hins opin­bera.“

Ára­móta­heit fyrir 2021?
„Ég er satt að segja ekki vön að vinna mikið með ára­móta­heit. Áramót eru ekki þessa stóra stund sem ég sé aðra upp­lifa. Ég ætla að hugsa stórt þegar kemur að verk­efn­inu að gera Ísland sterkara og sam­keppn­is­hæf­ara.“

Hvað hefur 2020 kennt þér?
„Það má segja að árið hafi verið áminn­ing um það sem ég lærði fyrir ára­tug síðan; lífið ger­ist og það er tak­mörk­unum háð hvaða stjórn þú hefur á því. En þú hefur vissu­lega stjórn á því hvernig þú bregst við. Árið kenndi mér enn betur hvað það er að vera sam­fé­lag. Mér finnst við sem sam­fé­lag hafa stað­ist þetta próf með ágætis ein­kunn þegar öllu er á botn­inn hvolft.“

Hvernig ætlarðu að nýta þá reynslu á nýju ári?
„Byggja á því og gera mitt til þess að við sem sam­fé­lag komum okkur út úr covid með sömu eig­in­leikum; þraut­seigju, fram­taks­semi, dugn­aði og trú á fram­tíð­ina.“

Hvað ætlarðu að gera á nýju ári?
„Ég er að hefja mitt fimmta ár sem ferða­mála-, iðn­aðar- og nýsköp­un­ar­ráð­herra. Ég ætla að gera mitt besta til að klára þau verk­efni sem ég hef metnað til að klára í þeim mála­flokkum. Ég von­ast til að geta farið um landið og hitt Sjálf­stæð­is­fólk út um allt land, ég sakna þess. Ég ætla að óska eftir umboði Lands­fundar til að vera áfram í for­ystu fyrir Sjálf­stæð­is­flokk­inn. Ég ætla að taka slag­inn til að tryggja að Ísland sé áfram land tæki­fær­anna. Ég ætla að leika við börnin mín, styðja og elska fjöl­skyldu mína. Og ferð­ast um Ísland.“

Hvers hlakkar þú mest til?
„Ég leyfi mér að hlakka til þess að mögu­lega geti ég fengið ein­hverja daga í öðru landi á árinu með fólk­inu mínu. Í nýju umhverfi, þar sem ég týn­ist í fjöld­anum, anda að mér heitu lofti, horfi á gamlar bygg­ingar og hlusta á fólk tala um hvers­dags­leik­ann á sínu tungu­máli. Sjáum hvað setur.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Myndir
Fólk

Sögu­frægt sýslu­manns­setur við sjó­inn komið á sölu

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una