Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Jafnrétti kynjanna er byggðamál

Jafnrétti kynjanna er byggðamál
Alfa Dröfn Jóhanns­dóttir

Eftir / Ölfu Jóhanns­dóttur

Lengi hefur verið bent á versn­andi stöðu kvenna í dreif­býli, bæði í grein­ar­gerðum Byggða­stofn­unar og byggða­á­ætl­unum sem settar eru fram í þeim til­gangi að auka jafn­rétti og styrkja stöðu kvenna. Einhæfir atvinnu­hættir og lægri laun á lands­byggð­inni gera enn fremur mennt­uðum konum erfitt fyrir að velja sér búsetu þar. Þá hefur einnig verið sýnt fram á mik­il­vægi þess að vinnu­mark­aður höfði til beggja kynja upp á að jafn­vægi kynja í byggð­unum hald­ist.

Samkvæmt Hagstofu Íslands er atvinnu­þátt­taka karla og kvenna á og utan höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins mjög sam­bæri­leg. Árið 2019 var atvinnu­þátt­taka karla utan höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins rúm­lega 81% og atvinnu­þátt­taka kvenna rúm­lega 76%. Hins vegar var óleið­réttur launa­munur kynj­anna rúm 15% árið 2017 og voru háskóla­mennt­aðar konur með tæp­lega 72% af með­al­at­vinnu­tekjum karla með sömu menntun á meðan tekjur kvenna með fram­halds­skóla­menntun voru tæp­lega 65% af með­al­tekjum karla.

Við höfum lík­lega öll heyrt talað um kynja­skipt­ingu á vinnu­mark­aði sem bæði lóð­rétta og lárétta og örugg­lega margir sem átta sig ekki á þunga þeirra skil­grein­inga. Lárétt skipt­ing á við um það að kynin gegni ólíkum störfum og að kynja­skipt­ing milli starfs­greina sé áber­andi en lóð­rétt skipt­ing á við um launa­mun kynj­anna, vísar til ójafn­aðar kynj­anna á vinnu­mark­aði og að karl­menn séu tölu­vert fjöl­menn­ari í áhrifa­störfum innan fyr­ir­tækja og stofn­ana en konur.

Í kjöl­far iðn­væð­ing­ar­innar á 20. öld óx umfang þjón­ustu­starfa tölu­vert en undir þau heyra fjöl­mörg störf sem hingað til hafa verið skil­greind sem hefð­bundin kvenna­störf. Þar á meðal verslun og þjón­usta ásamt almennum skrif­stofu-, umönn­unar- og kennslu­störfum sem hafa í auknum mæli færst út af heim­il­unum. Hin hefð­bundnu karla­störf sam­an­standa frekar af sér­hæfð­ari störfum sem gefa meiri mögu­leika á lóð­réttum hreyf­an­leika eins og hærri launum. Konur eru hins vegar í miklum meiri­hluta þeirra sem sinna þjón­ustu- og umönn­un­ar­störfum þar sem minni mögu­leikar eru á launa- og stöðu­hækk­unum. Það er einnig mik­ill munur á fjölda karla og kvenna í stjórn­un­ar­stöðum og má telja það til veik­leika sam­fé­lag­anna og hamlandi fyrir þróun þeirra.

Í ljósi stöð­unnar á land­inu, í skugga kór­ónu­veirunnar, hefur atvinnu­leysi auk­ist jafnt og þétt í öllum lands­hlutum yfir árið og spáir Vinnu­mála­stofnun sögu­legu atvinnu­leysi á Suð­ur­nesjum í lok árs 2020, eða allt að 24%. Á Suð­ur­landi og á Suð­ur­nesjum, þar sem atvinnu­leysi er hæst, er þungi atvinnu í verslun og ferða- og gisti­þjón­ustu.

Þá hafa rann­sóknir einnig sýnt fram á að konur verða fyrir meiri áhrifum en karlar af félags­legum og efna­hags­legum þáttum far­aldra, líkt og þeim sem nú skekur heims­byggð­ina. Konur bera enn þá þung­ann af umönnun barna þegar skólar lok­ast og fjöl­skyldu­með­limir veikj­ast. Til að stuðla að efl­ingu byggðar er nauð­syn­legt að styrkja stöðu kvenna í smærri byggð­ar­lögum en atvinna vegur hvað þyngst þegar kemur að búsetu­vali fólks. Þess vegna eru jafn­rétt­is­mál mik­il­vægur hluti byggða­þró­un­ar­að­gerða og jafn­rétti kynj­anna sann­ar­lega byggða­mál.

Gögnum í þessa grein var aflað með upp­lýs­ingum fengnum frá Hagstofu Íslands, Vinnu­mála­stofnun og úr eig­ind­legri rann­sókn höf­undar; Hið kven­læga dufl.

Höfundur er sér­fræð­ingur á Þró­un­ar­sviði hjá Byggða­stofnun og FKA-félagi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Fólk

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina