Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

„Nú stíga margir fram og vilja nota þessar skotárásir til að sussa á gagnrýnendur“

„Nú stíga margir fram og vilja nota þessar skotárásir til að sussa á gagnrýnendur“
Gunnar Smári Egilsson. Mynd / Hallur Karlsson.

Gunnar Smári Egilsson, fjöl­miðla­maður og sós­í­alisti, varar við því að fólk mis­noti hræði­lega árás á Dag B. Egg­erts­son borg­ar­stjória til að þagga niður í öllum gagn­rýnendum. Hann nefnir sem dæmi að hægri­menn hafi nýlega lagt bús­á­halda­bylt­ing­una að jöfnu við atburð­ina í Washington fyrr í þessum mán­uði.

„Auðvitað for­dæmir allt fólk skotárásir á hús og bíla. Og ég auð­vitað líka. Skotvopn eru ekki tján­ing­ar­tæki heldur ofbeldistól, byssu­kúla er ekki inn­legg í umræðu heldur hótun, ógn og ofbeldi. Það er auð­virði­legt að skjóta á hús eða bíla í skjóli nætur, skammar­legt. Ég finn til með Degi B. Egg­erts­syni og hans fal­legu fjöl­skyldu. Húsbrot og inn­rás á þau svæði sem við töldum að væri helg hefur meiri áhrif á okkur en við getum séð fyrir. Þetta eru árásir á frið­helgi okkar. Og þess vegna eru þær alvar­legar, sví­virði­legt ofbeldi,“ segir Gunnar Smári.

Hann segir hættu­legt að draga of miklar álykt­anir af árásum á stjórn­mála­fólk. „Ég hvet fólk hins vegar að fara var­lega í að eigna öðru fólki að hafa ýtt undir þá ákvörðun óþekkts manns að fremja þessi ódæði. Það eru engin tengsl á milli bús­á­halda­bylt­ing­ar­innar og þess­ara skotárása, engin tengsl á milli þeirra og almennrar stjórn­mála­um­ræðu í land­inu og þau sem taka þátt í henni bera enga ábyrgð á þessum árásum,“ segir hann.

„Það er frá­leitt að draga sömu álykt­anir af þessum árásum, sem svo sann­ar­lega eru afmörkuð atvik, eins­dæmi og bless­un­ar­lega frá­vik í okkar ann­ars frið­sama sam­fé­lagi, og dregnar hafa verið af árásinni á þing­húsið í Washington, líf­láts­hót­unum sem þar­lent stjórn­mála­fólk hefur fengið, ráða­gerðum að ræna emb­ætt­is­mönnum og drepa. Þau sem fara um með ofbeldi í Banda­ríkj­unum til­heyra ofbeld­is­hreyf­ingu sem hefur notað hót­anir, skemmd­ar­verk, hryðju­verk, morð og ofbeldi árum og ára­tugum saman; hreyf­ing sem byggir á sann­fær­ingu um að til­tek­inn hópur hafi ætíð rétt á að beita aðra ofbeldi.“.

Gunnar Smári minnir á að yfir­leitt sé van­stillt fólk sem hagi sér svo. „Skotárásir á flokks­skrif­stofur og bíl borg­ar­stjóra eru alvar­legar á eigin for­sendum, verk ein­fara um nótt en ekki hluti af póli­tísku aðgerðum hreyf­ingar sem sæk­ist eftir völdum í sam­fé­lag­inu. Fyrir skömmu not­uðu hægri menn árás­ina á þing­húsið í Washington til að grafa undan því fólki sem tók þátt í bús­á­halda­bylt­ing­unni í kjöl­far bankarán­anna miklu og mót­mæl­endum almennt. Nú stíga margir fram og vilja nota þessar skotárásir til að sussa á gagn­rýnendur, mót­mæl­endur og aðra and­stæð­inga vald­hafa og óbreytts ástands. Það er frá­leitt og því fólki til skammar sem tengir þarna á milli,“ segir Gunnar Smári.

„Hitt er annað mál að fólk ætti að fara vel með tján­ing­ar­frelsi sitt, nota það af afli til að gagn­rýna sam­fé­lag ójöfn­uðar og órétt­lætis en ekki til að skemma og meiða. En við þurfum ekki skotárás á hús eða bíl til að minna okkur á þetta. Það getur aldrei verið leið­sögn að hegða sér svo í almennri umræðu að það leiði ekki til skotárása van­stillts manns um nótt.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Tækið er sagt geta borið fjóra fullorðna einstaklinga
Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Svipuð atvik hafa komið upp við heimili Ragnars frá árinu 2023
Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti