Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Leifur skólastjóri í leyfi vegna óeðlilegra samskipta við konur

Mynd / Skjáskot RÚV.
Mynd / Skjáskot RÚV.

Leifur Garðasson skóla­stjóri er kominn í ótíma­bundið veikinda­leyfi frá störfum sínum í Áslands­skóla. Fræðslu­stjóri Hafnar­fjarðar vill ekki staðfesta hvort Leifur hafi sjálfur óskað eftir leyfinu eða hann verið skikkaður í það.

Mannlíf greindi fyrst frá því að Leifur skóla­stjóri var rekinn sem körfubolta­dómari á vegum KKÍ vegna óviðeigandi samskipta við kvenkyns leikmann. Samskipti Leifs við leik­manninn voru á þann veg að stíga í vænginn við viðkomandi sem síðan kvartaði undan því við KKÍ. Leifur var strax settur af sem dómari hjá sambandinu og þar hefur hann ekki dæmt leik frá því málið kom upp.

Sjá einnig: Leifur Garðarsson rekinn sem dómari fyrir að reyna við leikmann

Í kjölfarið ákvað skóla­skrifstofa Hafnar­fjarðar

að skoða brott­rekstur Leifs skóla­stjóra

úr starfi sem körfubolta­dómara og ásakanir á hendur honum fyrir óviðeigandi samskipti við konur. Þá sagði Fanney Dóróthe Halldórs­dóttir, sviðs­stjóri fræðslu- og frístunda­þjónustu bæjarins: „Við erum að sjálfsögðu að skoða málið nánar og sú vinna er hafin. Við eigum okkar áætlanir og verkferla til að fylgja eftir. Svona ásakanir eru nátt­úrlega alvarlegar og því eðlilegt að við eigum samtal við manninn til að skoða þetta nánar,“ sagði Fanney í samtali við Mannlíf. Niður­staðan er sú að Leifur fer í ótíma­bundið veikinda­leyfi en ekki fæst staðfest hvort hann hafi verið skikkaður í það eða óskað sjálfur eftir því.Sjá einnig:

Skóla­skrifstofa Hafnar­fjarðar skoðar mál Leifs skóla­stjóra

Leifur er maður sem er vanur valda­stöðu gagnvart mörgum. Hann er starfandi skóla­stjóri í Áslands­skóla, var lengi knattspyrnu­þjálfari og jafnframt körfubolta­dómari. Nú hefur hann verið rekinn sem dómari og farinn í leyfi sem skóla­stjóri. Aðstoðar­skólastjóri Áslands­skóla, Unnur Elfa Guðmunds­dóttir, tekur við stöðu skóla­stjóra í óákveðinn tíma.Sjá einnig:

Leifur áður verið rekinn – Sagður hafa varið sjálfan sig með fölsuðum aðgangi á Facebook

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá