Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Sonur minn getur ekki fyrirgefið mér: Maðurinn sem barði hann ekki kynfaðir hans

Sonur minn getur ekki fyrirgefið mér: Maðurinn sem barði hann ekki kynfaðir hans
Mynd / Unsplash.com

Lífs­reynslu­saga úr Vikunni:

Haf­steinn, eldri sonur minn, kom undir á skóla­balli þegar ég var sautján ára. Við pabbi hans laum­uð­umst inn á skrif­stofu og þar sáði hann fræi í frjóan svörð, eins og segir í Stuð­manna­lag­inu. Hann gerði mér strax ljóst að hann vildi ekki barn og hvatti mig til að fara í þung­un­ar­rof.

Það gat ég ekki hugsað mér og ákvað því að eiga barnið. Pabbi og mamma sögð­ust styðja ákvörðun mína og að ég gæti búið hjá þeim þar til ég hefði lokið námi. Ég stefndi á krefj­andi háskóla­nám, hafði ung gert mér grein fyrir hvað ég vildi læra. Þegar dreng­ur­inn fædd­ist var ég nýorðin átján ára og rétt marði að klára síð­ustu prófin um vorið. Ekkert hafði hins vegar búið mig undir þá miklu ábyrgð sem fylgir því að eiga barn og lík­lega gerir ekk­ert for­eldri sér grein fyrir hversu mikil bind­ing fylgir því hlut­verki. Pabbi Haf­steins kom einu sinni til að sjá hann þegar hann var ung­barn og for­eldrar hans færðu honum gjöf. Eftir það var sam­bandið mjög stop­ult og minnk­aði fljótt niður í ekki neitt.

Pabbi og mamma brugð­ust hins vegar ekki en ég var ein­fald­lega of ung og vit­laus til að skilja hvað þau voru mér góð. Mér fannst þau stöðugt vera að gagn­rýna mig og skipa mér að gera betur. Eftir að ég varð full­orðin geri ég mér hins vegar grein fyrir að þau voru að reyna að kenna mér að taka ábyrgð og vera góð mamma. Ég lauk stúd­ents­prófi á réttum tíma og inn­rit­aði mig í drauma­námið í háskól­anum um haustið. Mig dreymdi um að flytja að heiman og vera laus við nöldur for­eldra minna.

Flutti til kærastans

Um vet­ur­inn kynnt­ist ég Jóa. Hann var nokkrum árum eldri en ég, iðn­mennt­aður og átti litla íbúð. Mér fannst ég hafa himin höndum tekið. Ég ímynd­aði mér að hann væri góður við Hafstein en þegar ég hugsa til baka veit ég að hann var mjög afskipta­laus, í raun var eins og barnið væri ekki til. Alltaf þegar við töl­uðum um drauma okkar og gerðum áætl­anir var aldrei gert ráð fyrir barn­inu. Ég kaus að horfa fram hjá því. Við mæðginin fluttum fljótt til Jóa og til að byrja með fannst mér frelsið ynd­is­legt en fljót­lega átt­aði ég mig á að allt var mun erf­ið­ara en áður. Ég varð að sjá algjör­lega ein um Hafstein og heim­ilið. Jói kom mjög lítið nálægt þrifum, eld­aði aldrei og skipti sér ekk­ert af þvottum eða umönnun drengs­ins. Ég leit­aði oft hjálpar hjá mömmu og fékk að vera þar á dag­inn að lesa og þegar ég var í prófum tók hún Hafstein algjör­lega til sín.

Með hennar hjálp tókst mér að klára fyrstu þrjú árin af háskóla­nám­inu, ekki með neinum glæsi­ein­k­unum en þol­an­legum árangri. Til þess að öðl­ast full rétt­indi í því fagi sem ég hafði valið mér var hins vegar nauð­syn­legt að klára fimm ár. Um haustið þegar ég hafði nýhafið við­leitni til að ná meistara­gráðu upp­götv­aði ég að ég var aftur orðin ófrísk. Þrátt fyrir að mamma hans væri með lykkj­una hafði Alla mínum tek­ist að verða til og laum­ast fram hjá getn­að­ar­vörn­inni. Þessi með­ganga var mjög ólík hinni fyrri. Ég var mikið veik og fékk alla kvilla sem hægt er að hugsa sér, kastaði stöðugt upp í þrjá mán­uði, af og til næstu þrjá, fékk brjóst­sviða, haus­verk og var sífellt þreytt. Jóla­prófin voru léleg og þegar dreng­ur­inn kom í heim­inn þremur vikum fyrir tím­ann vissi ég að ekki þýddi neitt að reyna við vor­prófin.

Jói hvatti mig til að hætta þessu náms­ves­eni og ein­beita mér að upp­eldi strák­anna. Hann hafði þá nýlega stofnað fyr­ir­tæki með bróður sínum og vildi leggja allt í að það gengi sem best. Hann sann­færði mig um að með því að vera heima­vinn­andi gæti ég stutt hann og fyr­ir­tækið kæm­ist hraðar á lagg­irnar. Þegar það verk­efni væri búið gæti ég tekið þráð­inn upp aftur enda strák­arnir þá eldri. Ég sam­þykkti þetta og næstu árin var ég að mestu heima­vinn­andi, vann þó af og til með þeim bræðrum þegar stór verk­efni voru og ég sá um að taka sím­ann, bóka þá og sinna bók­haldi. Fyr­ir­tækið gekk vel og við keyptum nýja og stærri íbúð og seinna hús. Þá hafði dóttir bæst í barna­hóp­inn.

„Það var þá sem ég fór að taka meira eftir því að Jói var leið­in­legur við Hafstein. Hann gerði mik­inn mun á honum og börn­unum sínum.“

Stjúpinn ekki góður við barnið

Það var þá sem ég fór að taka meira eftir því að Jói var leið­in­legur við Hafstein. Hann gerði mik­inn mun á honum og börn­unum sínum. Alli og Inga fengu hjól þegar þau voru lítil en Haf­steinn hefði ekki fengið neitt ef mamma og pabbi hefðu ekki komið með eitt slíkt handa honum þegar systk­ini hans bæði voru farin að hjóla. Strák­arnir fóru báðir í íþróttir og Jói fylgd­ist vel með öllu sem gerð­ist hjá Alla en sýndi engan áhuga þegar eitt­hvað var að ger­ast hjá Haf­steini. Hann tuð­aði oft ef ég keypti eitt­hvað handa elsta syn­inum á heim­il­inu en allt var sjálf­sagt ef hin yngri voru ann­ars vegar.

Mér fannst þetta mjög leið­in­legt og tal­aði oft um það við hann. Þegar Haf­steinn varð níu ára gerði ég mér grein fyrir að hann hélt að Jói væri kyn­faðir hans. Ég hafði boðað allan bekk­inn í afmæli og það var mikið fjör á heim­il­inu. Þetta var um helgi og ein­hver strák­anna spurði Hafstein: „Hvar er pabbi þinn?“ Og hann svar­aði: „Í vinn­unni.“ Jói hafði sagst þurfa að vinna til að sleppa við að vera við­staddur veisl­una og eitt­hvað í því hvernig barnið sagði þetta sann­færði mig um að hann vissi ekki að hann ætti annan föður. Ég gerði mér jafn­framt grein fyrir að ég hafði aldrei talað um það við hann og ekki sagt honum skýrt og greini­lega hvernig hlutnum væri háttað.

Ég lof­aði sjálfri mér að ég ætl­aði að gera það sem allra fyrst en ein­hvern veg­inn leið og beið og mér fannst ég aldrei hitta á eða finna akkúrat rétta tím­ann. Haf­steinn var tólf ára þegar ég komst að því að Jói var ekki bara leið­in­legur við hann heldur bein­línis vondur. Ég þráði alltaf að klára námið mitt. Inga var komin á leik­skóla, Alli í öðrum bekk í skóla og Haf­steinn orð­inn svona stór. Ég athug­aði mögu­leik­ana og jú, gamla byrj­un­ar­prófið mitt gilti. Ég gat tekið meistara­gráðuna án þess að taka allt hitt upp.

Kölluð á fund í skólanum

Um haustið byrj­aði ég í skóla og það varð að sam­komu­lagi milli okkar Jóa að hann sækti Ingu á dag­inn og væri með krökk­unum þar til ég kæmi heim um kvöld­mat­ar­leytið. Þá gat hann farið aftur í vinn­una eða fengið frí ef það hent­aði. Þetta gekk ágæt­lega og ef satt skal segja var ég svo upp­tekin af því að vera loks­ins komin í þá stöðu að geta látið drauma mína ræt­ast að ég átt­aði mig ekk­ert á hvað var í gangi heima hjá mér. Það var ekki fyrr en umsjón­ar­kenn­ari Haf­steins hringdi í mig og boð­aði mig á fund að ég hrökk í gír­inn. Hann sagði mér að Haf­steinn hefði breyst mikið, væri árás­ar­gjarn, óþekkur og hættur að geta ein­beitt sér. Kenn­ar­arnir hefðu líka tekið eftir mar­blettum á hand­leggjum hans og leik­fi­mi­kenn­ar­inn séð að hann var mar­inn á skrokknum líka. Haf­steinn hafði ekki viljað gefa skýr­ingu á þessu en þegar hjúkr­un­ar­fræð­ingur gekk á hann ját­aði hann að pabbi hans hefði slegið hann og gripið um hand­leggi hans og hrist hann.

Þetta var gríð­ar­legt áfall. Ég bók­staf­lega trúði þessu ekki fyrst en þegar ég sett­ist út í bíl eftir fund­inn, nötr­aði ég og skalf og ég gerði mér grein fyrir að innst inni hafði ég alltaf vitað þetta, að Jói þoldi ekki Hafstein og í raun hafði hann beitt hann and­legu ofbeldi lengi. Kallað hann aum­ingja, ræfil og asna þegar hann skamm­aði hann sem var ansi oft. Það var fátt sem dreng­ur­inn gerði sem ekki fór í taug­arnar á Jóa. Ég fór heim og pakk­aði niður föt­unum mínum og barn­anna og flutti með þau til mömmu og pabba meðan við Jói gengum frá skiln­aði okkar og eigna­skiptum.

„Það var svo loks­ins þarna að ég hafði mann­dóm í mér til að segja Haf­steini að hann ætti annan föður, að mað­ur­inn sem hafði barið hann væri ekki kyn­faðir hans. Dreng­ur­inn varð í senn reiður og glaður.“

Það var svo loks­ins þarna að ég hafði mann­dóm í mér til að segja Haf­steini að hann ætti annan föður, að mað­ur­inn sem hafði barið hann væri ekki kyn­faðir hans. Dreng­ur­inn varð í senn reiður og glaður. Hann bað mig að hafa sam­band við föð­ur­fjöl­skyld­una og nú voru þau til­búin að kynn­ast honum og sinna. Hann og pabbi hans náðu vel saman og eru líkir að mjög mörgu leyti. Enn hefur Haf­steinn hins vegar ekki fyr­ir­gefið mér. Nú, þegar við erum farin, hefur fyrrum stjúp­faðir hans sýnt honum meiri virð­ingu og hlýju en nokkru sinni áður. Þeir geta talað saman en Haf­steinn kennir mér um allt það vonda sem gerð­ist. Hann álítur að ef ég hefði sagt sann­leik­ann og leyft honum að umgang­ast pabba sinn eðli­lega hefði allt verið öðru­vísi í æsku hans. Ég hef reynt að vera honum góð og vona að fljót­lega geri hann sér ljóst að málið er ekki alveg svo ein­falt.

Í hverri viku birt­ast spenn­andi lífs­reynslu­sögur í Vikunni. Tryggðu þér ein­tak í næstu verslun eða í áskrift.

Fylgstu með Lífs­reynslu­sögur Vikunnar á Facebook. Lífs­reynslu­sögur er hlað­varp þar sem blaða­konan Guðrún Óla Jóns­dóttir les áhuga­verðar lífs­reynslu­sögur úr Vikunni. Í hverjum þætti eru fimm sögur lesnar. Þætt­irnir koma inn á Spotify og Storytel.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

„Þetta er ekki bara eitthvert mál, þetta er grafalvarlegt mál,“ sagði Stefán Vagn
Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Fólk

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Myndir
Fólk

Sögu­frægt sýslu­manns­setur við sjó­inn komið á sölu

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una