Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Slapp naumlega frá barnaníðingi

Slapp naumlega frá barnaníðingi

Lífs­reynslu­saga úr Vikunni:

Sumarið 1963 var Emil tíu ára. Þá byggðu strákar dúfna­kofa; áttu dúfur. Emil var þar á meðal. Mikið var byggt á þessum árum og auð­velt að fá efni í kofa. Þetta voru litlir kofar úr móta­timbri og svo settu strák­arnir tjöru­pappa á þakið svo það læki ekki. Svo voru búrin úr neti sem strák­arnir keyptu í Reykja­vík eða fengu hjá körlum sem voru að múra. Þetta var tími sak­leysis og gleði en í para­dís leyn­ast ævin­lega högg­ormar.

Þetta voru alls konar dúfur og hver teg­und hafði sín ein­kenni. Blágráar hús­dúfur, lit­skrúð­ugar skraut­dúfur, hvítir ísarar sem voru loðnir fram á tær. Svo voru hojarar. Þeir voru líka hvítir og með mikið stél og þeir reigðu haus­inn aftur á bakið. Það voru líf­leg við­skipti milli strák­anna með dúf­urnar og mikið um alls konar skipti. Þetta var góður tími. Það var gaman.

Svo fréttu strák­arnir af dönskum karli inni í Reykja­vík sem sagt var að ætti hell­ing af dúfum.  Dag einn ákvað Emil að heim­sækja þennan karl. Honum hafði verið sagt hvar karl­inn átti heima.  Nú átti hann hund­rað­kall í seðlum og eftir hádegi einn dag­inn ákvað hann að fara með strætó til Reykja­víkur að hitta karl­inn og athuga hvort ekki væri hægt að fá hjá honum dúfur.

„Svo kom karl­inn aftur og læsti úti­dyr­unum og sagði eitt­hvað á dönsku sem Emil skildi ekki. Emil brá. Karlinn hafði læst úti­dyr­unum. Hvers vegna?“

Hann fann hent­ugan pappa­kassa inni í geymslu undan vörum sem vinur mömmu hans og pabba hafði komið með. Og svo lagði Emil af stað með sam­an­brot­inn kass­ann undir hend­inni út á stoppi­stöð. Emil fann húsið þar sem karl­inn átti heima og gekk um húsa­sund inn í bak­garð. Þegar þangað kom sá hann stórt dúfna­hús með enn þá stærra úti­búri. Þarna var alveg hell­ingur af dúfum af öllu tagi. Emil horfði í undrun á þetta góða stund og hlust­aði á kur­rið í dúf­unum. Ja, hérna, þetta var eng­inn smá­kofi. Þetta var sko alvöru­dúfna­hús og ekk­ert smá­ræði af dúfum.

Hann hringdi dyra­bjöllu og það kom lít­ill feitur karl til dyra og heils­aði á útlensku. Það hlaut að vera danska. Karlinn var jú danskur. Þetta var góð­legur karl sem brosti breitt. Emil heils­aði honum og sagð­ist vera kom­inn til að fá að sjá dúfur. Karlinn tal­aði ekki íslensku, en Emil fannst hann samt skilja það sem hann sagði. Hann gerði honum skilj­an­legt að hann ætti að koma inn fyrir og bíða.

Þykkar, ljótar hendur

Frá dyr­unum var komið inn í litla stofu, en karl­inn fór inn á gang að tala í síma og tal­aði áfram á dönsku. Emil fór úr skónum og horfði í kringum sig. Þarna var borð­stofu­borð með bólstr­uðum stólum í kring. Hinum megin við dyrnar voru hillur með bókum og myndum. Á veggnum við hlið­ina á þeim nær dyr­unum inn á gang­inn var mynd af Jesú Kristi. Úti í horn­inu var lágt borð og á því lampi með stórum skermi. Á veggnum hinum megin við glugg­ann hékk gömul pendúl­klukka sem gekk hægt og leti­lega, tikk takk – tikk takk – tikk takk.

Svo kom karl­inn aftur og læsti úti­dyr­unum og sagði eitt­hvað á dönsku sem Emil skildi ekki og honum brá. Kallinn hafði læst úti­dyr­unum. Hvers vegna?  Emil varð smeykur. Hafði karl­inn bara verið að þykj­ast tala í sím­ann til að gabba hann inn í húsið? Emil stóð við borðið í stof­unni og kall­inn sett­ist á stól alveg upp við hann og áður en hann vissi af hafði karl­inn tekið hann í fangið og byrjað að káfa á honum. Karlinn hafði þykkar, ljótar hendur og svo and­aði hann líka eitt­hvað svo und­ar­lega. Hann var með gular skakkar tennur. Hann var and­fúll og það var vond lykt af honum. Hann var í gljáslitnum grárönd­óttum buxum og grænni skyrtu. Hann var með feitt and­lit og bláar kinnar. Hann var gam­all og ljótur.

Karlinn tal­aði eitt­hvað við sjálfan sig á dönsku, eitt­hvað sem Emil skildi ekki og hann fór líka með hend­urnar á staði sem eng­inn má snerta. Emil leið mjög illa. Hann var hræddur. Þegar um hálf mín­úta var liðin hringdi sím­inn inni á gang­inum og þá sleppti karl­inn taki sínu á Emil og hvarf inn á gang­inn til að svara. Emil stóð nú aftur í þeim sporum sem hann hafði staðið meðan hann hafði beðið eftir karl­inum nokkrum and­ar­tökum áður. Hann vissi ekki í hverju hann var lentur og ekki heldur hvað hann ætti að taka til bragðs.

Vildi ekki læra dönsku

Karlinn var pirr­aður og tal­aði hátt á dönsku. Hann hafi verið upp­tek­inn. Hann vildi losna úr þessu sím­tali og tal­aði hátt og frekju­lega. Þá allt í einu hrökk Emil við. Eldsnöggt horfði hann í kring um sig. Hann stað­næmd­ist augna­blik við mynd­ina af Jesú og þótti svipur hans alvöru­gef­inn. Honum fannst hann horfa á sig eins og hann væri að senda sér skila­boð með sínum alvar­lega, milda svip. Því næst leit hann á úti­dyrnar. Lyk­ill­inn stóð í skránni. Nú gerð­ist allt í senn. Hann tók ákvörðun og fram­kvæmdi á sama augna­bliki. Hann gekk að dyr­unum, greip skóna sína, sneri lykl­inum í skránni, opn­aði dyrnar og fór út. Á einu and­ar­taki var Emil kom­inn út undir bert loft. Dúfunum brá við þennan hraða og óvænta umgang og þær flögr­uðu upp í búr­inu. En það gerði ekk­ert til. Hann lang­aði ekk­ert í þessar dúfur. Það var hægt að fá nóg af þeim ann­ars staðar. Pappa­kass­inn hafði orðið eftir inni hjá karl­inum og hann var að hugsa um að snúa við og sækja hann, en hætti við það. Hann hljóp á sokk­unum fram hjá dúfna­hús­inu og út á gang­stétt­ina við göt­una. Þar fór hann í skóna sína og án þess að reima þá hrað­aði hann sér burt frá þessu húsi. Hann var þög­ull.

„Því næst leit hann á úti­dyrnar. Lyk­ill­inn stóð í skránni. Nú gerð­ist allt í senn. Hann tók ákvörðun og fram­kvæmdi á sama augna­bliki.“

Þegar strák­arnir spurðu Emil hvort hann hefði farið að heim­sækja danska dúfna­karl­inn svar­aði hann án þess að hugsa; að karl­inn hafi ekki verið heima. Svo leið sum­arið með strákum og dúfum. Síðan kom haustið og skól­inn byrj­aði. Og nú var í fyrsta sinn komið að því að Emil ætti að læra dönsku. En hvernig sem á því stóð, þá opn­aði hann ekki dönsku­bók­ina. Alveg var sama hvaða brögðum var beitt til að fá upp úr honum hvers vegna. Allt kom fyrir ekki. Hann sagði ekki neitt. Hann þagði. Hann ætl­aði ekki að læra dönsku, fannst hún ljót. Mamma hans reyndi allt sem hún gat, en tókst ekki að tjónka neitt við hann. Að lokum gafst hún upp og pabbi hans gaf honum utan undir og sagði honum að skamm­ast sín. Emil sat þög­ull og nið­ur­lútur með kökk í háls­inum og reyndi að kyngja honum.

Heppinn að sleppa

Allt frá því að þetta atvik átti sér stað hefur það verið til í hug­skoti mínu. Stundum hefur það legið í dvala og ekki minnt á sig í langan tíma, jafn­vel ein­hver ár. Þó hefur ekki mikið þurft til að minn­ingin um það geri vart við sig. Dæmi um algert hugs­un­ar­leysi sam­fé­lags­ins er t.d. að það eru iðu­lega leikin í útvarpi lög manna sem hlotið hafa dóma fyrir barn­a­níð eða verið við það bendl­aðir, eins og Hall­björn og M. Jackson. Það er líka nóg að heyra kaþ­ólsku kirkj­una nefnda til að þessi minn­ing vakni. Umræðan um upp­reist æru kyn­ferð­is­af­brota­manna var líka ein­stak­lega óvægin og opin­ber­aði vel þekk­ing­ar­leysi margra á eðli og alvar­leika þess­ara mála. Fjöl­miðlar og stjórn­völd hafa líka enn sem komið er afar tak­mark­aðan skiln­ing á upp­lifun þeirra sem burð­ast með reynslu þessa ofbeldis.

Nýjasta dæmið er áskorun um að þolendur stígi fram með reynslu sína, en komið hefur verið upp vett­vangi fyrir þá hjá Neyð­ar­lín­unni. Það fyrsta sem mætir þeim sem hafa vilja sam­band er krafa um nafn og net­fang. Ef byggja á brýr til þessa hóps verður að hugsa leið­irnar betur en hér er verið að reyna. Með þessu móti næst ekki til nærri allra sem til eru í að opna á reynslu sína.

Ég var mjög hepp­inn fyrir að verða 60 árum, að sleppa frá þessum manni áður en þetta gekk lengra. Ég er Vikunni þakk­látur fyrir að birta þessa upp­rifjun undir nafn­leynd. Hún skipti mig öllu máli. Þótt ég hafi kom­ist óskadd­aður frá þessu atviki, er það mér engu að síður viss lausn frá því, að skrifa um það eins og ég hef nú gert. Þeir sem styrkja vilja Stígamót finna ban­ka­upp­lýs­ingar sam­tak­anna auð­veld­lega á stigamot.is.

Í hverri viku birt­ast spenn­andi lífs­reynslu­sögur í Vikunni. Tryggðu þér ein­tak í næstu verslun eða í áskrift.

Fylgstu með Lífs­reynslu­sögur Vikunnar á Facebook. Lífs­reynslu­sögur er hlað­varp þar sem blaða­konan Guðrún Óla Jóns­dóttir les áhuga­verðar lífs­reynslu­sögur úr Vikunni. Í hverjum þætti eru fimm sögur lesnar. Þætt­irnir koma inn á Spotify og Storytel.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Fólk

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina