Sigurgeir Sigmundsson, yfirlögregluþjónn á Keflavíkurflugvelli, kallar eftir Sigurgeir Sigmundsson, yfirlögregluþjónn á Keflavíkurflugvelli. Í viðtali við RÚV segir hann það sem gerðist á Norðulandi ekkert einsdæmi.
Þar voru tveir erlendir ferðamenn gómaðir við brot á reglum um sóttkví. Þeir áttu bókað flug frá Íslandi degi eftir að niðurstaða seinni skimunar átti að liggja fyrir. Mennirnir fóru meðal annars á skíði.
Sigurgeir segir nauðsynlegt að herða reglur um svo stutta dvöl. „Við höfum sent lögreglu á þeim stað sem fólk er að fara upplýsingar um þetta fólk. Og þá hefur lögreglan farið og athugað sérstaklega hvort það sé þar. Það segir sig sjálft að þetta fólk er ekki komið hingað til að vera í sóttkví.“
Hann segir lögregluna hafa kallað eftir strangari reglum. „Við erum að ýta á það núna ásamt sóttvarnalækni að reglum verði breytt þannig að þegar við sjáum svona getum við keyrt fólk beint í sóttvarnahús þar sem það er undir eftirliti. Við Þórólfur höfum rætt saman undanfarna daga og hann er sammála okkur um þetta, og að það verði þá jafnvel opnað sóttvarnahús nálægt flugvellinum,“ segir hann við RÚV.































Athugasemdir