Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Tinna glímdi við fíknitendensa og heilablóðfall: „Búið að normalisera fíkniefnanotkun“

Tinna glímdi við fíknitendensa og heilablóðfall: „Búið að normalisera fíkniefnanotkun“

„Ég er sjálf með fíkni­t­endensa og það er í raun merki­legt að ég skuli ekki vera með fíkni­sjúk­dóm. Ég tek tíma­bil þar sem ég haga mér eins og kaup­fík­ill en sem betur fer er ég svo heppin að hafa sloppið,” segir Tinna Bark­ar­dóttir sem rekur sam­tökin Það er Von af miklum krafti ásamt fleirum. „Ég brenn fyrir þetta mál­efni.”

Staðan er átakanleg

Samtökin voru stofnuð af Hlyni Kristni Rún­ars­syni ásamt Rögnu móður hans og öðrum hug­sjón­ar­að­ilum. Þessir ein­stak­lingar höfðu áhuga á að beita sér fyrir bættri umræðu um fólk sem glímir við fíkn og hétu því að vinna mark­visst gegn for­dómum og skömm.

Fylgj­endur nú ríf­lega 22.000 á samfélags­miðlum sem félagið haldur úti og má segja að for­svars­menn hafi komið með ein­lægni og áhrif­aríkar færslur sem og fræðslu um hug­ar­á­stand þeirra sem glíma við fíkn.

„Ég kem inn í þetta 2020. Ég er mennt­aður kenn­ari og fíkni­ráð­gjafi og hef meðal ann­ars unnið á með­ferð­ar­heim­ilum. Því miður þekki ég alltof marga sem fóru þessa leið í líf­inu og enn að á þessum stað. Það er átak­an­legt. Úrræða­leysi kerf­is­ins er átak­an­legt og for­dóm­arnir og skömmin sem fylgir fíkni­sjúk­dómum er alls­ráð­andi. Við höfum það mark­mið að útrýma því.”

Stéttaskipting heilbrigðiskerfisins

Tinna segir úrræði kerf­is­ins ekki virka saman. „Hvort það er með­vitað eða ómeð­vitað innan kerf­is­ins veit ég ekki. En þessi flokkun í kerf­inu er alls­ráð­andi og maður fær þá sýn að það sé stétta­skipt­ing innan heil­brigð­is­kerf­is­ins og fíkni­sjúk­lingar séu að ein­hverju leiti verri sjúk­lingar en aðrir.

Tinna fékk heila­blóð­fall og fékk alla þá hjálp í kerf­inu sem unnt var að fá. „Enginn var með for­dóma gagn­vart mér eða spurði af hverju ég hætti ekki bara að vera lömuð. Það er langt því frá við­mótið við þá sem þróa með sér fíkn.

Að mörgu leiti er búið að normalisera fíkni­efna­notkun, sér­stak­lega hjá ríka og fína fólk­inu. Það kom til dæmis fram í grein sem ég las hjá ykkur.” Vísar Tinna þá meðal ann­ars í við­tal sem Mannlíf tók við efn­aðan kóka­ínnot­anda, það við­tal má sjá hér. „Þarna er týpiskt dæmi um mann með for­dómum gagn­vart sjálfum sér enda vildi hann ekki koma fram undir nafni. Og það sýnir að fíkn spyr hvorki um stétt né stöðu”

Fíkn og sjálfsvíg

Tinna segir stóra mark­miðið að opna áfanga­heim­ilið Annað tæki­færi og leita þau til almenn­ings um að leggja þeim lið sem Von­ar­liðar. „Við viljum bjóða upp á heild­ar­þjón­ustu þar sem fólk sem klárað hefur með­ferð getur fengið stuðn­ing allt upp í tvö ár. Eftir langa og harða neyslu duga ekki tíu dagar á Vogi og fjórar vikur í eft­ir­með­ferð. Hvað tekur þá við? Sama gamla lífið og því miður litlar líkur á að ná bara. Við viljum fá fólk í lang­tíma eft­ir­með­ferð og vinna að úrræðum í sam­vinnu við ríki og sveit­ar­fé­lög. Ekki síst bendum við á mik­il­vægi öfl­ugrar sál­fræði­þjón­ustu, jafnt fyrir sjúk­linga og fjöl­skyldur. Ekki síst börnin.“

Tinna segir úrræði vissu­lega vera dýrt en marg­borgi sig þegar upp er staðið. „Við erum ekki bara að tala um að það spari pen­inga að gera fíkni­efna­neyt­endur að ábyrgum sam­fé­lags­þegnum og skatt­greið­endum, við erum líka að tala um að bjarga manns­lífum. Ég hef sjálf upp­lifað það að fólk taki eigið líf þegar það gefst upp og getur ekki horft upp á for­tíð­ina né fram­tíð­ina. Fíkn og sjálfs­víg hald­ast hendur, hjá því verður ekki litið.“

Hið opinbera lítur undan

Tinna er ásamt fleirum sjálf­boða­liði hjá Það er Von. „Við erum ekki að fá neina aðstoð frá því opin­bera. Við höfum sent beiðni á kynn­ingu á starf­sem­inni á öll ráðu­neyti og lang­flest þeirra hafa hafnað. Það næsta sem við höfum kom­ist er að fá fjar­funda­á­heyrn hjá einum aðstoð­ar­manni ráð­herra í apríl. Við höfum líka verið í sam­bandi við hin ýmsu emb­ætti, án árang­urs. Þetta væri ef til vill auð­veld­ara ef þetta myndi lenda á þeirra eigin skinni og opna augu þeirra.”

Tinna og kollegar hennar eru til staðar fyrir fólk. „Við tölum við fólk í neyslu og hjálpum þeim að finna úrræði, við tölum við þá sem eru edrú til að hjálpa þeim að fara ekki fram af brún­inni, keyrum fólk á AA fundi og komum heim til fólks þegar áhyggju­fullir for­eldrar hringja. Það er ástríðan sem rekur okkur áfram, þetta er okkar val og þegar vel gengur fær maður gott í hjartað.

Við þurfum að grípa krakk­ana okkar áður en þau leita í hug­ar­breyt­andi efni og gefa þeim þau verk­færi sem þau þurfa í líf­inu. Við tölum við krakk­ana á jafn­ingja­grunni, bönnum ekk­ert né höldum ræður, heldur útskýrum við heila­starf­sem­ina og reynum að finna ástæður fyrir breyttri líðan og hvernig sé best að taka á því.“

Enginn getur dæmt

Tinna og félagar hafa farið í skóla með for­varn­ar­kynn­ingar með góðum árangri. Hún segir að mörgu að gæta þegar talað er við krakka. „Það er orðið offað í öllum heim­inum að sýna fíkni­efni á skjá, það gerir þau jafn­vel spenn­andi fyrir krakka og sýnir þeim hvernig á að nota þau. Við viljum fara aðrar leiðir og ná til ung­ling­anna og sýna þeim fram á að það er ekk­ert sem á að kveikja spennu við að fara þessa leið í líf­inu.

Það sem brennur á okkur er að hjálpa veiku fólki að vera virkir sam­fé­lags­þegnar, þeim og okkur til góðs. Hver hefur ekki séð eftir ein­hverju sem hann sagði og gerði í líf­inu? Við fæð­umst öll jöfn og það er eng­inn í þeim aðstæðum að geta dæmt.”

Allar nán­ari upp­lýs­ingar um Það er Von er að finna hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Myndir
Fólk

Sögu­frægt sýslu­manns­setur við sjó­inn komið á sölu

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una