Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Hjalti stóð allslaus eftir hrun en lét ekki buga sig: „Lét börnin borða fyrst og át svo sjálfur“

Hjalti stóð allslaus eftir hrun en lét ekki buga sig: „Lét börnin borða fyrst og át svo sjálfur“

„Ég var með lán, skuldir og náms­lán og var að því komin að fara í mat­ar­út­hlutun hjá góð­gerð­ar­sam­tökum. Auðvitað var þetta drullu­erfitt. Á þessu tíma­bili lét maður börnin borða fyrst og át svo sjálfur það sem þau leyfðu. Það er ekki síst þess vegna sem ég hef verið dug­legur við að gefa verk til góð­gerð­ar­mála. Þetta er spurn­ing um karma, maður upp­skerir eins og maður sáir,” segir Hjalti Parelius list­mál­ari, sem hefur skapað sér orð bæði fyrir mynd­list sína svo og ákveðnar skoð­anir, jafn á sam­fé­lag­inu og lista­heim­inum.

Allslaus í leiguhúsnæði í Keflavík

Hjalti starf­aði á arki­tekta­stofu þegar hrunið brast á. „Það gekk vel hjá okkur. Ég sá um grafík og þrí­vdd­ar­hönnun og við unnum fullt af sam­keppnum. Allt var í blóma. Svo kom hrunið, stofan þynnt­ist niður í ekki neitt þegar mark­að­ur­inn fór til fjand­ans og engin verk­efni að fá. Allt í einu stóð maður uppi atvinnu­laus og alls­laus í litlu leigu­hús­næði í Keflavík. Ég vissi ekki hvað ég myndi gera, vissi bara að ég ætl­aði ekki að láta þetta buga mig, detta í þung­lyndi og vor­kenna sjálfum mér.”

Hjalti hafði dundað sér við að mála á náms­árum sínum í Danmörku og hafði alltaf áhuga á list­sköpun. „Ég var lítið hrifin af þessu abstraktæði sem gekk yfir á þessum árum og var að kvarta yfir þessu við eig­in­konu mína þegar við gengum fram­hjá lista­gall­er­íum. Hún sagði mér að hætta að kvarta og gera betur ef ég væri ósáttur. Ég ákvað að taka hana á orð­inu og mál­aði sextán myndir á fjórum mán­uðum sem ég sýndi á Lista­nótt í Reykja­nesbæ árið 2009 þar sem að þær seld­ust flestar. Ég fór að spá í að hugs­an­lega gæti ég lifað af list­inni.” Í kjöl­farið fór bolt­inn að rúlla hjá Hjalta, hann segir fyrstu árin verið erfið en fimm árum síðar var fjöl­skyldan komin úr litlu leigu­í­búð­inni í veg­legt ein­býli á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og Hjalti eft­ir­sóttur list­mál­ari sem hefur haldið fjölda sýn­inga og selt verk sín hér heima og erlendis.

„Það er engin regla að að mynd­list­ar­menn þurfi að lepja dauð­ann úr skel. Þetta er erfið vinna og enda­laust hark en það má lifa af því. Og góðu lífi ef vel er að staðið. Myndlist er erf­ið­asta sölu­vara í heimi, þetta er „high end” lúx­usvara sem hefur engan annan til­gang en að hengja til­finn­ingar upp á vegg.

Jafn velkominn og klamydía

Hjalti segir að það ekki hafa verið kúl að vera list­mál­ari þegar hann var að hefja feril sinn árið 2009. „Flest af því sem var í gangi voru inn­setn­ingar, gjörn­ingar og alls konar nútíma­list. Ég veit að ég er ekki allra og hef hef stigið á tær með mínar skoð­anir, þótt ég sé ekk­ert endi­lega að nafn­greina þær tær, en mér er alveg sama. List á að vera skemmti­leg og ég er í þessu af því það er gaman, ekki til að velta mér upp úr djúpum heim­speki­legum vanga­veltum. List er ekki bara fyrir gáfu­menni með fjölda próf­gráða til að skilja hana.“

Hann seg­ist vel skilja sam­tíma­list og hug­mynda­list og að margir af hans upp­á­halds lista­mönnum komi úr þeim hópi. „Ég hef aftur á móti farið á sýn­ingar þar sem ég klóra mér í hausnum og skil hvorki upp nér niður. Ann­að­hvort er ég ekki nógu gáf­aður til að skilja þær eða það er ein­hver að grín­ast. Maður labbar inn á Lista­safn Reykja­víkur og sér ein­hverja hrúgu af pappa­kössum. Ég kalla þetta „nýju fötin keis­ar­ans list”. Það er list sem engin virð­ist þora að benda á að sé bara bull á meðan ein­hver gáfu­manna­el­íta segir hana óskap­lega merki­lega. Enginn þorir að standa upp og segja hreint út að keis­ar­inn sér berras­aður.

Það má heldur ekki nefna að list er til helm­inga sköpun og bis­ness. Það þarf að kunna að spila leik­inn og mark­aðs­setja sig. Sumir telja það yfir­gengi­lega móðgun þegar ein­hver vogar sér að nefna að list er auð­vitað mark­aðs­svara. Ég hef komið inn á bar sem er mikið sóttur af íslenskum lista­mönnum og fundið vel fyrir því að vera jafn vel­kom­inn og klamydía í orgíu.”

Höfum tendensa til öfundar

Hjalti var alinn upp við mynd­list og klass­íska tón­list og sat í Íslensku óper­unni 6 ára að aldri við hlið frú Vigdísar Finn­boga­dóttur. „Ég er ekki normal, það er ekk­ert gaman að vera normal. Það er bara flatneskja. Ég hef fundið fyrir öfund þar sem mér hefur gengið vel en tek það ekki inn á mig. Við höfum tend­senda til að vera öfund í garð þeirra sem gengur vel í stað þess að sam­gleðj­ast. Ég bara hlæ að því, mér stendur hjart­an­lega á sama. Ég hef alltaf verið svona, ég vissi heldur ekki að ég hefði orðið fyrir ein­elti í skóla fyrr en mér var bent á það á full­orð­ins­árum. Ég get skilið óör­yggi, hef fundið fyrir því sjálfur, maður var ekk­ert að fara í rækt­ina eins og rækja aðeins 173 á hæð sem ungur maður, en maður má ekki láta óör­yggið sitja í bíl­stjóra­sæt­inu og láta aðra meta sig eftir lækum á sam­fé­lags­miðlum. Aftur á móti getur trúin á sjálfan sig gert það að verkum að maður brennur út.“

Hjalti segir að fyrir einu og hálfu ári síðan hafi hann lent í því að brenna út. „Mér leið ekki illa and­lega en var þrótt­laus og áhuga­laus og þurfti að pína mig að trön­unum til að klára verk sem höfðu verið pöntuð. Ég vildi ekki mála, ég vildi bara dunda mér í jepp­anum mínum eða elda mat. Það hafði auð­vitað áhrif sem ég er enn að greiða úr en það er ekk­ert annað en að rísa upp, tækla málin og halda ótrauður áfram,” segir Hjalti Parelíus, list­mál­ari.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

„Þetta er ekki bara eitthvert mál, þetta er grafalvarlegt mál,“ sagði Stefán Vagn
Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Fólk

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Myndir
Fólk

Sögu­frægt sýslu­manns­setur við sjó­inn komið á sölu

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una