Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Heimir gafst upp á heibrigðiskerfinu – Læknirinn sem hætti við að útskrifast og „datt í ginið“

Heimir gafst upp á heibrigðiskerfinu – Læknirinn sem hætti við að útskrifast og „datt í ginið“

„Ég sá að það yrði erfitt fyrir mig að vinna í þessa kerfi, jafn­vel danska kerf­inu, sem er senni­lega það besta í heimi. Ég hef aldrei misst áhug­ann á lækn­is­fræð­inni en ég taldi að ég myndi ekki geta gefið sjúk­lingum þann tíma og þjón­ustu sem þeir þurfa í óbreyttu kerfi,“ segir Heimir Guð­bergs­son, búsettur í Damörku sem átti aðeins örfáa mán­uði í að útskrif­ast sem læknir þegar hann tók stóra beygju í líf­inu og fór að fram­leiða áfengi við góðan orð­s­týr.

Kerfið er ekki að virka

„Það er gríð­ar­leg pressa á þeim sem starfa innan heil­brigð­is­geirans, ekki bara læknum, heldur öllum sem starfa innan þess. Það er vöntun á læknum hér í Danmörku og enn meiri vöntun á Íslandi.  Það eru pen­ingar í sam­fé­lag­inu til að hafa kerfið í lagi en það virð­ist ekki vera póli­tískur vilji til þess. Ef ég hefði klárað námið og farið að vinna sem læknir hefði ég eytt alltof mik­illi orku og tíma í að vera reiður út í kerfið eða reyna að breyta því í kerf­inu sem gerði það að verkum að ég gæti ekki unnið vinn­una mína.”

Heimir hefur ekki úti­lokað að klára lækn­is­fræð­ina síðar. „Mér gekk afar vel í skól­anum, námið var mér auð­velt og þetta er ekki ákvörðun sem maður tekur af léttúð, ég hugs­aði þetta vel og lengi. Það er aldrei að vita hvað maður gerir síðar.”

Matur og drykkur áhugamál fjölskyldunnar

Heimir flutti til Dan­merkur ásamt for­eldrum sínum árið 1996, aðeins fimm ára að aldri. For­eldrar hans eru mennt­aðir í hótel- og veit­inga­rekstri. Áhugi á mat og drykk hefur lengi verið ríkj­andi í stór­fjöl­skyld­unni.

„Frændi minn átti marga veit­inga­staði, meðal ann­ars Lækj­ar­brekku, þar sem ég var mikið sem krakki og er sonur hans einnig í veit­inga­staða­rekstri, á meðal ann­ars Íslenska bar­inn og Mat­ar­kjall­ar­ann. Þessi áhugi er gegn­um­gang­andi í fjöl­skyld­unni.”

Heimir við bruggun.

Heimir er einn fimm bræðra og árið 2016 opn­uðu þeir ásamt móður sinni Gastro pub í Álaborg þar sem fjöl­skyldan býr. „Ég var í námi í Óðins­véum og ók á milli allar helgar til að hjálpa til og leysa af. Veit­inga­stað­ur­inn gekk mjög vel og við komumst í góð kynni við mann að nafni Fredrik Hector Scmidt sem er sér­fræð­ingur í bjór­bruggun og hafði unnið sem slíkur hjá fjölda fram­leið­enda. Hann hafði áhuga að stofna sitt eigið brugg­hús og okkur fannst spenn­andi fyrir veit­inga­stað­inn að vera með eigin bjór. Svo fór að Fredrik og Jóhann bróðir minn stofn­uðu brugg­húsið Bad Seed Brewing árið 2018.”

Þegar bruggverk­smiðjan var komin í fullan gang sá Heimir fram á að unnt væri að nýta hús­næðið og tækin undir fram­leiðslu á einu af hans helstu áhuga­málum, gini.

Datt í ginið

„Það má segja að ég hafi dottið í ginið þegar ég var í heim­sókn á Íslandi hjá frænda mínum á Fisk­fé­lag­inu fyrir margt löngu. Þangað komu reglu­lega sölu­menn og var einn með nýtt og sér­kenni­legt gin sem mér þótti gott. Í kjöl­farið fór ég að kynna mér gin og versla hinar ýmsu teg­undir á ferða­lögum mínum um heim­inn.“

Heimir fram­leiðir nokkrar teg­undir af áfengi en gin er hans ástríða.

Heimir setti upp eim­ing­ar­verk­smiðj­una Fennec Spirits ásamt Jóhanni árið 2020.

„Við erum með nokkrar teg­undir en ginið er okkar sér­grein. Það er í raun ekki flókið að búa til áfengi, fram­leiðslu­ferlið er frekar ein­falt, en það er erfitt að búa til gott áfengi. Þetta snýst allt um að prófa sig áfram, app­el­sína hér, eini­ber þar, smá af kórí­ander og smakka það til. Við erum með ekki með hefð­bundið gin, sumum líkar það ef til vill ekki, en við höfum heilt yfir litið fengið afar góð við­brögð við okkar vöru. Hér er áfengi selt út um allt en við erum aðal­lega í sér­versl­unum sem bjóða upp á vand­aðra áfengi en er að finna til dæmis í stór­mörk­uðum.“

Einokun hindrar innflutning

Aðspurður hvort Íslend­ingar megi eiga von á því að bragða á afurð­inni hlær Heimir.

„Við erum reyndar ekki komnir með þá fram­leiðslu­getu að geta hafið útflutn­ing. Það er mjög erfitt fyrir lítið fyr­ir­tæki að flytja inn áfengi til Íslands. Það þarf til dæmis að greiða áfeng­is­gjaldið upp í topp við inn­flutn­ing þegar flest önnur lönd rukka það eftir að varan er seld. Ein­ok­unin gerir það að verkum að það er varla hægt að kom­ast inn á mark­að­inn.

Ég var að gæla við þá hug­mynd að senda einn kassa heim til fjöl­skyld­unnar en gafst upp eftir að hafa séð flækju­stigið og kostn­að­inn við það,” segir Heimir Guð­bergs­son giná­huga­maður og fram­leið­andi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Myndir
Fólk

Sögu­frægt sýslu­manns­setur við sjó­inn komið á sölu

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una