Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Covid varð til þess að Katrín Ýr fór í hönnun – „Íslendingar eru skemmtilegasta fólk í heimi“

Covid varð til þess að Katrín Ýr fór í hönnun – „Íslendingar eru skemmtilegasta fólk í heimi“

„Ég er ekki týpan til að sitja og horfa á sjón­varpið í fár­inu. Sköp­un­ar­gleðin verður að fá útrás á meðan að tón­listin er í hýði. Svo er ég auð­vitað óskap­lega stolt af að vera Íslend­ingur og langar til að hafa hjá mér hluti sem minna á landið mitt án þess að vera með eitt­hvað lunda­búða­dót í hill­unum. Mig lang­aði í eitt­hvað töff,“ segir Katrín Ýr Ósk­ars­dóttir, tón­list­ar­kona og hönn­uður í London, sem finna má á miðlum undir nafn­inu IntroducingKat. Hún hefur vakið athygli fyrir hönnun sína, jafnt á skart­gripum og nytja­hlutum.

Katrín býr í London ásamt breskum sam­býl­is­manni sínum til tólf ára. Á þeim fjórtán árum sem hún hefur búið í borg­inni hefur hún ávallt starfað sem tón­list­ar­kona.  Hún hefur haldið fjölda tón­leika í gegnum árin, starf­aði við upp­tökur, útsetn­ingar og radd­þjálfun svo fátt eitt sé nefnt. Hún kennir einnig söng við Uni­versity of West London auk þess að þjálfa ung­linga sem stefna á feril í söng­leikjum og annarri tón­list. Ekki er allt upp­talið því Katrín kennir á tón­list­ar­braut Mennta­skól­ans á Trölla­skaga í gegnum fjar­búnað.

„Það er dásam­leg vinna. Ynd­is­legir nem­endur og sam­starfs­fólk.”

Glasam­ottur sem Katrín hannar.

Íslendingur í fimm vinnum

„Níu til fimm vinna hefur aldrei hentað mér og ég get nú varla kallað mig Íslend­ing nema vera í fimm vinnum,“ segir Katrín og hlær. „Ég kom hingað út í nám á sínum tíma og sá fljót­lega að ég gat haft fulla vinnu af tón­list­inni. Mark­að­ur­inn hér er svo stór og ég hef haft meira en nóg að gera. Ég stofn­aði hóp­inn Vox Collective og er tón­list­ar­stjóri hans. Þetta er hópur sem sér­hæfir sig í ábreiðum og setur saman alls konar sýn­ingar, ég syng á tón­leikum, í brúð­kaupum og á veit­inga­stöðum. Ég hef því miður ekki sungið eins mikið og hefði gjarnan viljað heima á Íslandi en kom þó og hélt Adele heið­urs­tón­leika, ég hef haldið fjóra slíka og það var mjög skemmti­legt. Um leið og þessu Covid fári lýkur er ég að von­ast til að geta sungið meira heima.”

Hún segir tölu­verðan mun á að syngja fyrir Íslend­inga og Breta.

„Ég hef þurft að minna mig á að Íslend­ingar sitja og hlusta, þeir eru allir hljóðir. Sem er geggjað því það er alltaf gaman að spila fyrir fólk sem er að hlusta og syngur kannski með á loka­metr­unum. En ég er líka svo mik­ill skemmti­kraftur í eðli mínu, mér finnst svo gaman að vera á sviði, finna ork­una og fá end­ur­gjöf­ina frá áhorf­endum. Það skiptir mig máli að vita að fólk er að skemmta sér og það gerir vinn­una mína líka skemmti­legri.”

Katrín hefur meira en nóg að gera í London.

Er með krumpu á sálinni

Tón­list­ar­menn hefur farið illa út úr far­aldr­inum eins og annað sviðs­lista­fólk.

„Við erum síð­ust inn og fyrst út og þetta hefur verið erfitt fyrir marga, bæði hér og Íslandi og ann­ars staðar. Ég sakna tón­list­ar­innar óskap­lega mikið, það er krumpa á sál­inni að geta ekki unnið við hana núna. Það eru afskap­lega stífar reglur um tón­list­ar­flutn­ing hérna. Það má spila tón­list, til dæmis á veit­inga­stöðum, en aðeins ef ekki er rukkað fyrir hana sér­stak­lega, ekki seldir miðar og hún má ekki yfir­gnæfa raddir. Sem er sér­kenni­legt í ljósi þess að vinur minn hérna úti var á knatt­spyrnu­leik á Wembley með átta þús­und manns! Ég er ekki viss um að yfir­völd hér geri sér grein fyrir hvað leik­hús og tón­leikar er risa­stór partur af menn­ing­ar­heim­inum. For­gangs­röð­unin er ekki alltaf rétt.“

Hönnun Katrínar.

Katrín hefur til nokk­urra ára hannað og gert skart­gripi sem hún hefur selt á Netinu undir nafn­inu Vivid Bones. Þegar enga vinnu var að hafa í Covid fór hún að sinna hönn­un­inni af meira krafti. „Ég hafði verið í hönnun á skart­gripum og einnig verið að búa til kerti og kerta­mottur sem fóru í sölu nýlega. Ég hafði séð glasam­ottur úr leðri og við en þegar ég rakst á resin vissi ég að ég yrði að gera eitt­hvað meira úr því. Í kjöl­farið urðu Íslands­mott­urnar til.”

Íslands­mott­urnar hafa slegið í gegn.

Resin er vökvi sem ekki er ósvip­aður plasti sem Katrín mótar og vinnur úr. ,,Ég fór að taka myndir af hönn­un­inni og setja á Snapchat og við­brögðin voru vonum framar. Ég ákvað í kjöl­farið að setja hönn­un­ina á Facebook og þarf að koma mér upp vef­síðu við tæki­færi.“

Katrín segir að með hönn­un­inni nái hún að beisla sköp­un­ar­kraft­inn, gera hluti sem henni finn­ast flottir og vera í tengslum og sam­skiptum við fólk.

„Ég er svo mikil félags­vera og get bara ekki verið aðgerð­ar­laus. Svo elska ég líka Íslend­inga, þeir eru skemmti­leg­asta fólk í heimi og ég hlakka mikið til að geta kom­ist heim að syngja. Vonandi sem allra fyrst,” segir Katrín Ýr Ósk­ars­dóttir, tón­list­ar­kona og hönn­uður.

Það má sjá meira af hönnun Katrinar á Facebook síðu Vivid­bo­nes á Etsy.

Hún er einnig á Instagram undir nafn­inu @vivid.bones og á TikTok @vividbones

Hér má sjá Katrínu Ýr taka glæsi­legan snún­ing á Húsavík, lagi allra lands­manna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Fólk

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina