Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

MYNDBÖND – Sprengjur springa nærri Kristínu sem er föst í stríði með ungar dætur sínar

MYNDBÖND – Sprengjur springa nærri Kristínu sem er föst í stríði með ungar dætur sínar
Ína og dæt­urnar á leið til Ísrael. Fyr­ir­var­inn var svo skammur að allir voru enn í nátt­föt­unum.

„Ég hélt að það yrði rólegur dagur í dag og að ástandið væri að lægja, en svo virð­ist ekki vera. Við erum búin að hlaupa fjórum sinnum í loft­varn­ar­byrgið á síð­ast­liðnum klukku­tíma. Ég veit ekki hvort þú sérð þetta en við erum að horfa á þessar sprengjur springa hérna núna. Þetta er beint fyrir ofan haus­inn á mér,“ segir Kristína Ösp Steinke í við­tali við Mannlíf í morgun. Kristína sendi upp­tökur sem hún tók af átök­unum á meðan að sam­talið átti sér stað.

Flúðu ISIS

Kristína, eða Ina eins og hún er kölluð, hefur búið í norð­ur­hluta Mósambík und­an­farin þrettán ár ásamt ísra­elskum eig­in­manni sínum, Naor Zinger og þrem­ur dætr­um sem eru þriggja, fjög­urra og sex ár. Þar reka þau fyr­ir­tæki sem borar eftir vatni.

Bestu vinir telpn­anna er nágrannar þeirra, flótta­fólk undan ISIS tengdum upp­reins­ar­mönnum.

Stríð hefur geisað á svæð­inu frá 2017 en ástandið gjör­breytt­ist þegar hryðju­verka­sam­tökin ISIS blönd­uðu sér inn í stríðið með stór­auknu ofbeldi og vopna­væð­ingu. Nýverið tóku upp­reisn­ar­menn með aðstoð ISIS yfir borg­ina Palma sem er næsta borg við Pemba þar sem Ína býr ásamt fjöl­skyldu sinni. Sáu þau ekki annan kost í stöð­unni en að flýja. Þau ákváðu að fara til heima­lands Naor, Ísrael, en það gekk brös­ug­lega að fá leyfi fyrir Ínu og börnin að fá leyfi þar sem þau eru íslenskir rík­is­borg­arar. Það tókst þó á end­anum og komst fjöl­skyldan til for­eldra Naor suður af Tel Aviv. Þau kusu að fara til Ísrael frekar en Íslands til að fjöl­skyldan gæti staðið saman og hugað að næstu skrefum til að koma starfs­fólk­inu sínu í Mósambík, sem Ína kallar hina fjöl­skyld­una sína, til hjálpar.

Fólk er traumatiserað

Eftir nokkra frið­sæla daga í Ísrael hélt eig­in­maður Ínu aftur til Mósambík til að ganga frá hús­næði þeirra og fyr­ir­tæki og koma starfs­fólk­inu í skjól í suð­ur­hluta lands­ins. Þann sama dag hófust árás­irnar og frið­sældin breytt­ist í martröð. Ína segir að mest sé um að ræða sprengju frá Ísra­els­her ætl­aðar til að stoppa eld­flaugar frá Palest­ínu.

„Við erum á öruggu svæði, þannig séð þar sem Ísrael er bara ein­hverjir tveir fer­kíló­metrar á stærð en þetta er alltaf fyrir ofan höf­uðið á manni. Við­vör­un­ar­kerfið í okkar hverfi fór þó ekki af stað í morgun, núna er verið að skjóta á nágranna­hverfin.”

Það heyr­ist skýrt í lát­unum að baki Ínu á meðan hún talar til frið­sæla Íslands. Öðru hverju hrekkur Ína við og biður blaða­mann að hinkra, eitt­hvað sé að ger­ast.

„Það er ekk­ert til sem heitir eðli­legt líf þessa dag­ana og fólk er traumat­iserað. Við sjáum palest­ínskar mæður gráta börnin sín í sjón­varp­inu á meðan að sprengj­urnar falla. Þar eru óhugn­an­leg­ustu og ógeðs­leg­ustu hlutir í heimi að ger­ast og það er ekki bara ég sem veit það, það vita það allir hér í kringum mig. Þetta er mjög sorg­legt, mjög ömur­legt og ástand sem verður að stöðva. Þetta er ekki mann­eskjum boð­legt.”

Örugg­asti stað­ur­inn til að sofa á þessa dag­ana er gang­ur­inn.

Ína segir aðstæður hræði­legar fyrir báða aðila. „Þetta er ekki fót­bolta­leikur, ekki spurn­ing um tvö lið þar sem annað spilar til sig­urs. Andlitin á bak við þetta stríð eru falin, vopna­salar og ein­hverjir póli­tíkusar sem sitja hvar? Í Palest­ínu? Ég held ekki! Þar er líka móðir með þrjú börn eins og ég og er að vona og hugsa nákvæm­lega sama hlut­inn, að börnin hennar séu í hættu. Það er hræði­legt að fólk þurfi að hugsa þannig. Mér er alveg sama hvert þjóð­ernið eða trú­ar­brögðin eru, við erum fyrst og fremst mann­eskjur.“

Daglegt líf horfið

Allt kapp er lagt á að reyna að fela ástandið fyrir börn­unum eins og sést í mynd­skeið­inu þar sem Ína hleypur inn í loft­varn­ar­skýlið. „Þegar það eru læti í kringum okkar reynum við að fela það fyrir börn­unum með að setja á háa tón­list til að yfir­gnæfa lætin í sprengj­unum og láta þau hoppa um svo þau finni ekki titr­ingin í jörð­inni. En elsta stelpan mín er alveg búin að fatta það, þegar við hækkum í tón­list­inni spyr hún hvar sé verið að sprengja núna. Hún er 6 ára. Þetta er ekki skemmti­legt sam­tal að þurfa að eiga við sex ára barn.“

Í dag er lítið eftir af því sem kalla má dag­legt líf. „Við höfum til dæmis ekki farið á róló lengi. Í gær hafði verið rólegt í nokkra daga svo ég fór út að kaupa Cherioos og mjólk en þá var maður að labba á milli skýla og gæt þess að hafa alltaf eitt­hvað í aug­sýn til að hlaupa til. Í okkar hverfi höfum við 90 sek. frá því við­vör­un­ar­kerfið fer í gang og þar til eitt­hvað fellur. Sunnar í land­inu er það 20. sek og þar ert þú alltaf inni í skýli.“

Hún segir engum líða vel, allir séu með kvíða­hnút og allt snú­ist um árás­irnar. „Þegar við keyrðum til dæmis úr afmæl­is­veisl­unni minni, þar sem fyrstu árás­irnar voru, belt­aði ég ekki börnin því við þurfum að geta kom­ist úr bílnum á núll­einni og falið okkur ein­hvers staðar.  Það er ekki eði­legt líf að vera sífellt að leita sér skjóls og get aldrei látið börnin úr aug­sýn.“

„Á sama tíma er þetta öruggleg ekkert á miðað við það sem er að gerast í Palestínu. Það er svo hræðilegt, hræðilegt alveg“

Ína leggur nú allt kapp á að kom­ast úr land­inu og er á bið í nokkur flug eftir helgi, bæði til manns síns Mósambík svo og ann­arra staða sem hún veit ekki einu sinni hverjir eru. Það gengur aftur á móti brögu­legt þar sem flug­völl­ur­inn er stað­settur í Lud, á svæði sem ástandi er sem verst og umhverfið er í ljósum logum. „Við viljum bara kom­ast burt.”

Sorglegt og ömurlegt ástand

Ína hljómar róleg en seg­ist ekki vera það. „Þetta er til­finn­ing sem maður hefur frá Mósambík, þar var maður alltaf með kvíða­hnút í mag­anum því maður vissi aldrei hvað myndi ger­ast næst. Þar var her­inn alltaf að æfa sig fyrir hlið­ina á þar sem við búum þannig að þegar spreng­ing­arnar byrj­uðu vissi maður aldrei hvort það væri her­inn eða hvort ISIS var mætt á svæðið. Þetta er sama til­finn­ingin hér.“

Aðspurð hvort hún  telji sig örugg­ari í Mósambík en Ísrael segir hún svo vera. „Maðurinn minn er núna syðst í land­inu að leita að hús­næði svo við getum sent eftir öllum norðan frá. Það eru 2500 kíló­metrar á milli, sem er á við fjar­lægð­ina milli Þýska­lands og Portúgal, svo við erum nokkuð örugg þar. Nú er bara að vona að flug­völl­ur­inn opni.“

„Það er ekki til nein hugsun önnur en vonin að þetta hætti, að þetta sé síð­asta sprengjan. Enginn hugsar um neitt annað. Þetta er sorg­legt og ömur­legt ástand,” segir Kristína Ösp Steinke í miðju sprengjuregn­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Fólk

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina